Vestfirðingar upplifa meiri hættu 14. september 2005 00:01 „
Vestfirðingar upplifa mikla áhættu vegna reglubundinna ferða sinna að vetrarlagi, mun meiri en íbúar annarra landshluta og skera sig í raun alveg úr“. Þannig komast sérfræðingar Rannsóknastofnunar Háskólans á Akureyri að orði í nýlegri skýrslu um samgöngur á Vestfjörðum sem unnin var fyrir sveitarfélögin í Barðastrandarsýslu. Þetta kemur fram á vefsíðu Bæjarins besta á Ísafirði í dag. Í skýrslunni segir að almennt upplifi Vestfirðingar mesta áhættu vegna reglubundinna ferða sinna eða fjórum prósentustigum hærra en landsmeðaltalið og hæsta gildi fyrir fjóra af þessum sjö þáttum. Það sé hins vegar í þremur áhættuþáttum sem Vestfirðir skera sig úr. þ.e. hvað varðar ófærð, hættu af skriðuföllum eða snjóflóðum og að vegirnir séu viðsjárverðir. Þá er áhætta af hvassviðri og sviptivindum með mesta tíðni meðal Vestfirðinga og þeir koma næst verst út hvað varðar áhættu af sökum hálku. „Þetta verður að teljast mjög sláandi niðurstaða og sýnir hvað Vestfirðingar upplifa aðstæður sínar slæmar til ferða að vetrarlagi,“ segir í skýrslunni. Skýrsluhöfundar leggja til endurbætur í vegakerfinu sem miði að því að færa vegina niður á láglendið en þær komi mest til móts við slæma upplifun á vegakerfinu. Skýrsluhöfundar nefna endurbætur á Djúpvegi og Vestfjarðarvegi sem nú eru í deiglunni sem mikilvæg skref til að draga úr neikvæðri upplifun vegfarenda. Vafalaust á það við um ýmsa aðra vegi sem skýrslan tekur ekki til, og má taka nærtækt dæmi af vegunum um Óshlíð og Súðavíkurhlíð þar sem er mikil og regluleg umferð og vaxandi áhyggjur af öryggismálum.
Fréttir Innlent Mest lesið Upplifir að þau hafi verið leidd í gildru Innlent „Alvarlegasta árásin gegn dönskum innviðum til þessa“ Erlent Harmsaga fjölskyldunnar ekkert einsdæmi Innlent Fóru með fleipur um einhverfu og bóluefni Erlent Hrædd um að brennuvargur gangi laus í bænum Innlent Stefnir í lokað þinghald að beiðni mæðgnanna Innlent „Það er betlmenning og allir eiga að fá allt frítt“ Viðskipti innlent Bein útsending: Trump ávarpar allsherjarþingið Erlent Óttaslegnir eldri borgarar eftir endurtekna eldsvoða Innlent Gagnrýndi allt og alla í langri og slitróttri ræðu Erlent Fleiri fréttir Inga eigi að kalla saman þjóðaröryggisráð þegar í stað Skólameistarar styðja ekki breytingar ráðherra Stefnir í lokað þinghald að beiðni mæðgnanna Harmsaga fjölskyldunnar ekkert einsdæmi Örlög hjartanna enn óráðin Troðfyllti stangirnar af amfetamínbasa Forsetahjónin á leið til Finnlands Benti á mikilvægi fyrirmynda þegar kæmi að jafnréttismálum Ekki lengur framsal á fullveldi heldur neytendavernd Mæla hiklaust með lyfinu á meðgöngu ef þörf þykir á Hrædd um að brennuvargur gangi laus í bænum Starfandi forsætisráðherra lítur drónabrölt „grafalvarlegum augum“ Vara við svikapóstum frá Ríkisskattstjóra Dularfullir drónar og umdeildar kenningar um einhverfu og parasetamól Telja sig vita hverjir grímuklæddu mennirnir eru Ferðum aflýst og einni vél snúið við vegna drónaumferðar í Kaupmannahöfn Ætlar að fækka sveitarfélögum fyrir kosningar Aðeins helmingur telur sig við góða heilsu Rannsaka húsbrot og eldsvoða á Sauðárkróki Krefur Reykjavíkurborg um frekari svör vegna fundargerðar Upplifir að þau hafi verið leidd í gildru Rannsaka mál sex grímuklæddra manna sem réðust á einn Óttaslegnir eldri borgarar eftir endurtekna eldsvoða Vill frekar fjölga lögreglumönnum heldur en lögreglustöðvum Maðurinn sem lýst var eftir fundinn Björg ætlar að láta að sér kveða í Viðreisn Þrettán konur höfðu samband svo að nauðgarinn færi í fangelsi Þrír enn í gæsluvarðhaldi vegna umfangsmikils fíkniefnamáls Löng bið eftir að nauðgari hefji afplánun og betlmenning Sleppt lausum eftir yfirheyrslu Sjá meira