Fleiri fréttir

Ríkið hirðir allt upp í 85%

Ellilífeyrisþegar sem freistast til að láta atvinnuauglýsingar lokka sig út á vinnumarkaðinn ættu að hugsa sig vandlega um. Ríkið hirðir nefnilega allt upp í 85 prósent launanna, í formi skatta og bótaskerðinga.

Mikil fjöldi átröskunarsjúklinga

Þriðja hvern dag kemur nýr átröskunarsjúklingur á bráðavakt geðdeildar Landspítalans. Í haust stendur til að setja á stofn sérstaka göngudeild fyrir fólk með átröskun. 

Ekkert innanlandsflug í morgun

Innanlandsflug Flugfélags Íslands hefur legið niðri í morgun, en því var hætt eftir hádegi í gær vegna hættu á ísingu í lofti. Reynt verður að hefja flug til nokkurra staða upp úr klukkan níu en víðast hvar á að kanna skilyrði nánar um ellefuleytið.

Sjómælingaskip tekur þátt í leit

Sjómælingaskipið Baldur frá Landhelgisgæslunni mun í dag taka þátt í leitinni að Friðriki Ásgeiri Hermannssyni, sem saknað hefur verið frá því á sunnudag, eftir sjóslysið á sundunum. Skipið er búið botnsjám sem gætu komið að gagni. Leit á sjó, sem gerð var í gærkvöldi, bar engan árangur og heldur ekki leit í fjörunni í gær þar sem á fjórða tug vina og ættingja Friðriks leitaði.

Ók traktor inn í tölvuverslun

Óvenju bíræfinn þjófur ók stolinni traktorsgröfu inn í tölvuverslun við Bæjarlind í Kópavogi undir morgun og braut í leiðinni dyraumbúnað og stóran sýningarglugga. Að því búnu lét hann greipar sópa í verlsuninni og hvarf á brott. Ekki er enn vitað hversu miklu hann stal né hver eða hverjir voru þarna á ferð, en rannsóknarlögreglumenn eru á vettvangi.

Spá hækkun stýrivaxta

Greiningardeildir Landsbankans og KB banka spá því báðar að Seðlabankinn muni á næstunni hækka stýrivexti í kjölfar fregna af vaxandi verðbólgu. Þar sem verðbólgan er komin yfir þolmörk verðbólgumarkmiðs bankans þarf hann að gera ríkisstjórninni formlega grein fyrir stöðunni. Það hefur tvisvar gerst áður, í síðara skiptið í febrúar á þessu ári, og í bæði skiptin fylgdu stýrivaxtahækkanir í kjölfarið.

Þjóðarútgjöld hafi aukist um 11,8%

Þjóðarútgjöld eru talin hafa vaxið um 11,8 prósent að raungildi á 2. ársfjórðungi þessa árs frá sama tíma árið áður, eftir því sem fram kemur í upplýsingum frá Hagstofu Íslands. Landsframleiðslan jókst hins vegar mun minna vegna mikils innflutnings eða um 6,8 prósent.

Styrkir saltvinnslu og menntun

Pétur Björnsson, fyrrverandi forstjóri og eigandi Vífilfells, hefur veitt Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna í Gíneu-Bissá fimm milljóna króna styrk. Í tilkynningu frá UNICEF hér á landi kemur fram að fénu verði varið alfarið til verkefnis sem miðar að því að styrkja framleiðslu joðbætts salts í landinu og um leið veita stúlkum og ungum mæðrum menntun.

Flutningstími sjúkra muni lengjast

Það er ekki og verður aldrei valkostur, samkvæmt ákalli frá Norðurlandi, að lengja flutningstíma bráðveikra og slasaðra af landsbyggðinni á hátæknisjúkrahús í Reykjavík, með því að leggja Reykjavíkurflugvöll niður.

Stefna olíufélaga þingfest

Stefna olíufélaganna Skeljungs og Olíuverslunar Íslands á hendur samkeppnisyfirvöldum var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur klukkan tíu í morgun. Stefna Olíufélags Íslands hefur þegar verið þingfest.

GR vill stækka völl á Korpu

Golfklúbbur Reykjavíkur vill stækka golfvöllinn á Korpu úr 18 holum í 27. Til greina kemur að borgin byggi á fyrstu braut.

Farið yfir ákæruliði í Baugsmáli

Fyrirtaka í Baugsmálinu verður klukkan hálftvö í dag og hefur verið tekinn frá tími í dómsal til klukkan hálffimm. Þar verður meðal annars farið yfir átján ákæruliði sem dómendur í málinu telja að annmarkar gætu verið á. Héraðsdómur Reykjavíkur sendi bæði ákæruvaldinu og ákærðu bréf 26. ágúst síðastliðinn þar sem athygli var vakin á hugsanlegum annmörkum sem gætu orðið til þess að dómur verði ekki kveðinn upp um hluta ákærunnar.

Nýr framkvæmdastjóri hjá RKÍ

Kristján Sturluson, félagsráðgjafi og sálfræðingur, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands og tekur við því starfi af Sigrúnu Árnadóttur sem gegnt hefur starfinu síðustu 12 ár. Kristján starfaði nú síðast sem framkvæmdastjóri starfsmanna- og umhverfissviðs hjá Norðuráli ehf. en er enginn nýgræðingur á sviði Rauða krossins, hefur verið sjálfboðaliði, deildarformaður, stjórnarmaður og skrifstofustjóri innanlandsskrifstofu.

Tjón talið nema hundruðum þúsunda

Óvenju bíræfinn þjófur ók stolinni traktorsgröfu að tölvuverslun við Bæjarlind í Kópavogi undir morgun og braut svo dyraumbúnað og stóran sýningarglugga með rimlum fyrir með afturskóflunni. Tjón er talið nema hundruðum þúsunda.

Engar séraðgerðir vegna verðbólgu

Ríkisstjórnin grípur ekki til sérstakra aðgerða þótt verðbólga sé meiri en hún hefur verið undanfarna 40 mánuði og hafi farið fram úr þolmörkum Seðlabankans.

Leggur fram fé vegna hamfara

Ríkisstjórn Íslands ætlar að leggja til 31 milljón króna í fjársöfnun fyrir fórnarlömb fellibylsins Katrínar. Peningarnir verða lagðir í sjóð sem George Bush eldri og Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforsetar, stýra.

Áströskunartilfellum fjölgar mikið

Anorexíutilfellum hefur fjölgað um 50 prósent milli ára síðustu árin. Ekkert fjármagn er beinlínis ætlað í meðferð átröskunarsjúklinga í heilbrigðiskerfinu.

25 bátar frá Snarfara í leit

Sjómælingaskipið Baldur frá Landhelgisgæslunni mun í dag taka þátt í leitinni að Friðriki Ásgeiri Hermannssyni, sem saknað hefur verið frá því á sunnudag eftir sjóslysið á sundunum. Á sunnudag tóku 25 bátar frá sportbátafélaginu Snarfara þátt í leitinni.

Tæp 25% bíla stóðust ekki skoðun

Tæplega 120 þúsund bílar fóru í aðalskoðun á síðasta ári. 24,4 prósent af þeim stóðust ekki skoðun. Þetta kemur fram í nýútkominni ársskýrslu Umferðarstofu. Alls voru tæp 236 þúsund ökutæki á skrá í fyrra sem er aukning um 12.500 ökutæki frá árinu á undan. Nýskráð ökutæki voru rétt rúm 19 þúsund og voru rúm 16 þúsund þeirra ný. Meðalaldur fólksbíla hér á landi er 9,9 ár.

Matsmenn skoði krufningargögn

Hæstiréttur sneri úrskurði Hérðasdóms Reykjavíkur og segir að kalla beri til tvo matsmenn í réttarmeinafræðum til þess að meta gögn úr krufningu manns sem lést af völdum hnefahöggs á Ásláki í Mosfellsbæ á síðasta ári. Héraðsdómur hafnaði beiðni verjanda þess, sem er grunaður um verknaðinn, um dómkvadda matsmenn.

Hugað verði að Vesturlandsvegi

Ekki verður farið í að tvöfalda um eins kílómetra langan kafla af Vesturlandsvegi frá Skarhólabraut að Langatanga í Mosfellsbæ fyrr en eftir þrjú til fjögur ár vegna fjárskorts. Bæjarstjórn Mosfellsbæjar er mjög ósátt við þetta og finnst með ólíkindum að þessi fjölfarni vegur skuli sitja á hakanum þegar verið er að útdeilda fjármagni vegna sölu Símans.

86% jákvæð gagnvart Umferðarstofu

86 prósent þjóðarinnar eru jákvæð gagnvart Umferðarstofu samkvæmt skoðanakönnun Gallups. 4,9 prósent voru neikvæð og 9,1 hvorki jákvæð né neikvæð. Þá telja tæp 78 prósent að Umferðarstofa standi sig vel í umferðaröryggismálum en 8 prósent illa og 14 prósent hvorki vel né illa.

Ábyrgðin hjá ríkisvaldinu

Hagfræðingur Alþýðusambands Íslands segir að verðbólgan sé að stórum hluta tilkomin vegna aðhaldsleysis í ríkisfjármálum. Tímasetningar á framkvæmdum hafi verið rangar. Annar hagfræðingur segir að þenslan sé ekki lengur aðeins bundin við olíuverð og íbúðaverð heldur sé að breiðast út um hagkerfið. </font /></b />

Launahækkanir óæskilegar

Forstöðumaður Hagfræðistofnunar segir að það versta sem verkalýðshreyfingin geti gert fyrir launafólk er að krefjast hækkunar launa við endurskoðun kjarasamninga. Það jyki verðbólgu og kæmi á víxlverkun launa og verðlags og kaupmáttaraukningin varði skammt. </font /></b />

Vill að ákæra í Baugsmáli standi

Fyrirtöku í Baugsmálinu, þar sem fjallað var átján ákæruliði sem dómendur í málinu hafa gert athugasemdir við, lauk nú fyrir stundu. Þar fór Jón H. Snorrason saksóknari ákæruvaldsins yfir þessa átján ákæruliði lið fyrir lið og tiltók fjölda dóma máli sínu til stuðnings. Hann krefst þess að ákæran standi.

Styður hugmyndir um flutning flugs

Bæjarmálafélag Frjálslynda flokksins í Reykjanesbæ lýsir stuðningi við yfirlýsingu annarra stjórnmálaafla í sveitarfélaginu um að innanlandsflugið og skyld starfsemi verði flutt frá Vatnsmýrinni í Reykjavík til Keflavíkurflugvallar. Það muni styrkja atvinnulíf og samgöngur í Reykjanesbæ.

Úr níunda bekk beint í MA

Menntaskólinn á Akureyri var settur í dag með athöfn í Kvosinni, sal skólans á Hólum. Jón Már Héðinsson skólameistari fjallaði um skólaárið fram undan og gat um margvíslega nýbreytni í starfinu og spennandi markmið. Hann sagði að í skólanum yrðu í vetur fleiri nemendur en nokkru sinni áður, um 690 talsins. Þeirra á meðal eru 17 nemendur sem koma í skólann rakleitt úr 9. bekk grunnskóla.

1,8% atvinnuleysi í ágúst

Í ágústmánuði síðastliðnum voru skráðir 65.550 atvinnuleysisdagar á landinu öllu sem jafngilda því að 2.851 manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum. Þessar tölur jafngilda 1,8 prósenta atvinnuleysi, en áætlaður mannafli á vinnumarkaði samkvæmt áætlun ffnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis í ágúst 2005 er 156.683.

Fjárstuðningur við Bandaríkin

Íslenska ríkið mun veita Bandaríkjamönnum hálfa milljón dala, 31 milljón króna, í fjárhagsaðstoð til enduruppbyggingar í þeim ríkjum sem verst urðu úti í fellibylnum Katrínu. Þetta var ákveðið á fundi ríkisstjórnarinnar í gær.

Íslandsmiðill og Tengir fá boltann

Magnús Ragnarsson, framkvæmdastjóri Íslenska sjónvarpsfélagsins, segir að engin beiðni liggi fyrir frá Digital Ísland um dreifingu á Enska boltanum. "Komi sú beiðni getum við óskað þess að okkar myndlykill verði notaður."

Rökleysa og þvættingur

Samtök myndrétthafa á Íslandi eru harðorðir vegna niðurstöðu lögmanns Neytendasamtakanna um áskriftir að SKY sjónvarpsstöðvunum á Íslandi þar sem kemur fram að Íslendingar sem hafi slíka áskrift séu ekki að brjóta gegn reglum.

Ódýrari netsími

Hive býður nú viðskiptavinum sínum upp á símaþjónustu til útlanda með nettækni. "Hive netsími er fyrsta skref okkar inn á símamarkaðinn með því að bjóða útlandasímtöl til viðskiptavina á um það bil fjórðung af því verði sem hefur verið við lýði," segir Arnþór Halldórsson, framkvæmdastjóri Hive. 

Samið við Eimskip um Herjólf

Samningaviðræður um rekstur Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs eru að hefjast. Samið verður við Eimskip sem átti lægstu tilboðin. Samskip, sem nú rekur Herjólf, átti næst lægstu tilboðin. Frávikstilboðum Samskipa var vísað frá. Ferðum Herjólfs fjölgar verulega.

Ekki öflugt öryggistæki fyrir alla

Það skiptir máli við hvaða símafyrirtæki Íslendingar skipta með tilliti til þess hvort GSM-síminn sé öflugt öryggistæki eða ekki. Neyðarlínan getur einungis staðsett þann sem hringir, samstundis og með nokkurri nákvæmi ef um er að ræða viðskiptavin Símans.

Huga þarf að fjöldaútkalli kafara

Jónas Hallsson yfirlögregluþjónn í Reykjavík segir lögreglu, slökkvilið og björgunarsveitir vel skipaðar köfurum til að bregðast við slysum á eða í vatni.

Morðmáli frestað á ný

Mál parsins sem grunað er um að hafa myrt Gísla Þorkelsson, 54 ára gamlan athafnamann, í Jóhannesarborg í Suður-Afríku í sumar, var tekið fyrir í dómi í Boksburg í gær og frestað fram í næsta mánuð.

Með nauðgunarlyf í plasthylkjum

Tveir 25 ára gamlir menn voru dæmdir í mánaðarfangelsi og til að sæta upptöku á rúmum fimmtán grömmum af amfetamíni, tæpu grammi af kókaíni og 38 millilítrum af smjörsýru. Dómurinn, sem var kveðinn upp í Héraðsdómi Suðurlands, var skilorðsbundinn í þrjú ár.

Leggur fram fé vegna Katrínar

Ríkisstjórn Íslands ætlar að leggja fram 31 milljón króna í fjársöfnun fyrir fórnarlömb fellibylsins Katrínar. Peningarnir verða lagðir í sjóð sem George Bush eldri og Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforsetar, stýra.

Leita á 30 hektara svæði í sjó

Sjávarbotninn á leitarsvæðinu vegna skemmtibátsins sem fórst á Viðeyjarsundi um helgina mun víðast hvar auðveldur yfirferðar þó á honum séu einnig erfið svæði. Leit heldur áfram í dag, sem og rannsókn á tildrögum slyssins.

Bændur mega áfram marka fé

Ekki verður hætt að marka fé þrátt fyrir gildistöku nýrrar reglugerðar um búfjármerkingar, en hún gerir ráð fyrir því að sauðfjárbændur og kúabændur merki gripi sína með nýjum plastmerkjum. Sauðfjárbóndi sem blaðið hafði tal af óttaðist að með nýjum merkjum myndi þúsund ára hefð um mörkun fjár leggjast af.

Vilja sektarúrskurð ómerktan

Þingfest voru í gærmorgun mál olíufélaganna Skeljungs og Olís á hendur samkeppnisyfirvöldum í Héraðsdómi Reykjavíkur. Í júní var þingfest sambærilegt mál Kers. Stefnur félaganna eru keimlíkar, en þau vilja freista þess að fá felldan úr gildi úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnisyfirvalda um samráð þeirra.

Verðbólga þurrkar út launahækkun

Verðbólgan hefur þurrkað út þriggja prósenta launahækkun sem almennir kjarasamningar tryggðu launþegum um síðustu áramót.

Höfundur og útgefandi deila

Tekist var á um tryggingar hjá Sýslumanninum í Reykjavík í gær vegna lögbannsbeiðni á bókina Fiskisagan flýgur frá Skruddu. Kristinn H. Benediktsson ljósmyndari, annar höfunda bókarinnar, fór fram á lögbannið þar sem hann taldi brotið á höfundarrétti sínum í frágangi mynda í bókina.

Tekist á í Baugsmáli

Saksóknari fór fram á það við aukaþinghald í Baugsmálinu í dag að öll fjörutíu ákæruatriðin yfir sakborningum myndu standa. Verjendur telja hins vegar ekkert annað í stöðunni en að vísa ákærunum frá enda hafi dómarar bent á annmarka á þeim.

Guðmundur Kjærnested jarðsettur

Útför Guðmundar Kjærnested, fyrrverandi skipherra hjá Landhelgisgæslunni, var gerð frá Hallgrímskirkju í dag. Gamlir starfsfélagar Guðmundar, skipherrar, flugmenn, vélstjórar og loftskeytamenn, báru kistu hans úr kirkju. Sjö starfsmenn Landhelgisgæslunnar stóðu heiðursvörð við útförina, en Guðmundur varð þjóðhetja fyrir framgöngu sína í þorskastríðunum við Breta 1972 og 1975. Hann varð 82 ára.

Sjá næstu 50 fréttir