Innlent

Kínverjar óttast útbreiðslu HIV

MYND/AP

Allt að tíu milljón Kínverjar gætu smitast af HIV-veirunni á næstu fimm árum ef ekki verður gripið til aðgerða. Þetta sagði helsti alnæmissérfræðingur Kínverja í gær og tók þar með undir varnaðarorð Sameinuðu Þjóðanna. Hann telur þó mögulegt að halda þessari tölu innan tveggja milljóna ef rétt verði haldið á spilunum. Opinberlega eru átta hundruð og fjörutíu þúsund Kínverjar smitaðir af HIV, en sérfræðingar telja hina raunverulegu tölu miklu hærri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×