Innlent

Enn eitt reiðarslagið

Rækjuveiðar og vinnsla hér á landi er á hröðu undanhaldi og er nú ekki nema brot af því sem var fyrir tíu árum. Markaðsmál og ástand rækjustofnana lofar heldur ekki góðu með framhaldið. Enn eitt reiðarslagið ríður nú yfir rækjuumsvifin hér á landi þar sem tollar af rækju frá Kanada til Evrópusambandsins hafa verið lækkaðir til muna en kanadíska rækjan keppir við íslensku rækjuna á þeim markaði. Heimsaflinn á kaldsjávarrækju hefur líka aukist upp á síðkastið vegna mikilla veiða við Kanada og Grænland sem hefur valdið verðlækkun á heimsmarkaði. Við það bætist svo að úthafsrækjuaflinn hér við land hefur hríðfallið úr 18 þúsund tonnum á næst síðasta fiskveiðiári niður í u.þ.b. fimm þúsund tonn á nýliðnu fiskveiðiári. Næst síðasta ár var auk þess lélegasta veiðiár í langan tíma. Til samanburðar má geta þess að úthafsrækjuaflinn var um 60 þúsund tonn fyrir tíu árum, eða meira en sexfalt meiri en í fyrra. Nú stunda aðeins tíu til fimmtán skip úthafsrækjuveiðar en voru 50 í fyrra og mun fleiri fyrir nokkrum árum. Minnkandi afli á togtíma, lækkandi heimsmarkaðsverð og ört hækkandi olíuverð hefur valdið því að margar útgerðir telja veiðarnar ekki svara kostnaði og hafa því hætt þeim. Útlitið er heldur ekki gott því samkvæmt stofnmælingum Hafrannsóknarstofnunar á úthafsrækjustofninum í sumar sýna bráðabirgðaniðurstöður að nýliðun í stofninum sé mjög slök, eða aðeins fjórðungur þess sem mældist í fyrra sem reyndar var heldur yfir meðallagi. Til að mæta minnkandi afla gripu margar rækjuverksmiðjur til þess að flytja inn heilfrysta rækju til fullvinnslu hér en það þykir nú vart svara kostnaði vegna lækkandi afurðaverðs á heimsmarkaði. Síðustu misseri hefur nokkrum verksmiðjum verið lokað, nú síðast í Súðavík fyrir skömmu. Og sé litið út fyrir 200 mílna fiskveiðilögsöguna er ástandið síður en svo betra. Í fyrra veiddust 400 tonn af utankvótarækju á Dhohrnbanka en aðeins 30 tonn í ár og einungis einn rækjutogari stundar nú rækjuveiðar á Flæmingjagrunni en þeir skiptu tugum fyrir nokkrum árum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×