Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Margir bíða hælis Tuttugu og átta útlendingar bíða þessa stundina á gistiheimili í Reykjanesbæ eftir svari um það hvort þeir fá hæli hér á landi. Margir hafa beðið mánuðum saman, sumir í á annað ár. > 12.10.2005 00:01
Uppbygging LHS Norænn hópur skipaður fimm arkitekta- og verkfræðistofum mun skipuleggja uppbyggingu Landspítala-háskólasjúkrahúss við Hringbraut, sem hefst árið 2008. Hópurinn sigraði í samkeppni um deiliskipulag á svæðinu en tillaga hans var heildstæðari en aðrar sem bárust að mati dómnefndar. > 12.10.2005 00:01
Tilnefning til Glerlykilsins Skáldsagan Svartur á leik eftir Stefán Mána hefur verið valin í samkeppnina um Glerlykilinn. Glerlykillinn er veittur fyrir bestu norrænu glæpasöguna en verðlaunin verða veitt í maí á næsta ári. Hið íslenska glæpafélag valdi bók Stefáns Mána sem framlag Íslendinga.> 12.10.2005 00:01
Að rætast úr starfsmannamálum Mörg fyrirtæki hafa ekki farið varhluta af því að erfiðara hefur verið að fá starfsfólk í vinnu en fyrri ár. Þannig segir rekstarstjóri verslunarkeðju á höfuðborgarsvæðinu ástandið ekki hafa verið eins slæmt síðustu fjögur eða fimm árin. > 12.10.2005 00:01
Kjarasamningar samþykktir Kjarasamningar sem forsvarsmenn Starfsmannafélags Akraness og launanefndar sveitafélaganna skrifuðu undir síðastliðinn laugardag var naumlega samþykktur af félagsmönnum í gærkvöldi. > 12.10.2005 00:01
Meira af listum og menningu Krsitín Loftsdóttir hélt í vikunni fyrirlestur í Reykjavíkur-akademíunni þar sem hún fjallaði um þá ímynd Afríku í samtímanum. Hún bjó í tvö ár í Níger þar sem hún aflaði sér gagna fyrir doktorsverkefni sitt.> 12.10.2005 00:01
Verkfalli aflýst Verkfalli Stéttafélags Akranes hefur verið aflýst, kjarasamningurinn var samþykktur með naumum mun. Atkvæðagreiðsla fór fram fyrr í kvöld um samning Stéttafélags Akranes og Launanefndar sveitafélaganna. > 12.10.2005 00:01
Smalað á fund Framsóknar Yfir hundrað nýir framsóknarmenn hafa nýverið skráð sig í Framsóknarfélagið Reykjavík suður fyrir aðalfund í kvöld. Flestir eru sagðir stuðningsmenn Björns Inga Hrafnssonar. Talið er að Björn Ingi muni sækjast eftir fyrsta sæti á lista Framsóknarflokksins fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. > 12.10.2005 00:01
Ákæruvaldið ekki tilraunstofa Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann gagnrýnir ákæruvaldið harðlega og segir dóm Hæstaréttar fela í sér efnislega niðurstöðu. Yfirlýsingin birtist hér í heild sinni: "Eftir dóm Hæstaréttar í svonefndu „Baugsmáli“ sl. mánudag hafa talsmenn ákæruvaldsins sagt, að nauðsynlegt sé fyrir sakborninga að „efnisleg“ niðurstaða fáist í málinu."> 12.10.2005 00:01
Réðst inn í hús með hníf Ölvaður maður bankaði upp á í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti í nótt og reyndi að ryðjast inn þegar húsráðendur komu til dyra. Manninum tókst að komast inn í forstofuna þar sem hann tók upp hníf þegar húsráðendur vörnuðu honum inngöngu. Húsráðendur þekktu ekki manninn og tókst þeim að koma honum fram á stigaganginn aftur og náðu þeir af honum hnífnum. 11.10.2005 00:01
Kerfi hafi ekki sagt sitt síðasta Björn Bjarnason dómsmálaráðherra segir í grein á heimasíðu sinni í gær að réttarkerfið hafi ekki sagt sitt síðasta í kærumálinu gegn Baugi og að lögheimildir séu til þess að ákæruvaldið taki mið af því sem fram hafi komið hjá Hæstarétti við frekari ákvarðanir um framhald málsins. 11.10.2005 00:01
Verðstríð í flugi til Alicante Heimsferðir lækka verð sitt á flugmiðum milli Íslands og Alicante á Spáni um þrjú þúsund krónur næsta sumar til að mæta lágu verði hjá Iceland Express. Verð á farmiða milli Íslands og Alicante verður 12.400 krónur en var 15.400 krónur. Heimsferðir munu einnig bjóða fargjöld aðra leiðina frá 5.600 krónum og undirbýður þar með Iceland Express sem býður það á tæpar 8.000 krónur. 11.10.2005 00:01
Vara við afnámi synjunarvalds Þjóðarhreyfingin varar við því að við yfirstandandi enduskoðun stjórnarskrár verði hróflað við 26. grein núgildandi stjórnarskrár sem kveður á um að forseti geti hafnað lagafrumvarpi og lagt undir atkvæði þjóðarinnar. Í yfirlýsingu frá þjóðarhreyfingunni segir að ef þessi valdheimild verði tekin af forsetaembættinu þá gæti hann allt eins verið þingkjörinn. 11.10.2005 00:01
Þjófnuðum fækkar í Hafnarfirði Þjófnuðum og eignaspjöllum hefur farið fækkandi í umdæmi lögreglunnar í Hafnarfirði á árunum 2000-2004. Samkvæmt tölfræðilegri úrvinnslu lögreglunnar á ýmsum afbrotum í umdæminu má sjá að eignaspjöllum fækkaði um 35 prósent frá árinu 2002 og þjófnuðum fækkaði um 45 prósent. 11.10.2005 00:01
Hálka og éljagangur á Norðurlandi Hálkublettir og éljagangur eru á Holtavörðuheiði og Bröttubrekku. Hálka og éljagangur er víða á norðan verðum Vestfjörðum. Mokstur er hafin á Hrafnseyrarheiði, Dynjandisheiði og á Eyrarfjalli í Djúpi. Hálka og éljagangur er Þverárfjalli, í Langadal, á Öxnadalsheiði og Víkurskarði. Hálka og éljagangur er á Norðurlandi. 11.10.2005 00:01
Þúsund fundir á Akranesi Þúsundasti fundur bæjarstjórnar Akraness verður í dag klukkan fimm og verður hann með hátíðarbrag þar sem stefnt er að því að samþykkja þrjár tillögur. 11.10.2005 00:01
Geti ekki borið ábyrgð á Birni Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, telur að framsóknarmenn geti ekki borið ábyrgð á Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra. Forsaga málsins sé sú að Björn Bjarnason hafi gefið saksóknaraembættinu þá línu á bloggsíðu sinni í dag að halda áfram með Baugsmálið þó að aðeins standi eftir átta af 40 ákæruliðum í Baugsmálinu. „Framsóknarflokkurinn á ekki að líða mönnum að gera svona,“ sagði Kristinn í Íslandi í bítið í morgun. 11.10.2005 00:01
Framsals ekki verið krafist Albaninn sem grunaður er um morð í Grikklandi og var handtekinn hér á meðan hann beið eftir að umsókn um hælisvist hans yrði tekin til umsagnar situr enn í gæsluvarðhaldi. Hann mun að öllum líkindum sitja út gæsluvarðhaldið sem lýkur um miðjan nóvember, því samkvæmt upplýsingum frá Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu hefur engin framsalskrafa borist til embættisins. 11.10.2005 00:01
Greiðsla fyrir fréttalestur óljós Laun útvarpsstjóra eru ákvörðuð af Kjaranefnd samkvæmt núgildandi lögum. Páll Magnússon útvarpsstjóri má því ekki þiggja sérstaka greiðslu fyrir fréttalestur í sjónvarpinu. Hægt er að senda erindi til Kjaranefndar og fá hana til að kveða upp úrskurð um það hvort greiða eigi útvarpsstjóra sérstaklega fyrir lesturinn eða ekki. 11.10.2005 00:01
Söfnun hafin Íslenskar hjálparstofnanir standa fyrir söfnunum til aðstoðar fórnarlömbum hamfaranna í Suður-Asíu og raunar víðar. Hjálparstofnun kirkjunnar er með símasöfnun. Hægt er að hringja í síma 907-2002 og þá dregst sjálfkrafa framlag af símreikningi. 11.10.2005 00:01
Bera ekki ábyrgð á ráðherra Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að flokkurinn geti ekki borið ábyrgð á dómsmálaráðherra, sem tjái sig með þeim hætti sem Björn Bjarnason gerir á heimasíðu sinni um niðurstöður Hæstaréttar í Baugsmálinu. En þar segir Björn að réttarkerfið hafi ekki sagt sitt síðasta orð í málinu. 11.10.2005 00:01
Bóluefnismál skýrast í nóv-des Kostnaður við fyrirhugaða verksmiðju vegna framleiðslu á bóluefni við fuglaflensunni liggur ekki fyrir. Samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisráðuneytinu er ekki ljóst hvar framleiðslan mun fara fram en skoðað verður hvort mögulegt sé að framleiða bóluefnið hér á landi. Þetta skýrist nánar í nóvember og desember. 11.10.2005 00:01
Verðstríð á flugverði til Alicante Tuttugu og tvö þúsund Íslendinga þarf til að fylla vélar Heimsferða og Iceland Express til Alicante næsta sumar. Heimsferðir hafa tvöfaldað sætafjölda sinn úr 3500 sætum í 7000 og Iceland Express býður 15 þúsund sæti í því verðstríði sem nú er hafið á þessari flugleið. 11.10.2005 00:01
26. grein stjórnarskrár standi Þjóðarhreyfingin varar eindregið við því að hróflað verði við valdastöðu forseta Íslands. Verði það gert þá gæti hann allt eins verið þingkjörinn að þeirra mati. 11.10.2005 00:01
Gjaldeyristekjur nær þær sömu Gjaldeyristekjur af ferðaþjónustu eru nær þær sömu fyrstu sex mánuði ársins og í fyrra. Tekjur af hverjum gesti hafa þó aukist sé miðað við sama tíma í fyrra. En tekjur vegna neyslu í landinu lækka um 2,2 prósent á hvern gest en tekjur vegna ferðalaga þeirra innanlands hækka nokkuð og því er á heildina litið auknar tekjur af hverjum gesti. 11.10.2005 00:01
Breytingar á eignarhaldi hjá Marel Umtalsverðar breytingar hafa orðið á eignarhaldi Marel á síðustu vikum. Eignarhlutur Burðaráss hf., sem hefur verið leiðandi hluthafi, hefur flust yfir til Landsbanka Íslands hf. Á sama tíma hefur Eyrir fjárfestingafélag ehf. aukið sinn hlut verulega og á nú tæplega þrjátíu prósent í félaginu. 11.10.2005 00:01
Albani enn í gæsluvarðhaldi Albaninn sem grunaður er um morð í Grikklandi og var handtekinn hér á meðan hann beið eftir að umsókn um hælisvist hans yrði tekin til umsagnar situr enn í gæsluvarðhaldi. Hann mun að öllum líkindum sitja út gæsluvarðhaldið sem lýkur um miðjan nóvember. Samkvæmt upplýsingum frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu hefur engin framsalskrafa borist til embættisins. 11.10.2005 00:01
Afsláttarkort sjúklinga send heim Ætlunin er að koma á næsta ári á sjálfvirku kerfi, þannig að þeir sem eiga rétt á afsláttarkorti vegna læknisþjónustu, fái afsláttarkortin sjálfkrafa send heim.<font face="Arial"></font> 11.10.2005 00:01
Eimskip rekur Herjólf næstu 5 árin Eimskip og Vegagerðin undirrituðu í dag samkomulag um rekstur Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs næstu fimm árin. Eimskip mun taka yfir rekstur Herjólfs um næstu áramót og er fyrsta ferðin áætluð 2. janúar. 11.10.2005 00:01
Jón Axel fékk 3 mánuði Jón Axel Ólafsson, fyrrverandi fjölmiðlamaður, var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir brot á skatta- og hegningarlögum þegar hann sat sem stjórnarformaður Íslenska fjölmiðlafélagsins ehf. Honum var einnig gert að greiða 14,3 milljónir króna í sekt sem Jón Axel á að greiða innan fjögurra vikna, ella sæta sex mánaða fangelsi. 11.10.2005 00:01
Umræður um fjáraukalög Magnús Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokks í norðvestur kjördæmi og formaður fjárlaganefndar, lagði áherslur á að auka aðhald í ríkisrekstri í fyrstu umræðum um fjáraukalög sem fram fóru á Alþingi í dag. 11.10.2005 00:01
Múgæsingur á Seltjarnarnesi Fréttaflutningur af viðveru Steingríms Njálssonar á Seltjarnarnesi hefur valið nokkrum usla í bænum, en Steingrímur er margdæmdur fyrir kynferðisbrot gegn börnum. Í síðustu viku gerðu unglingar meðal annars aðsúg að húsi þar sem Steingrímur átti að hafa verið. 11.10.2005 00:01
Byrja með eða án Slippstöðvarmanna Hafist verður handa við stálfóðringu fallganga Kárahnjúkavirkjunar í Valþjófsstaðarfjalli í vikunni með eða án þátttöku starfsmanna Slippstöðvarinnar, segir Sigurður Arnalds, upplýsingafulltrúi virkjunarinnar. 11.10.2005 00:01
Tekur ábyrgð á dómsmálaráðherra Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segist fyllilega taka ábyrgð á dómsmálaráðherra þrátt fyrir ummæli hans á heimasíðu um að réttarkerfið hefði ekki sagt sitt síðasta orð í Baugsmálinu. Þetta kom fram á fundi sem forsætisráðherra hélt með blaðamönnum efti hádegið í dag. 11.10.2005 00:01
Lögbannsmál þingfest Mál Jónínu Benediktsdóttur á hendur Fréttablaðinu og Kára Jónassyni ritstjóra þess var þingfest í Héraðsdómi Reykjvíkur í gærmorgun. Krafist er staðfestingar á lögbanni sem sett var á birtingu einkagagna Jónínu og upptöku á gögnum hjá blaðinu, auk bóta og refsingar. 11.10.2005 00:01
Fékk milljónasekt og skilorð Jón Axel Ólafsson, fyrrum fjölmiðlamaður var dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir brot á skatta- og hegningarlögum árin 1998 og 1999. 11.10.2005 00:01
Tekin full í fimmta sinn Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt konu á fertugsaldri í tveggja mánaða fangelsi fyrir að hafa ekið bifreið ölvuð og án ökuréttinda í mars síðastliðnum. Þetta er í fimmta sinn sem konan er tekin fyrir ölvunarakstur síðan árið 2001. 11.10.2005 00:01
Sýna til styrktar MND félaginu Borgarleikhúsið hefur ákveðið að gefa ágóða einnar sýningar af Sölku Völku til MND-félagsins, en það er félag fólks með hreyfitaugahrörnun. 11.10.2005 00:01
Dæmdir fyrir fíkniefnabrot Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt fjóra menn um tvítugt í 45 daga til fimm mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar vegna stórfelldra innbrota í heimahús og verslanir á þessu ári, auk smávægilegra fíkniefnabrota. Bótakröfum trygggingafélagsins Sjóvá-Almennra var vísað frá dómi. 11.10.2005 00:01
Snertir ekki Rithöfundasambandið Stjórn Blaðamannafélags Íslands mun á næsta fundi sínum taka fyrir beiðni Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar vegna dóms og fjárnáms sem gert var í framhaldinu vegna ærumeiðandi ummæla Hannesar um Jón Ólafsson. Formaður Rithöfundasambandsins segir málið ekki koma sambandinu við og því verði ekki ályktað um það þrátt fyrir að Hannes sé þar félagsmaður. 11.10.2005 00:01
Dæmd fyrir fíkniefnaeign Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt rúmlega tvítuga konu til tveggja mánaða fangelsisvistar, skilorðsbundinnar til þriggja ára, fyrir að hafa tvisvar á þessu ári haft fíkniefni undir höndum. Við tvær húsleitir á heimili konunnar gerði lögregla upptækar 23 MDMA töflur, 2,04 g af tóbaksblönduðu kannabisefni, 43,47 af hassi, 10,51 g af amfetamíni og 6,34 g af kókaíni. 11.10.2005 00:01
1,5 milljón hefur safnast Um 1.500 manns hafa brugðist við neyðarkalli vegna jarðskjálftanna í Pakistan og lagt fram 1.000 krónur hver til hjálparstarfsins með því að hringja í söfnunarsíma Rauða krossins, 907 2020. Þannig hefur safnast um ein og hálf milljón króna á þeim sólarhring sem er liðinn síðan söfnunin hófst. 11.10.2005 00:01
Slökkviliðið kallað út Slökkviðliðið á höfuðborgarsvæðinu hefur verið kallað út vegna hugsanlegs elds í Laugateig. Reyk lagði frá kjallaraíbúð en nánari upplýsingar liggja ekki fyrir að svo stöddu. 11.10.2005 00:01
Fundar með aðilum vinnumarkaðar Ríkisstjórnin hyggst funda með forsvarsmönnum Alþýðusambandsins og aðila vinnumarkaðar um stöðu kjarasamninga. Fulltrúar ASÍ fagna aðkomu ríkisstjórnar að málinu en eru ekki sammála þeim orðum Halldórs í stefnuræðu að kjarasamningar væru ekki í hættu vegna efnahagsstjórnunar ríkisstjórnarinnar. 11.10.2005 00:01
Verið að reykræsta Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu er nú að reykræsta í kjallaraíbúð við Laugateig. Talið var að eldur hafi kviknað í íbúðinni út frá eldavél en síðar kom í ljós að aðeins hafi soðið upp úr potti. 11.10.2005 00:01