Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Rigning áfram Votviðrasamt var um allt land í gær. Þremenningarnir á myndinni klæddu sig vel til að verjast bleytunni. Það þurfa þeir að gera aftur í dag því samkvæmt veðurspá Sigurðar Ragnarssonar veðurfræðings heldur áfram að rigna í dag og næstu daga, rigningin verður þó skúrakenndari en í gær. 16.8.2005 00:01
Framtíð R-listans ræðst í kvöld Framtíð R-listans ræðst í kvöld á félagsfundi Vinstri - grænna í Reykjavík. Á fimmtudag í síðustu viku var síðasti fundur viðræðunefndar R-listaflokkanna haldinn og málið sent til flokkanna þriggja sem standa að R-listanum. Ekki eru taldar miklar líkur á að félagsfundur Vinstri - grænna samþykki að halda áfram í R-listanum heldur sé vilji til þess að hreyfingin bjóði fram í eigin nafni fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. 15.8.2005 00:01
Ásgeir fer ekki á þing Ásgeir Friðgeirsson mun ekki taka sæti á Alþingi á komandi þingi en hann var í fimmta sæti Samfylkingarinnar í Kraganum svokallaða og átti að leysa Guðmund Árna Stefánsson sem heldur til starfa í utanríkisþjónustunni. Sæti Ásgeirs tekur Valdimar L. Friðriksson. 15.8.2005 00:01
Neitar aðkomu að Baugsmáli Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari segir í yfirlýsingu sem birt er í <em>Morgunblaðinu</em> og <em>Fréttablaðinu</em> í dag að hann hafi ekki verið þátttakandi í samsæri um að koma á Baug tilefnislausum sökum. Hann hafi einungis unnið ósköp venjuleg lögmannsstörf fyrir Jón Gerald Sullenberger, en feðgarnir Jóhannes Jónsson og Jón Ásgeir Jóhannesson sögðu í Fréttablaðinu um helgina að Jón Steinar hefði átt beina aðild að því að farið var að rannsaka Baug. 15.8.2005 00:01
Kalkþörungar fluttir til Írlands Fyrsti farmurinn af kalkþörungum kom að landi á Bíldudal í síðustu viku en fluttir verða út tveir skipsfarmar af óunnum þörungunum til Írlands á meðan á byggingu Kalkþörungarverksmiðjunnar stendur. Áætlað er að framkvæmdir hefjist í næsta mánuði og að þeim ljúki í febrúar. Gert er ráð fyrir að 12 til 15 manns starfi við verksmiðjuna þegar hún verður fullbúin og að afkastageta hennar verði um 40 þúsund tonn á ári. 15.8.2005 00:01
Kona myrt á varnarliðssvæði Tvítug varnarliðskona var myrt á varnarsvæði bandaríska hersins á Keflavíkurflugvelli á miðnætti í nótt. Varnarliðsmaður er í haldi herlögreglunnar grunaður um verknaðinn. Íslensk kona er í haldi lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli. Hún er talin hafa verið vitni að verknaðinum og getað gefið mikilvægar upplýsingar. 15.8.2005 00:01
80% sátt við næsta yfirmann sinn Tæplega áttatíu prósent félagsmanna í Verslunarmannafélagi Reykjavíkur eru sátt við næsta yfirmann sinn og finnst hann vera sanngjarn við starfsfólk. Kannanir VR á vinnumarkaði leiða þetta í ljóst. Í frétt á heimasíðu VR segir að þessar niðurstöður séu í samræmi við þá þróun sem verið hafi á vinnumarkaði á síðustu árum. Hinn mjúki og mannlegi stjórnandi hafi nú í auknum mæli tekið við stjórnartaumunum af hinum harða og fjarlæga yfirmanni. 15.8.2005 00:01
Víkurfréttir 25 ára Héraðsfréttablaðið Víkurfréttir á Suðurnesjum fagnar um þessar mundir 25 ára afmæli, en fyrsta eintak blaðsins leit dagsins ljós þann 14. ágúst 1980. Fyrstu tvö árin var blaðið gefið út af prentsmiðjunni Grágás en í byrjun ársins 1983 var blaðið selt og frá þeim tíma hefur Víkurfréttum, sem kemur út vikulega, verið dreift frítt inn á heimili á Suðurnesjum. 15.8.2005 00:01
Vilja kosningar um álversstækkun Vinstri - grænir í Hafnarfirði vilja halda íbúakosningar um fyrirhugaða stækkun álversins í Straumsvík og stefna að því að standa fyrir undirskriftarsöfnun vegna þessa. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á félagsfundi VG í í Hafnarfirði í gærkvöldi. 15.8.2005 00:01
Viðar ráðinn framkvæmdastjóri RA Stjórn ReykjavíkurAkademíunnar hefur ráðið Viðar Hreinsson bókmenntafræðing framkvæmdastjóra félagsins. Hann tekur við starfinu 1. september næstkomandi af Ernu Indriðadóttur sem hverfur til annarra starfa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ReykjavíkurAkademíunni. 15.8.2005 00:01
Sölubann vegna gerlamengunar Salmonella, saurkólígerlar og E.coli gerlar hafa fundist í sýnum sem tekin hafa verið úr kryddjurtum, ávöxtum og grænmeti frá Tælandi sem seld hafa verið hér á landi um hríð. 15.8.2005 00:01
Ginntar hingað á fölskum forsendum "Mér var tjáð að ég hefði dágóðan tíma til að skoða landið og fengi minn frítíma en þegar til kom stóð ekki neitt sem hún sagði," segir Sabrina Maurus, ein hinna þýsku stúlkna sem hingað voru fengnar til vinnu að tilstuðlan þýskra eigenda Cafe Margret á Breiðdalsvík fyrr í sumar. 15.8.2005 00:01
Neytendasamtök taka undir með FÍB Neytendasamtökin taka undir áskorun Félags íslenskra bifreiðaeigenda um að stjórnvöld lækki álögur sínar á bensíni og olíu tímabundið á meðan heimsmarkaðsverð er jafn hátt og það er nú. Neytendasamtökin minna á að stjórnvöld fá í sinn hlut um 60% af því verði sem neytendur greiða fyrir eldsneyti. Jafnframt að verð á þessum vörum sé með því hæsta hér á landi borið saman við önnur lönd. 15.8.2005 00:01
Tókst ekki að leggja Friðrik Önnu Þorsteinsdóttur tókst ekki að leggja Frikðrik Ólafsson stórmeistara að velli á afmælisfjöltefli Skáksambands Íslands í gær. Anna, sem er níræð, var elst þeirra sem tóku þátt í fjölteflinu. Yngsti þátttakandinn var þriggja ára telpa. Leikar fóru þannig að Friðrik vann nítján skákir, gerði sex jafntefli en tapaði engri. 15.8.2005 00:01
Atvinnulífið fram yfir þingsæti Ásgeir Friðgeirsson varaþingmaður tekur störf sín fyrir íslensk fyrirtæki á alþjóðavettvangi fram yfir þingsetu. Hann hefur afþakkað að setjast á þing fyrir Samfylkinguna. 15.8.2005 00:01
Blæs á sögusagnir um klofning Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, blæs á sögusagnir um að hreyfingin í Reykjavík sé að klofna. 15.8.2005 00:01
Aflaverðmæti komið í 280 milljónir Aflaverðmæti Engeyjar RE-1, nýjasta og stærsta frystiskips Íslendinga, er komið í tæpar 280 milljónir króna en skipið er nú í sínum öðrum túr. Verið er að landa um 1500 tonnum af síldarafurðum úti á sjó í þessum töluðu orðum. 15.8.2005 00:01
Vill ljúka róðri á Menningarnótt Hringferð Kjartans Haukssonar á árabát um landið fer senn að ljúka. Hann er nú staddur á Stokkseyri þar sem hann bíður eftir lygnari sjó en hann stefnir ótrauður á að ná til höfuðborgarinnar fyrir Menningarnótt. 15.8.2005 00:01
Útskrifaður af gjörgæslu í dag Maðurinn sem slasaðist alvarlega þegar bíll hans valt eftir útafakstur við Skriðukaustur í Fljótsdal í gærmorgun útskrifast af gjörgæslu í dag. Maðurinn, sem var einn í bílnum, var grunaður um ölvun við akstur. 15.8.2005 00:01
Enn í öndunarvél eftir bílslys Konan sem slasaðist alvarlega í árekstri á þjóðveginum við Hallormsstaðarskóg við Egilsstaði á þriðjudaginn er enn í öndunarvél á gjörgæsludeild og er líðan hennar eftir atvikum. Tveir samferðamenn hennar voru úrskurðaðir látnir við komuna á sjúkrahús. 15.8.2005 00:01
Styrktur til rannsókna á ufsa Landssamband íslenskra útvegsmanna hefur veitt Hlyni Ármannssyni líffræðingi hálfrar milljónar króna styrk til framhaldsnáms í fiskifræði. Í tilkynningu frá LÍÚ segir að um sé að ræða árlegan styrk sem veittur hafi verið í fyrsta sinn árið 1998. Styrkurinn er ætlaður náttúrufræðingum sem hafa lokið eða eru að ljúka grunnnámi í háskóla og hyggjast hefja framhaldsnám erlendis á næsta skólaári. 15.8.2005 00:01
Taka undir áskorun FÍB Neytendasamtökin taka undir með Félagi íslenskra bifreiðaeigenda um að stjórnvöldum beri að lækka álögur sínar á eldsneyti með tilliti til gríðarlegra hækkana á heimsmarkaðsverði undanfarna mánuði. 15.8.2005 00:01
Virði útivistarreglur á pysjutíma Lundapysjutíminn stendur yfir frá byrjun ágústmánaðar fram í september. Þessi tími vekur oft mikla lukku yngri kynslóðarinnar og vaka litlir peyjar og pæjur oft fram eftir til að sjá hvort einhver pysjan villist inn í bæ. Lögreglan í Vestmannaeyjum vill benda fólki á að fara varlega þegar rökkva tekur og beinir þeim tilmælum til foreldra og forráðamanna að útivistareglur barna gilda jafnt yfir þennan tíma sem annan. 15.8.2005 00:01
Konu sleppt eftir yfirheyrslur Íslenskri konu, sem yfirheyrð var hjá lögreglunni á Keflavíkurflugvelli vegna morðsins á tvítugri varnarliðskonu á miðnætti í nótt, hefur verið sleppt. Talið var að hún hefði verið vitni að verknaðinum, sem var framinn á svæði varnarliðsins, og var hún þess vegna færð til yfirheyrslu. Varnarliðsmaður sem grunaður er um verknaðinn er enn í haldi herlögreglunnar. 15.8.2005 00:01
Vélamiðstöðin seld Íslenska gámafélagið ehf. hefur keypt Vélamiðstöðina ehf. af Reykjavíkurborg og Orkuveitu Reykjavíkur. Kaupverðið var 735 milljónir króna en auk þess tekur kaupandi yfir skuldir Vélamiðstöðvarinnar og lífeyrisskuldbindingar vegna starfsmanna. 15.8.2005 00:01
Fjallkjóaunga komið á legg Fjallkjói hefur komið upp unga hér á landi í fyrsta sinn svo vitað sé, eftir því sem fram kemur á vef Náttúrufræðistofnunar. Fullorðinn fjallkjói sást í júní á Mývatnsheiði og stuttu fyrir helgi á sama stað sáust að minnsta kosti tveir fullorðnir fjallkjóar og nýlega fleygur fjallkjóaungi í för með þeim. Fjallkjóinn er svo kallaður umferðarfugl sem fer hér um vor og haust á leið til og frá varpheimkynnum sínum á Norðaustur-Grænlandi. 15.8.2005 00:01
Kláruðust á fimm tímum Öll flugsæti frá Íslandi á sérstökum afsláttarkjörum sem flugfélagið Iceland Express hóf sölu á í gærmorgun höfðu öll klárast síðdegis í gær. 15.8.2005 00:01
Konan var myrt með hnífi Hnífur var notaður sem morðvopn að sögn heimilda fréttastofu þegar varnarliðsmaður myrti tvítuga varnarliðskonu á miðnætti í nótt. Það hefur þó ekki fengist staðfest. Áverka var að finna á hnakka konunnar en ekki er víst hvort þeir hafi leitt dauða hennar, segir á vef <em>Víkurfrétta</em>. 15.8.2005 00:01
Framleiðsla minnkar milli ára Framleiðsla mjólkur í júlí á þessu ári var minni en í fyrra samkvæmt uppgjöri Samtaka afurðastöðva í mjólkuriðnaði. Mjólkurframleiðslan í júlí var 9 milljónir lítra en í júlí í fyrra var hún 9,6 milljónir lítra. Sama var upp á teningnum í júní og þar sem verðlagsárið endar 31. ágúst má telja harla ólíklegt að kúabændur nái að framleiða alla þá mjólk sem óskað hefur verið eftir til kaupa. 15.8.2005 00:01
Minningarathöfn vegna fósturláta Árleg minningarathöfn vegna fósturláta verður haldin í Bænhúsi við Fossvogskirkju í Reykjavík á miðvikudaginn klukkan fjögur. Sjúkrahúsprestar Landspítala - háskólasjúkrahúss sjá um athöfnina í samvinnu við starfsfólk Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma en athöfnin er öllum opin. 15.8.2005 00:01
Sauðfé sækir í garða á Ísafirði Lögreglan á Ísafirði hefur haft í nógu að snúast við að reka rollur úr bæjarlandinu. Á <em>Lögregluvefnum</em> kemur fram að nærri daglega hafi rollurnar komið til beitar í húsagörðum, nýræktinni í snjóflóðavarnargarðinum og inni í Tunguskógi, bæjarbúum til mikils ama. Hafa lögreglu borist margar kvartanir vegna þessa en eigendurnir fjárins vísa á bæjaryfirvöld sem ábyrgðaraðila þar sem bærinn eigi að girða af bæjarlandið og passa að gera við ef eitthvað bilar þar. 15.8.2005 00:01
Undirbúningur málsóknar hafinn Starf við undirbúning málsóknar gegn sjávarútvegsráðherra vegna úthlutunar byggðakvóta er hafið að sögn Magnúsar Kristinssonar, útgerðarmanns í Vestmannaeyjum. 15.8.2005 00:01
Tvítug varnarliðskona myrt Tvítug bandarísk varnarliðskona fannst látin á svæði varnarliðsins Keflavíkurflugvelli í fyrrinótt. Varnarliðsmaður var í kjölfarið handtekinn grunaður um að hafa orðið henni að bana. Von var á bandarískum rannsóknarmönnum til landsins í gærkvöldi til þess að veita aðstoð við rannsókn málsins. 15.8.2005 00:01
Leiðbeinandi hraði á hringveginum Skilti sem sýna leiðbeinandi hraða hverju sinni eru komin upp á hringveginum. Sett verða upp fleiri skilti næsta sumar en til stendur að koma upp slíkum skiltum á stofnvegum að sögn Gunnar Gunnarssonar aðstoðarvegamálastjóra. 15.8.2005 00:01
Mótmælendur slá upp tjaldi Mótmælendur Kárahnjúkavirkjunar og álvers við Reyðarfjörð hafa slegið upp upplýsingatjaldi við Tjörnina í Reykjavík. Til stendur að hafa tjaldið uppi í um tvær vikur að sögn Birgittu Jónsdóttur, talsmanns mótmælenda. 15.8.2005 00:01
Varðskipin á sjó frekar en í bíó "Ég tel að full þörf sé fyrir öll varðskipin í vinnu og þau ættu í raun ekki að fást við neitt annað," segir Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Íslands. <font face="Helv"></font> 15.8.2005 00:01
Ráðinn bani með eggvopni Tvítugri stúlku var ráðinn bani með eggvopni á svæði varnarliðsins seint í gærkvöld. Rúmlega tvítugur maður er í haldi herlögreglunnar grunaður um verknaðinn. 15.8.2005 00:01
Samstarf þrátt fyrir sérframboð? Formaður Samfylkingarinnar óttast að R-listinn sé í dauðateygjunum. Hún telur samt að flokkarnir, sem að honum standa, vilji taka upp samstarf að loknum borgarstjórnarkosningum, þótt þeir bjóði fram sjálfstætt. 15.8.2005 00:01
Ásgeir valdi atvinnulífið Ásgeir Friðgeirsson segir af sér varaþingmennsku fyrir Samfylkinguna. Hann kýs heldur að starfa í framvarðasveit íslenskra fyrirtækja á alþjóðavettvangi. 15.8.2005 00:01
Óákveðinn varðandi einhleypar Félagsmálaráðherra segist ekki hafa myndað sér endanlega skoðun á því hvort einhleypar konur eigi að fá að fara í tæknifrjóvgun hérlendis, en það sé eðlilegt að ræða það mál, þar sem einhleypir geti nú ættleitt börn. Hann leggur höfuðáherslu á rétt lesbískra para til að gangast undir slíka meðferð. 15.8.2005 00:01
Gæði íslenskra háskóla séu misjöfn Gæði íslenskra háskóla eru misjöfn og eftirlitshlutverk menntamálaráðuneytisins er svo almenns eðlis að það hefur engar afleiðingar fyrir skólana, segir Rúnar Vilhjálmsson, prófessor við Háskóla Íslands. Hann segir niðurstöður rannsókna sinna á gæðavanda háskólastigsins standa þótt menntamálaráðherra sé ósammála honum. 15.8.2005 00:01
Ekki góð vörn að benda á aðra Það þykir ekki góð vörn í dómsmáli, að aðrir kunni að hafa sloppið með svipuð brot eða verri. Það gefur heldur ekki rétta mynd af íslensku viðskiptalífi að segja að hægt sé að gera alla stjórnendur fyrirtækja að glæpamönnum ef nógu grannt er skoðað. Þetta segir sérfræðingur í félagarétti. 15.8.2005 00:01
Löng bið eftir iðnaðarmönnum Allt að tvo mánuði getur tekið að fá iðnaðarmann í vinnu og þótt hann komi er alls ekki víst að verkið klárist á tilsettum tíma. Þetta segir framkvæmdastjóri Handlagins.is. Hann segir að svona verði þetta líklega áfram. 15.8.2005 00:01
Vinstri grænir fram í eigin nafni Vinstri grænir slitu R-listasamstarfinu fyrir nokkrum mínútum þegar þeir samþykktu tillögu stjórnar um að bjóða fram undir eigin nafni í næstu borgarstjórnarkosningum. 68 félagsmenn greiddu atkvæði með tillögunni, 28 vildu halda R-listasamstarfinu áfram en tveir seðlar voru auðir eða ógildir. 15.8.2005 00:01
R-lista slitið á átakafundi Vinstri grænir samþykktu með yfirgnæfandi meirihluta að bjóða fram undir eigin merkjum í næstu borgarstjórnarkosningum. Borgarfulltrúar flokksins voru hvor á sinni skoðun, Árni Þór Sigurðsson vildi framboð í nafni Vinstri grænna en Björk Vilhelmsdóttir vildi halda R-listasamstarfinu áfram. 15.8.2005 00:01
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent