Fleiri fréttir

Sakborningar ítrekuðu sakleysi

Ákæra gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni forstjóra Baugs og fimm öðrum var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Verjandi hans telur að málið taki allt að fjórar vikur í flutningi fyrir dómi. Stefnt er að því að ljúka meðferð málsins fyrir áramót. Fjölskipaður dómur dæmir í málinu í undirrétti.

Greiðslukortafærslur birtar

Við þingfestingu Baugsmálsins í gær lagði ákæruvaldið fram greiðslukortafærslur og töflur yfir úttektir ákærðra, en þær hafa ekki verið birtar áður.

Skýringar á öllum ákæruatriðum

Breska ráðgjafafyrirtækið, Capcon-Argen, segir eðlilegar skýringar finnast á öllum ákæruatriðum í Baugsmálinu. Breska fyrirtækið kynnti í gær niðurstöður rannsóknar sem fyrirtækið hefur gert á öllum fjörutíu töluliðum ákærunnar í Baugsmálinu.

Getur skapað tíu til fimmtán störf

"Það eru komnir fimm þúsund rúmmetrar af kalkþörungi í land og þetta lofar allt góðu þrátt fyrir smá byrjunarörðugleika," segir Guðmundur Magnússon verksmiðjustjóri kalkþörungarverksmiðjunnar á Bíldudal.

Ásgeir hafnaði þingsæti

Ásgeir Friðgeirsson, fyrsti varaþingmaður Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, hefur ákveðið að taka ekki sæti á Alþingi í haust þegar Guðmundur Árni Stefánsson tekur við sendiherraembætti.

Berst fyrir fatlaða og íþróttir

"Mér hefur alltaf þótt þetta áhugavert og er fullur vilja til að starfa þarna," segir Valdimar Leó Friðriksson sem tekur sæti Guðmundar Árna Stefánssonar á Alþingi í haust þegar sá síðarnefndi heldur til Svíþjóðar sem sendiherra Íslands.

Sérframboð hjá Vinstri - grænum

Vinstrihreyfingin - grænt framboð mun bjóða fram lista í eigin nafni fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Það er því ljóst að R-listinn er liðinn undir lok. Á fjölmennum félagsfundi hreyfingarinnar í gærkvöldi hljóðaði tillaga stjórnar upp á að slíta R-listasamstarfinu og var sú tillaga samþykkt með um 70 prósentum atkvæða.

Ryðja þurfi réttinn fyrir Baugsmál

Brynjar Níelsson hæstaréttarlögmaður telur að ef Baugsmálið fari fyrir Hæstarétt þurfi að ryðja réttinn og fá nýja dómara. Hann segir Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómara vera vanhæfan og sömuleiðis alla samstarfsmenn hans í réttinum. Þetta sagði Brynjar í þættinum Íslandi í dag í gær. Feðgarnir Jóhannes Jónsson og Jón Ásgeir Jóhannesson sögðu í <em>Fréttablaðinu</em> um helgina að Jón Steinar hefði átt beina aðild að því að farið var að rannsaka Baug.

Leita ferðamanns á Vestfjörðum

Allar björgunarsveitir við Ísafjarðardjúp eru í iðbragðsstöðu og þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út vegna 23 ára Þjóðverja sem varð viðskila við gönguhóp sinn á Hornströndum í gær. Talið er að hópurinn hafi verið á leið frá Hælavík yfir í Hornvík þegar maðurinn týndist, en mikil þoka var á svæðinu.

Talinn hafa berað kynfæri sín

Karlmaður um þrítugt var handtekinn í Reykjavík í gærkvöldi grunaður um að hafa berað kynfæri sín fyrir framan tvær níu ára gamlar stúlkur í suðvesturhluta borgarinnar í gær. Ekki er enn ljóst hvort um sama mann hafi verið að ræða en lögreglan rannsakar málið.

Vilhelm skilaði mestu aflaverðmæti

Vilhelm Þorsteinsson EA skilaði langmestu aflaverðmæti allra íslenskra skipa á árinu 2004 og nam það tæpum 1,35 milljörðum króna. Hákon EA er í öðru sæti með landaðan afla að verðmæti tæplega 1,1 milljarður króna en tvö efstu skipin eru vinnsluskip á uppsjávarveiðum.

Mótmæla brottvísun mótmælenda

Brottvísun rúmlega 20 mótmælenda gegn Kárahnjúkavirkjun og álveri Alcoa við Reyðarfjörð var harðlega mótmælt á félagsfundi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs sem haldinn var í gærkvöldi. Var þess krafist að sérhver einstaklingur, án tillits til skoðana og þjóðernis, nyti þeirra mannréttinda að fá að tjá hug sinn. Þá fordæmdi fundurinn framgöngu dómsmálaráðherra, ríkislögreglustjóra og Útlendingastofnunar í máli mótmælendanna.

Leita Þjóðverja á Hornströndum

Björgunarsveitir við Ísafjarðardjúp eru nú á leið á Hornstrandir til að leita að 23 ára gömlum Þjóðverja. Þyrla Landhelgisgæslunnar er einnig á leiðinni vestur með leitarhunda að sunnan.

Sérfræðingar komnir til landsins

Sérfræðingar á vegum bandaríska hersins eru komnir til landsins vegna rannsóknar á morðinu sem framið var á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli í fyrrinótt. Tvítugur varnarliðsmaður hefur verið handtekinn, grunaður um morðið. Íslensk lögregluyfirvöld og rannsóknardeild bandaríska sjóhersins rannsaka málið með bandarísku sérfræðingunum.

Mótmæla hækkun leikskólagjalda

Stúdentar eru ævareiðir vegna komandi hækkunar leikskólagjalda hjá foreldrum þar sem annað er í námi. Stjórn Stúdentaráðs Háskóla Íslands segir vel koma til greina að fólk skrái sig úr námi eða úr sambúð vegna þessa.

Jafna réttindi samkynhneigðra

Réttindi samkynhneiðgra til fjölskylduþátttöku verða þau sömu og hjá gagnkynhneigðum miðað við frumvarp sem ríkisstjórnin ætlar að leggja fram í haust. Þetta var ákveðið á ríkisstjórnarfundi í dag. Þá munu samkynhneigð pör í staðfestri samvist fá rétt til að frumættleiða börn en í dag er samkynhneigðum einstaklingi í staðfestri samvist aðeins heimilt að stjúpættleiða barn maka sína.

Fylgi Sjálfstæðisflokks mest

Í skoðanakönnunn Plússins um hvaða flokk Reykvíkingar hyggist kjósa í komandi borgarstjórnarkosningum kemur í ljós að 37 prósent kjósa Sjálfstæðisflokkinn, 22 prósent Samfylkinguna, 8 prósent Vinstri - græna og aðeins 3 prósent ætla að kjósa Framsóknarflokkinn og enn færri, eða 1 prósent, ætla að kjósa Frjálslynda.

Einn lést vegna rafmagnsbruna

Eitt dauðsfall varð af völdum rafmagnsbruna á síðasta ári, en það er í fyrsta sinn síðan 1996 sem mannslát verður vegna rafmagnsbruna á Íslandi. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu Neytendastofu um rafmagnsbruna árið 2004.

Útiloka ekki samstarf í borginni

R-listinn virðist liðinn undir lok en félagsfundur Vinstri - grænna í Reykjavík samþykkti í gær að bjóða fram undir eigin nafni. Forystumenn Samfylkingarinnar og Framsóknarflokksins í Reykjavík útiloka þó ekki samstarf flokkanna undir merkjum R-listans fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Davíð Oddsson syrgir ekki endalok R-listans.

Eðlilegt að dómarar vikju

Eðlilegt væri að allir hæstaréttardómarar vékju í kjölfar tengsla þeirra við Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómara þegar Baugsmálið verður tekið fyrir í Hæstarétti. Þetta sagði Brynjars Níelssonar hæstaréttarlögmanns í þættinum Íslandi í dag í gær.

Beraði sig fyrir framan stúlkur

Lögreglan í Reykjavík leitar nú karlmanns sem beraði kynfæri sín fyrir framan tvær ungar stúlkur í Reykjavík í gær.

Björgunarbátur tekur þátt í leit

Leit stendur nú yfir að 23 ára Þjóðverja sem varð viðskila við gönguhóp sinn á Hornströndum í gær. Þyrla Landhelgisgæslunnar lagði af stað um eittleytið með 9 manns um borð og fjóra leitarhunda. Björgunarbátur frá Ísafirði er á leiðinni með 25 manns um borð og nú þegar leita björgunarmenn sem og ferðamenn að manninum.

Maður sem leitað var að fundinn

23 ára Þjóðverji sem leitað var að á Hornströndum eftir að hann varð viðskila við gönguhóp sinn þar í gær er fundinn. Ekkert amaði að honum. Að sögn lögreglu á Ísafirði sagðist maðurinn hafa ákveðið að skoða sig um á svæðinu og hitta svo ferðafélaga sína í Hornvík og var hann því mjög hissa þegar hann heyrði að hans væri leitað.

Afli dregst saman um 50% milli ára

Fiskaflinn í júlí 2005 var 87 þúsund tonn en var 172 þúsund tonn í júlí 2004. Aflinn dregst því saman um tæplega 50 prósent milli ára. Í tilkynningu frá Fiskistofu segir að þar muni mest um 58 þúsund tonna samdrátt í kolmunnaafla í júlí 2005 frá sama tíma fyrir ári og að engin loðnuveiði hafi verið í nýliðnum júlí sem teljist óvenjulegt.

Björgunarbátum kastað út úr TF-SYN

Áhöfn TF-SYN æfði sig í gær að kasta út björgunarbátum nálægt varðskipinu Óðni. Eins og kunnugt er fylgir TF-SYN stundum þyrlu Landhelgisgæslunnar þegar hún fer í löng björgunar- eða sjúkraflug og þá er gott öryggisins vegna að TF-SYN sé þannig úr garði gerð að hægt sé að kasta út úr henni björgunarbátum.

Frábært fordæmi

Frábært fordæmi segir formaður Kjalar, stéttarfélags í almannaþjónustu, um þá starfsmannastefnu að ráða eldra fólk til starfa. Húsasmiðjan hefur stigið það skref að auglýsa eftir starfskröftum úr þeim aldurshópi. </font /></b />

Eitt stærsta mál dómsins

"Það má leiða líkum að því að þetta verði eitt stærsta málið sem farið hefur hér fram," segir Helgi I. Jónsson, dómsstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur.

HM tölvuforrita í hraðskák í HR

Nú rétt upp úr klukkan þrjú hófst heimsmeistarakeppni tölvuforrita í hraðskák í Háskólanum í Reykjavík. Þar keppa 8 af sterkustu skákforritum heims um titilinn en forritin eru keyrð á afar öflugum tölvum og fá 7 mínútur til að knýja fram sigur í hverri skák. Núverandi heimsmeistari, þýska forritið Shredder, freistar þess að verja titil sinn, en búist er við spennandi keppni þar sem öflugustu tölvurnar geta reiknað milljónir leikja á sekúndu.

Björk vill breyta strætó

Stjórnarformaður Strætó bs. ætlar að leggja fram tillögur um breytingar á ferðum strætisvagna á stjórnarfundi á föstudag. Meðal annars að ekið verði til miðnættis á öllum leiðum í þágu vaktavinnufólks. </font /></b />

Vilja efla umhverfisvæna tækni

Norrænu ríkin hyggjast efla samvinnu um að styðja þróun og nýtingu umhverfisvænnar tækni segir í fréttatilkynningu frá umhverfisráðuneytinu. Umhverfisráðherrar Norðurlanda samþykktu þetta á fundi sínum í Ilulissat á Grænlandi í gær. Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra sat fundinn fyrir Íslands hönd.

Hermaðurinn enn í haldi

Maðurinn sem grunaður er um að hafa myrt konu á varnarliðssvæðinu á Keflavíkurflugvelli í fyrrakvöld, átti óuppgerðar sakir við hina látnu. Íslensk kona sem er mikilvægt vitni í málinu var á leið af vettvangi þegar lögreglan kom. Bandaríkskir sérfræðingar í glæparannsóknum komu hingað til lands frá Bretandi á tólfta tímanum í gær til að vinna að rannsókn málsins og stendur vettvangsrannsókn enn yfir.

Samstarf ekki úr sögunni

Eftir fund Reykjavíkurfélags Vinstri grænna í fyrrakvöld eru yfirgnæfandi líkur á að stjórnmálaflokkarnir í Reykjavík bjóði hver fram sinn lista í borgarstjórnarkosningunum í maí á næsta ári.

Ganga óbundnir til kosninga

Línurnar eru að skýrast. R-listaflokkarnir bjóða fram hver sinn lista fyrir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor. Vinstri grænir eru harðákveðnir þótt minnihluti flokksmanna mögli eilítið á félagsfundi og telji ótímabært að rétta Sjálfstæðisflokknum vopn í hendur með því að hafna frekara R-listasamstarfi á næsta kjörtímabili.</font />

Skólagangan kostar sitt

Það kostar rúmlega sextíu þúsund krónur að hefja menntaskólanám og eru þá skólagjöldin sjálf undanskilin. Öllu ódýrara er fyrir sex ára nemendur að byrja en skólarnir hefjast í næstu viku.

Flugstjórinn starfaði á Íslandi

Flugstjóri flugvélarinnar sem fórst í Grikklandi á sunnudaginn starfaði hjá flugfélaginu Bláfugli á Keflavíkurflugvelli fyrir um ári. Þórarinn segir Hans Jurgen hafa starfað skamma hríð hjá Bláfugli. Hann hafi komið til starfa í gegnum áhafnaleigu eins og oft þegar flugmenn eru ráðnir í einhvern ákveðin tíma.

Ekki svara vert

Ásakanir Baugsfeðga um að stjórnvöld standi á bak við rannsókn Ríkislögreglustjóra og ofsæki fyrirtæki þeirra, taka einfaldlega engu tali, segir Davíð Oddsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.

VG fram undir eigin nafni

R-listinn er liðinn undir lok en félagsfundur Vinstri Grænna í Reykjavík samþykkti í gær að bjóða fram undir eigin nafni. Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri útilokar þó ekki samstarf Framsóknarflokks og Samfylkingar undir merkjum R-listans fyrir næstu borgarstjórnarkosningar.

Engar sættir í Landakoti

Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst voru engar tilraunir gerðar til sátta í Landakoti eftir að nýr skólastjóri tók til starfa og fleiri starfsmenn hafa hætt störfum þar undanfarið vegna ástandsins. Eitthvað er um að foreldrar hafi tekið börn sín út úr skólanum og fleiri eru enn tvístígandi nú rétt áður en kennsla hefst.

Menningarnótt um helgina

Búist er við sextíu til hundrað þúsund manns á Menningarnótt á laugardag. Ákveðin áherslubreyting hefur orðið hjá aðstandendum menningarnætur sem leggja megináherslu á góða dagskrá og öryggi borgaranna en síður á að fá sem mestan fjölda gesta. Talið er að 104 þúsund manns hafi verið á síðustu Menningarnótt en það er talið við efri mörkin.

Samkynhneigð pör öðlast sama rétt

Samkynhneigð pör munu njóta nákvæmlega sömu réttinda og gagnkynhneigð, ef frumvarp sem er í smíðum í forsætisráðuneytinu verður samþykkt á þingi í haust. Málið var rætt á ríkisstjórnarfundi í morgun og er samstaða um að ganga skuli alla leið og leyfa bæði ættleiðingar samkynhneigðra erlendis frá og tæknifrjóvgun lesbískra para.

Samlag utan greiðslumatskerfis

Fetaostur frá mjólkursamlaginu Mjólku er væntanlegur í verslanir eftir þrjár til fjórar vikur. Skömmu síðar er von á jógúrt og fleiri ostum frá Mjólku, sem starfar fyrir utan greiðslumatskerfi landbúnaðarins.

Samkynhneigðir megi ættleiða börn

Ríkisstjórnin hefur samþykkt að hefja undirbúning frumvarps sem meðal annars veitir samkynhneigðum rétt til jafns við gagnkynhneigða til þess að ættleiða börn frá útlöndum og gangast undir tæknifrjóvganir. Stefnt er að því að frumvarpið verði tekið fyrir á haustþingi að sögn Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra.

Yfirheyrslur og vettvangsrannsókn

Rúmlega tvítugur maður er enn í haldi lögreglu grunaður um að hafa orðið ungri Bandaríkjakonu að bana á herstöðinni á Keflavíkurflugvelli á sunnudagskvöld.

Börn send heim af leikskólum

Líkur eru á að senda þurfi börn heim af leikskólum í höfuðborginni strax í næstu viku vegna manneklu. Verst er ástandið í Grafarvogi og hittust leikskólastjórar þar á fundi í gærmorgun til þess að ræða málið. Boðað hefur verið til foreldrafunda í lok vikunnar og byrjun þeirrar næstu í nokkrum leikskólum þar sem ástandið er slæmt.

Æfði köstun björgunarbáta

Áhöfn TF-SYN, flugvélar Landhelgisgæslunnar, æfði sig á mánudag í að kasta út björgunarbátum nálægt varðskipinu Óðni í Stakksfirði.

Sjá næstu 50 fréttir