Fleiri fréttir

Íslenskir karlar eldast og fitna

Íslenskir karlar eru að fitna og eldast á sama tíma og konur virðast ráða betur við þyngdina og meðalaldur þeirra hækkar ekki jafn mikið og karla. Aukin velmegun er því ekki eingöngu sýnileg í miklum launamun heldur einnig á heilsu- og holdarfari.

Kínverjar óttast útbreiðslu HIV

Allt að tíu milljón Kínverjar gætu smitast af HIV-veirunni á næstu fimm árum ef ekki verður gripið til aðgerða. Þetta sagði helsti alnæmissérfræðingur Kínverja í gær og tók þar með undir varnaðarorð Sameinuðu Þjóðanna.

Útiloka ekki samstarf við stjórnarandstöðu

Guðjón Arnar Kristjánsson formaður Frjálslynda flokksins segist ekki útiloka að Frjálslyndir myndu ganga til liðs við stjórnarandstöðuflokkana í kosningabandalgi að norskri fyrirmynd fyrir næstu alþingiskosningar. Hann segir það hins vegar skyldu stjórnarandstöðuflokkanna að stefna að ríkisstjórnarsamstarfi, falli ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar.

Hlýtur Norrænu textílverðlaunin

Norrænu textílverðlaunin renna í ár til Íslensku listakonunnar Hrafnhildar Sigurðardóttur. Þau verða afhent við formmlega athöfn í Boräs í Svíþjóð næstkomandi fimmtudag. Í tilkynningu frá dómnefnd segir að verk Hrafnhildar séu fjölbreytt, frumleg og vönduð þar sem konan og hið kvenlega eru í brennidepli.

Fjölmennt á kvennafrídegi á landsbyggðinni

Konur á landsbyggðinni voru mun virkari þátttakendur í kvennafrídeginum en fyrir þrjátíu árum. Á Akureyri fjölmenntu konur í Sjallann. Starfsemi fyrirtækja var víða hálflömuð og öll þjónusta gekk hægar en venjulegt er.

Nýr endurvarpi á Hornströndum

Nýr endurvarpi fyrir talstöðvarbúnað björgunarsveita var settur upp í friðlandi Hornstranda á Vestfjörðum í fyrradag. Það gekk ekki þrautalaust fyrir sig en þyrlu þurfti til verksins.

Gluggagægir í Þingholtunum

Grunur leikur á að gluggagægir hafi verið á ferðinni í Þingholtunum í nótt , en hann fanst ekki þrátt fyrir talsverða leit lögreglunnar. Íbúi í húsi á svæðinu sá manninn á glugga íbúðar sinnar en hann forðaði sér í skyndingu þegar hann sá að íbúinn hafði orðið hans var.

Hvetja til samstöðu Norðurlandanna

Nokkur norræn samtök munu í dag, strax að loknum blaðamannafundi fulltrúa Norðurlandaráðs, kynna sameiginlega yfirlýsingu sína í Þjóðleikhúskjallaranum. Í yfirlýsingunni koma fram hugmyndir og tilmæli um það hvernig Norðurlöndunum beri að halda á málum og sýna samstöðu, því að mati samtakanna stendur Evrópusambandið frammi fyrir alvarlegri kreppu.

Lyf í rúgbrauði

Nú eru allar líkur á því að Danir og aðrar þjóðir innan Evrópusambandsins geti sótt sér lyf í bakarí í stað apóteks. Það einskorðast þó eingöngu við lyf sem lækna eiga háa blóðfitu. Ástæðan er sú að í gær töpuðu Danir kosningu á Evrópusambandsþinginu þar sem önnur ríki kusu með því að leyfa slík lyf í tveimur gerðum af rúgbrauði.

Akureyringar fá nýjan slökkvibíl

Slökkvilið Akureyrar hefur tekið í notkun nýjan slökkviliðsbíl sem er sagður einn sá öflugasti á landinu. Bíllinn er með þrjú þúsund lítra vatntank og dælu sem getur dælt fimm þúsund lítrum á mínútu. Dælan er því svo öflug að hún getur tæmt vatntankinn á þrjátíu og sex sekúndum.

Ákærður fyrir að bana landa sínum:

Phu Tién Nguyén er ákærður fyrir að hafa orðið Vu Van Phong að bana, en aðalmeðferð málsins fór fram í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Með aðstoð túlks sagði Phu hvernig hann fór ásamt fjölskyldu sinni í fjölmennt matarboð í Kópavogi í lok maí. Við komuna í Kópavoginn sagðist Phu hafa verið með stóran eldhúshníf vafinn inn í dagblöð í jakkavasanum til að nota sem vernd fyrir þriggja mánaða gamlan son sinn, en samkvæmt víetnamskri hefð rekur hnífur undir dýnu í barnarúmi illa anda burt.

Tvö í haldi vegna dópsmygls

Karl og kona eru í haldi lögreglu vegna fíkniefnasmygls. Fólkið er grunað um að hafa smyglað fíkniefnum til landsins í þrjú skipti að minnsta kosti.

Ætla að stöðva brotleg fyrirtæki

Fulltrúar Samiðnar fóru í gær um og ræddu við erlenda verkamenn á vegum íslensku starfsmannaleigunnar B2 ehf. Félögin segja tíma kominn á aðgerðir gegn fyrirtækjum sem upplýsa ekki um kjör erlendra starfsmanna sinna.

Sveinatunga jöfnuð við jörðu

Gömlu bæjarskrifstofurnar í Garðabæ hafa nú verið jafnaðar við jörðu. Síðastliðinn áratug hafa listhneigðir grunnskælingar í Flataskóla haft aðstöðu í Sveina­tungu, eins og húsið var nefnt. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um það hvað byggt verði á Sveinatungulóðinni. Þó eru uppi hugmyndir um nýjan miðbæ í Garðabæ og þar er gert ráð fyrir fjölbýlishúsum á svæðinu.

Vinnumálastofnun kannar ávirðingar

Yfirmönnum Vinnu­mála­stofn­un­ar hefur verið falið að grennsl­ast fyrir um ávirðingar á hendur starfsmannaleigunni B2 og vísa til lögreglu reynist þær á rök­um reistar. Gissur Pétursson, forstjóri stofn­un­ar­inn­ar, segir málið hafa verið rætt á fundi stjórnar í hádeginu í gær.

Stefnir að lögum fyrir jól

"Mér sýnist ein­sýnt að við förum í einhvers konar laga­setningu en hún þarf að taka mið af okkar alþjóðlegu skuld­bind­ingum, ekki sýst varðandi EES samninginn," segir Árni Magnús­son félag­s­málaráðherra um starf­semi starfsmannaleiga.

Fær tennur bættar

Þórhalli Ölveri Gunnlaugssyni, sem gengur nú undir nafninu Þór Óliver, voru í gær dæmdar skaða- og þjáningabætur í kjölfar líkamsárásar sem hann varð fyrir á Litla-Hrauni í maí 2002.

Landsbankinn lánar öllum sé trygging til

"Ef tryggingar eru í lagi þá fá menn lán hjá Landsbankanum hvort sem þeir eru utan að landi eða úr Reykjavík," segir Ásgeir Friðgeirsson, upplýsingafulltrúi Landsbankans. Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu var írsku stórfyrirtæki hafnað um lán vegna byggingar kalkþörungaverksmiðju á Bíldudal og sögðu forsvarsmenn þess að ástæðan hafi verið sú að fyrirtækið ætti að rísa á landsbyggðinni.

Verðvernd og endurgreiðslur

Húsasmiðjan blæs til sóknar á bygginga- og heimilsvörumarkaði með því að bjóða viðskiptavinum sínum ávallt lægsta verð. Það byggist á því að þeir fá vöru keypta hjá Húsasmiðjunni endurgreidda sjáist hún auglýst á lægra verði annars staðar innan fimmtán daga frá kaupum.

Umræðan á Íslandi hefur áhrif á skoðun Norðmanna

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra hafði orð fyrir forsætisráðherrum Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna á blaðamannafundi í Reykjavík í gærkvöldi. "Viðræður okkar snérust einkum um samband Norðurlanda og Eystrasaltslandanna við ESB og tengslin milli ESB og Evrópska efnahagssvæðisins. Við ræddum einnig sambandið við Rússland og Úkraínu."

Tólf takast á um fjögur sæti

Framboðsfrestur í lokuðu prófkjöri Samfylkingarinnar á Akureyri, vegna sveitarstjórnarkosninganna á næsta ári, rann út á föstudag. Alls sækjast tólf flokksmenn eftir fjórum efstu sætum framboðslistans en samkvæmt reglum prófkjörsins skulu þau skipuð tveimur konum og tveimur körlum.

Yfirdýralæknir grípur til ráðstafana

Yfirdýralæknir hefur ákveðið að grípa til sérstakra varúðarráðstafana varðandi innflutning hunda. Veira sem veldur inflúensu hjá hestum í Bandaríkjunum hefur breyst og sýkir nú einnig hunda þar í landi. Því sé talið að innflutningur hunda frá Bandaríkjunum geti falið í sér hættu fyrir íslenska hrossastofninn.

Ætlar að kæra lognar sakir

"Lögfræðingur okkar er að vinna í þessum mál­um," segir Eiður Eiríkur Bald­vins­son, framkvæmdastjóri starfs­manna­leigunnar B2 ehf. Hann vís­ar þar til ásakana á hendur honum og fyrirtæki hans. "Þetta verður klárað fyrir dómstólum, en ekki í fjölmiðlum."

Enn hallar á konur

Sérrit frá Hagstofu Íslands um stöðu kynjanna á síðustu þremur áratugum sýnir að í nær öllum kimum samfélagsins hallar enn á konur. Þó hefur hlutfall kvenna á ýmsum sviðum aukist jafnt og þétt.

Tryggingar kosta hundruð þúsunda

Samtök um akstursíþróttir hafa reynt að fá fimmtíu kúbika smábifhjól leyfð hér á landi. Erfitt hefur ­reynst­­ að skrá hjólin og mörg hundruð þúsund krónur kostar að tryggja þau.

Á þriðja þúsund konur komu saman í Sjallanum

Konur á Akureyri héldu baráttuhátíð sína í gær í Sjallanum og var húsið orðið yfirfullt tæpum hálftíma áður en skipulögð dagskrá hófst klukkan 15. Sárafáir karlmenn mættu á hátíðina en að mati Sólveigar Hrafnsdóttur, sem þátt tók í undirbúningnum, voru á milli 2.000 og 2.500 konur í Sjallanum og þurfti hópur kvenna að hlýða á dagskrána utandyra þar sem ekki komust fleiri inn.

Ker vill borga skaðabætur

"Við ætlum að hittast til frekari viðræðna," segir Vil­hjálm­ur H. Vilhjálmsson, lög­maður Reyk­ja­víkur­borgar um gang mála vegna skaðabótakröfu borgarinnar á hendur olíufélögunum. Fyrir skömmu rann út frestur sem borgin gaf félögunum þremur til að svara skaðabótakröfu sinni. Lögmenn hafa fyrir hönd Skeljungs og Olíss fundað með Vilhjálmi síðan þá, en Ker, sem á Esso, svaraði erindinu formlega. Vilhjálmur segir að í því svari hafi verið boðin fram ákveðin greiðsla, en tæpast í samræmi við kröfur borgarinnar.

76 prósentum meira

Verðmæti síldarafla af íslenskum miðum á fyrstu sjö mánuðum ársins er tæpum 76 prósentum meiri en á sama tíma í fyrra, en munurinn er um 2,5 milljarðar króna. Þetta kemur fram í Vegvísi Landsbankans í gær. Alls var aflaverðmæti íslenskra skipta 41,8 milljarðar á tímabilinu, samanborið 41,7 milljarða í fyrra, en það er 0,2 prósent aukning.

Hyggjast segja upp samningi við TR

"Það er einhugur meðal hjartasérfræðinga um að segja upp samningi við Tryggingastofnun ríkisins við óbreyttar aðstæður," segir Axel Sigurðsson, sem sæti á í stjórn Félags sjálfstætt starfandi hjartalækna. Á fundi hjartasérfræðinga fyrir helgi var meðal annars rædd sú staða sem komin er upp um einingakvóta sem samningur TR og sérfræðilækna kveður á um.

Rækjuaflinn milljarði minni

Verðmæti rækjuaflans dróst saman um tæpan milljarð á fyrstu sjö mánuðum ársins ef miðað er við sama tíma í fyrra, eða 66 prósent, að því er fram kemur í tölum frá Hagstofu Íslands. Verðmæti síldaraflans jókst hins vegar um rúman milljarð, eða 76 prósent, og nam 2,5 milljörðum króna.

Funda með Sól um ræstingar

Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, útilokar ekki að bærinn taki aftur við ræstingum í þeim stofnunum sem hafa verið í verkahring fyrirtækisins Sólar. Fyrirtækið sagði upp samningi sínum við Hafnarfjarðarbæ í síðustu viku. "Þetta er svo nýtilkomið að engin ákvörðun hefur verið tekin í þessu máli," segir Lúðvík en hann mun eiga fund með forsvarsmönnum Sólar á morgun. Kolbeinn Gunnarsson, formaður Verkalýðsfélagsins Hlífar, vonast til að bærinn taki aftur við ræstingunum.

Til hagsbóta fyrir þolendur

Ríkislögreglustjóri hefur gefið út verklagsreglur um meðferð og skráningu heimilisofbeldismála hjá lögreglu. Guðmundur Guðjónsson yfirlögregluþjónn segir verklagsreglurnar helst til hagsbóta fyrir þolendur heimilisofbeldis. Einnig auðveldi þær skráningu á brotum sem flokkist undir heimilisofbeldi og valdi því að betri yfirsýn náist yfir þessa tegund brota.

Stærri gögn, aukinn flutningshraði og lægri kostnaður

Og Vodafone hefur tekið í notkun gagnahraðal sem þjappar gögnum saman í GSM kerfinu. Gagnahraðallinn tryggir flutning á stærri gögnum, aukinn flutningshraða og dregur úr kostnaði viðskiptavina. Eingöngu er greitt fyrir niðurhal en ekki fyrir tíma tengingar.

Karlar í störf kvenna

Þar sem konur gengu út af vinnustöðum í dag, þurftu karlmennirnir að taka við. Félagsmálaráðherra, yfirmaður jafnréttismála, stóð símavaktina í ráðuneytinu. Ekki voru þó öll fyrirtæki á því að leyfa kvenkynsstarfsmönnum að sækja fundinn á Ingólfstorgi.

2B ætla að höfða meiðyrðamál

Meiðyrðamál verður höfðað gegn formanni Rafiðnaðarsambandsins vegna orða hans um starfsmannaleiguna 2B. ASÍ krefst þess að lögreglurannsókn fari fram á starfsmannaleigunni, en stjórnendur hennar eru sagðir hvetja til þess að pólskir verkamenn séu barðir.

Fjölmenni á hátíðarhöldum

Um fjörutíu og fimm þúsund konur komu saman í miðborg Reykjavíkur í dag til að knýja á um jafnan rétt kynjanna. Það er töluvert meira en var á kvennafrídaginn fyrir þrjátíu árum. Þrátt fyrir að margt hafi áunnist, er greinilega langt í land enn þá.

Ekkert óeðlilegt við kaupverð Sterling

Fyrrverandi eigandi Sterling er sannfærður um að hann fái meira fyrir félagið en fimmtán milljarða samningurinn við FL-Group segir til um. Hann segir ekkert óeðlilegt við kaupverðið en sjálfur greiddi hann fjóra milljarða fyrir Sterling fyrir hálfu ári.

Óljóst hvort launaleynd eigi sér stoð í lögum

Ákvæði um launaleynd í ráðningarsamningum, sem fjölmörg fyrirtæki láta starfsmenn sína skrifa undir, vinnur gegn því að konur og karlar fái sömu laun fyrir sömu vinnu. Óljóst er þó hvort launaleynd á sér stoð í lögum og á það hefur enn ekki reynt hér á landi.

Örmögnuðust á fjalli

Björgunarsveitin Ísólfur á Seyðisfirði var kölluð út síðdegis í gær vegna gönguhóps sem lent hafði í vandræðum í gönguferð um Vestdal. Tveir úr hópnum höfðu blotnað og voru orðnir nokkuð kaldir þegar Ísólfsmenn komu á vettvang. Björgunarsveitin aðstoðaði fólkið við að komast til byggða og allir komust að lokum heilir heim.

Um 40 þúsund manns í miðbænum

Lögreglan telur að um fjörutíu þúsund manns séu samankomin í miðbænum í tilefni kvennafrídagsins. Allt hefur gengið vel fyrir sig að sögn varðstjóra á vakt en tveir lögreglubílar og tveir hópar fótgangandi lögreglumanna hafa reynt að sjá til þess að allt gangi snurðulaust.

Dræmar viðtökur hjá Samfylkingu

Varaformaður Samfylkingarinnar tekur dræmt í þær hugmyndir formanns Vinstri Grænna, að myndað verði rauðgrænt kosningabandalag að norrænni fyrirmynd fyrir næstu alþingiskosningar. Hann segir flokka eiga að ganga óbundna til kosninga og enginn hefð sé fyrir öðru. Hann segir að þó margt sé líkt í stefnu flokkanna tveggja, þá séu enn stór atriði sem flokkunum greini á um.

Óslitin mannmergð

Miðbær Reykjavíkur er sneisafullur af fólki sem tekur nú þátt í dagskrá kvennafrídagsins. Mannmergðin er þvílík að ef horft er frá horni Skólavörðustígs og Bankastrætis, bæði upp að Hallgrímskirkju og niður að Lækjartorgi, er mannmergðin algjörlega óslitin.

Fimmtíu starfsmenn til skoðunar

Verkalýðshreyfingin rannsakar nú kjör á milli 40 og 50 iðnaðar- og verkamanna sem eru víða hér á landi við störf á vegum starfsmannaleigunnar 2B. Margt bendir til þess að sama sé uppi á teningnum hjá þeim starfsmönnum og hjá starfsmönnum fyrirtækisins við Kárahnjúka. ASÍ hyggst höfða mál á hendur starfsmannaleigunni.

Miðbærinn að fyllast

Ljóst er að tugir þúsunda kvenna og karla ætla að taka þátt í dagskrá kvennafrídagsins. Miðbærinn er að fyllast af fólki og nú er hafin baráttuganga frá Skólavörðuholti niður á Ingólfstorg.

Sjá næstu 50 fréttir