Fleiri fréttir

Upplýst um aðdraganda sjóslyss

Í dag ætlar lögregla að upplýsa um niðurstöður rannsóknar á slysi sem varð um síðustu helgi þegar skemmtibátur ók á Skarfasker á Viðeyjarsundi. Í slysinu fórst 51 árs gömul kona og 34 ára maður er talinn af, en lík hans hefur ekki enn fundist.

Bænastund í stað hátíðar

Stjórn smábátafélagsins Snarfara hefur fallið frá afmælishátíð í tilefni af 30 ára afmæli félagsins sem halda átti næsta sunnudag. Báturinn sem fórst á Viðeyjarsundi aðfararnótt síðasta laugardags var í félaginu og er félögum því frekar boðið til bænastundar í félagsheimili Snarfara.

Fimm ráðuneyti án kvenna

Af 222 forstöðumönnum ríkisins eru fimmtíu konur, jafnmargar og í febrúar 2004. Körlum hefur fækkað um þrjá. Engar konur eru forstöðumenn á vegum utanríkisráðuneytisins, landbúnaðarráðuneytisins, viðskiptaráðuneytisins, viðskiptaráðuneytisins og Hagstofu Íslands.

Samningur samþykktur

Menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkurborgar samþykkti á fundi sínum á miðvikudag drög að samningi við Sigurjón Sighvatsson vegna Blind Pavilion. Samkvæmt samningnum verður verkið Blind Pavillion í Viðey næstu tvö árin.

Fá úthlutað lóð í Vatnsmýrinni

Borgarráð samþykkti í gær tillögu um að íslenska lyfjafyrirtækinu Invent Farma yrði úthlutað lóð í Vatnsmýrinni nálægt því svæði sem Háskólinn í Reykjavík hefur fengið úthlutað. Fyrirhugað er að Invent Farma setji þar upp rannsóknar- og þróunardeild.

Á móti sameiningu á Suðurnesjum

Meirihluti bæjarstjórna Sandgerðis og Garðs leggst gegn því að sveitarfélögin verði sameinuð Reykjanesbæ í almennri atkvæðagreiðslu 8. október næstkomandi og hefur andstaðan verið samþykkt í báðum bæjarstjórnum.

Kosningabandalag vinstri flokka?

Einskonar kosningabandalag vinstri flokkanna fyrir næstu alþingiskosningar gæti verið raunhæfur möguleiki að mati forystumanna Samfylkingarinnar og Vinstri - grænna. Formaður Vinstri - grænna segir að vinstri flokkunum í Noregi hafi tekist það sem misheppnaðist hér fyrir kosningarnar 2003.

Aron Pálmi hvorki bitur né reiður

Aron Pálmi Ágústsson, sem hefur mátt dúsa í fangelsi í Texas í rúm átta ár vegna brota sem hann framdi ellefu ára gamall, segist hvorki bitur né reiður yfir örlögum sínum. Hann vonast til að hefja nýjan kafla í lífi sínu á Íslandi innan skamms og ætlar að nota reynslu sína til að hjálpa öðrum.

Sala lúxusbíla eykst mikið

Íslendingar virðast ekki á þeim buxunum að láta af kaupgleðinni. Bílasala í ágúst var til að mynda helmingi meiri en í ágúst í fyrra og ásókn í svokallaða lúxusbíla hefur aukist mjög.

Fær nafn sitt ekki skráð

Fimm ára gömul stúlka í Neskaupstað er ekki bara stúlka heldur er hún skráð sem Stúlka Steinþórsdóttir í þjóðskrá. Um árabil hefur faðir hennar barist fyrir því að fullt nafn hennar verði skráð í þjóðskrá en er sagt að það sé of langt.

Hlýnun sjávar kostaði 75 milljónir

"Við sjáum ekki fram á að geta starfrækt eldisstöðina í Þorlákshöfn öllu lengur þannig að við munum leggja hana niður innan tíðar," segir Arnar Freyr Jónsson, framkvæmdastjóri Fiskeyjar ehf., sem einnig er með eldisstöðvar á Dalvík og Hjalteyri. </font />

Greining: Lúðueldi

Fiskey ehf. mun á næstu mánuðum loka lúðueldisstöð sinni í Þorlákshöfn. Þá verður ein slík stöð eftir en Silfurstjarnan er með áframeldisstöð í Axarfirði. Lúðueldi hefur farið stigvaxandi hér á landi og nú er svo komið að jafnmikið er til af villtri lúðu og eldislúðu.

Greiningin tilbúin í Vesturbyggð

Greiningunni sem Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða hefur unnið að um rekstur Bílddælings, sem lagði niður starfsemi sína í sumar, er nú lokið að sögn Shirans Þórissonar, viðskipta- og markaðsráðgjafa félagsins. Skýrslan verður í dag afhent Guðmundi Guðlaugssyni, bæjarstjóra í Vesturbyggð, og síðan tekin til umræðu næstkomandi miðvikudag.

Guttormur felldur

Guttormur, nautið ástkæra í Húsdýragarðinum, verður felldur í dag að sögn Margrétar Daggar Halldórsdóttur, deildarstjóra dýradeildar Húsdýragarðsins. Margrét segir enn fremur að hann verði farinn áður en Húsdýragarðurinn verður opnaður í dag.

Uggur í leiksskólakennurum

Stjórn Félags leikskólakennara hvatti leikskólastjóra til þess að takmarka innritun barna, loka deildum eða stytta opnunartíma frekar en að láta ástandið sem nú hefur skapast á leikskólum vegna manneklu bitna á faglegu starfi og öryggi barnanna.

Enn eitt reiðarslagið

Enn eitt reiðarslagið ríður nú yfir rækjuiðnaðinn hér á landi þar sem tollar af rækju frá Kanada til Evrópusamabndsins hafa verið lækkaðir til muna en hún keppir við íslensku rækjuna á þeim markaði.

Formlega talinn látinn

Víðtæk leit að Friðriki Ásgeiri Hermannssyni, sem saknað hefur verið síðan sjóslysið varð á Viðeyjarsundi á laugardag, bar engan árangur í gærkvöldi og er hann formlega talinn látinn. Leit verður haldið áfram og í gær stóð til að taka skýrslu af hjónunum sem komust af í slysinu.

Gröfuþjófurinn ófundinn

Þjófurinn sem braust inn í tölvuverslun í Kópavogi í fyrrinótt með því að beita traktorsgröfu er ófundinn og liggur enginn sérstakur undir grun eftir því sem fréttastofan best veit. Unnið var í allan gærdag að því að lagfæra framhlið verslunarinnar sem stórskemmdist og hleypur tjónið á mörg hundruð þúsundum króna.

Esjan grá langt niður í hlíðar

Esjan gránaði af snjó langt niður í hlíðar í nótt sem er ótvíræður fyrirboði þess að haustið er gengið í garð. Víða gránaði á hálendinu en þó varla meira en svo að víðast mun snjóinn taka upp í dag.

Athyglisvert val RÚV á viðmælendum

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðisflokks í Reykjavík segir val stjórnenda Kastljóss á fulltrúa minnihluta gegn borgarstjóra, athyglisvert. Flugvallarmálið hafi verið til umræðu og stjórnendur Kastljóss hafi ákveðið að kalla til leiks varaborgarfulltrúa og prófkjörskandidat til að skiptast á skoðunum við borgarstjóra um málið í stað þess að kalla til oddvita minnihlutans til að skýra stefnu Sjálfstæðisflokks.

Vestfirðingar upplifa meiri hættu

„Vestfirðingar upplifa mikla áhættu vegna reglubundinna ferða sinna að vetrarlagi, mun meiri en íbúar annarra landshluta og skera sig í raun alveg úr“. Þannig komast sérfræðingar Rannsóknastofnunar Háskólans á Akureyri að orði í nýlegri skýrslu um samgöngur á Vestfjörðum og Bæjarins besta á Ísafirði greinir frá í dag.

Allir farsímanotendur staðsettir

Lausn er að fást á málum farsímanotenda sem hringja í Neyðarlínuna. Tilkynningar er að vænta í dag frá Neyðarlínunni um hvernig málið verður leyst

Kísiliðjan að hverfa

Kísiliðjan við Mývatn er smátt og smátt að hverfa en verið er að rífa húsnæðið. Í dag verður fjörtíu og átta metra hár turn verksmiðjuhússins felldur í heilu lagi.

Kaupmáttur launa hefur rýrnað

Kaupmáttur launa þorra launþega hefur rýrnað frá áramótum samkvæmt útreikningum hagfræðinga ASÍ. Verðbólgan hefur haft launahækkunina um síðustu áramót af þorra þeirra launþega sem þiggja laun samkvæmt kjarasamningum fjölmennustu verkalýðshreyfinga.

Halldór situr leiðtogafund Sþ

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra verður í Bandaríkjunum næstu þrjá daga en hann situr leiðtogafund Sameinuðu þjóðanna í New York. Forsætisráðherra mun ávarpa leiðtogafundinn á morgun.

Stjórnarmyndunarviðræður hafnar

Stjórnarmyndunarviðræður í Noregi eru hafnar og telja má næsta víst að Verkamannaflokkurinn, Sósíalistaflokkurinn og Miðflokkurinn myndi saman næstu ríkisstjórn enda gengu þessir þrír flokkar að því leytinu bundnir til kosninga að þeir gáfu það út í baráttunni að þeir stefndu að því að starfa saman.

3-4% ungra kvenna með átröskun

Þrjú til fjögur prósent ungra kvenna hafa átröskun af einhverju tagi. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra vill setja 16-18 milljónir króna í meðferðarúrræði strax í haust.

Minnsta atvinnuleysi í fjögur ár

Atvinnuleysi hefur ekki verið minna á Íslandi síðan í nóvember 2001. 1,8% vinnubærra manna voru án vinnu í síðasta mánuði samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar og er það rúmlega þriðjungi minna atvinnuleysi en í ágústmánuði í fyrra.

Reiðubúinn að aflétta öllum tollum

George Bush Bandaríkjaforseti sagði í ræðu sinni á leiðtogafundi Sameinuðu þjóðanna síðdegis að stjórnvöld í Wahsington væru reiðubúin að aflétta öllum tollum og viðskiptahömlum ef aðrar þjóðir gerðu það sama.

Um 400 börn enn á biðlistum

Rúmlega 400 börn bíða enn eftir plássi á frístundaheimilum borgarinnar vegna skorts á starfsfólki. Í leikskólana vantar um 100 starfsmenn. Stefán Jón Hafstein segir ráðningar ekki ganga nógu hratt.</font /></b />

Verðbólgan hækkar afborganir lána

Verðtrygging húsnæðislána tíðkast hvergi nema á Íslandi ef miðað er við lönd innan OECD. Verðbólgan nú hefur þau áhrif að afborganir á húsnæðislánum hækka jafnvel um tugi þúsunda á ári. </font /></b />

Sprengjuhótunarmál til saksóknara

Rannsókn á máli konu sem hringdi inn sprengjuhótun til Keflavíkurflugvallar í byrjun ágúst er nú lokið hjá lögreglunni á Keflavíkurflugvelli.

Karlar að vakna til vitundar

Árni Magnússon félagsmálaráðherra ætlar að halda karlaráðstefnu um jafnréttismál í haust við góðar undirtektir. Hann segir að karlar séu að vakna til vitundar um jafnréttismál og það breikki umræðuna að þeir taki virkan þátt í henni. </font /></b />

Búin að gefast upp á Landspítala

Yfiriðjuþjálfi til 24 ára á Landspítala háskólasjúkarhúsi er búinn að gefast upp, - í bili. Elín Ebba Ásmundsdóttir ræðir um orsakir áhugaleysis, virðingarleysis og skorts á væntumþykju og einlægum áhuga í starfsumhverfinu á LSH. </font /></b />

Ríkið gæti þurft að borga meira

Launaábyrgðir ríkisins fyrir Bandaríkjaher gætu aukist um tugi milljóna ef Rafiðnaðarsambandið vinnur mál á hendur ríkinu í Hæstarétti. Í vor vann sambandið málið í Héraðsdómi, en því var áfrýjað og verður flutt í Hæstarétti í október.

Lokaleit verður um helgina

Maðurinn sem saknað er eftir sjóslys á Viðeyjarsundi er talinn af. Í slysinu fórst einnig kona, en hjón með 10 ára dreng björguðust. Lögregla tók af þeim skýrslur í gær. Formlegri leit að líki mannsins verður ekki haldið áfram í dag.

Útgerðir íhuga málssókn

Á næstu vikum skýrist hvort útgerðir fara í mál við olíufélögin til greiðslu skaðabóta vegna ólöglegs samráðs þeirra. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ), segir mögulega málshöfðun hafa verið til skoðunar innan sambandsins, en ákvörðun um hana sé á hendi félaganna sjálfra.

Ekkert lögbann á bók

Sýslumaðurinn í Reykjavík vísaði í gær frá lögbannsbeiðni sem sett hafði verið fram á útgáfu bókarinnar Fiskisagan flýgur frá bókaútgáfunni Skruddu. Í úrskurðinum er vísað til þess að bókin sé komin út og sá gjörningur verði ekki aftur tekinn.

Viðræður hafnar um Enska boltann

Gunnar Björn Þórhallsson, framkvæmdastjóri Tengis á Akureyri segist ekki vita hvar eða hvernig Íslenska sjónvarpsfélagið afhendi Tengi sjónvarpsmerki félagsins vegna Enska boltans. Viðræður séu hafnar og hafi Tengir svarað spurningalista félagsins fyrir helgi. Nú sé beðið eftir viðbrögðum. 

Viðtölum lokið

Lokið hefur verið við að taka viðtöl við starfsmenn Menntaskólans á Ísafirði vegna útttektar Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands á stjórnunarháttum og samskiptum innan menntaskólans. Þetta kemur fram á fréttavefnum bb.is.

Nýjar reglur um lóðaúthlutun

Bæjarstjórn Kópavogs náði í gær samkomulagi um nýjar reglur um lóðaúthlutun en síðasta úthlutun var harðlega gagnrýnd fyrir ógegnsæi og klíkuskap. Þá bárust 2300 umsóknir um lóðir við Elliðavatn en bæjarráð handvaldi þá tvö hundruð sem fengu lóðirnar.

Aðildarumsókn ekkert einkamál

"Eðlilega þrýsta Norðurlandaráðherrarnir á okkur. Það var samkomulag um að Ísland færi í þetta ekki aðeins fyrir okkar hönd heldur einnig fyrir hönd allra Norðurlandanna. Þetta eru því líka hagsmunir annarra en okkar," segir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra um aðildarumsókn Íslendinga að öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.

Bíll fór út af á Reykjanesbraut

Bíll fór út af veginum á Strandheiði á Reykjanesbraut, mitt á milli Voga og Kúagerðis, fyrir stundu að sögn lögreglunnar í Keflavík. Talið er að ökumaðurinn sé slasaður en ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um tildrög óhappsins að svo stöddu.

Óbreytt áætlun Iceland Express

Pálmi Haraldsson, einn aðaleiganda Iceland Express og Sterling, segir að ákvörðun Iceland Express um að fljúga til sex nýrra ákvörðunarstaða í Evrópu standi óbreytt þótt Sterling verði selt til FL Group. FL Group ætlar að taka upp viðræður við eignarhaldsfélagið Fons um kaup á Sterling-lágjaldaflugfélaginu, því fjórða stærsta í heimi.

Sjá næstu 50 fréttir