Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kvóti Bílddælinga dregst saman Nánast engin aukning hefur verið í úthlutun byggðakvóta til Bíldudals frá síðasta ári þrátt fyrir að stærsta fiskvinnslufyrirtækið hafi farið á hausinn í vor. Kvóti Bílddælinga hefur dregist saman um rúm áttatíu prósent frá árinu 1991. Á sama tíma hefur íbúum fækkað um tæplega helming. 10.8.2005 00:01
Sviðin jörð í Krísuvík Það stórsér á svæðinu í Krísuvík sem notað er við gerð myndarinnar <em>Flags of Our Fathers</em>. Jörð hefur verið sviðin og skotgrafir grafnar. Aðstandendur myndarinnar hótuðu kvikmyndatökumanni Stöðvar tvö lögsókn í dag fyrir að taka myndir af svæðinu. 10.8.2005 00:01
Síminn má einn setja ADSL-skilyrði Viðskiptavinir með ADSL-tengingu hjá Og Vodafone færa sig unnvörpum yfir til Símans til að geta horft á enska boltann, en flutningur til Símans er skilyrði þess að ná útsendingum boltans. Samkeppnisráð segir að Og Vodafone hafi ekki leyfi til að gera það sama og Síminn er að gera. 10.8.2005 00:01
Veiðar ekki inni á skoðunarsvæði Vísindaveiðar á hval eiga ekki að ná inn á svæði hvalaskoðunarskipanna að sögn Hafrannsóknastofnunar. Ekki er útilokað að hvalhræið sem fannst á dögunum sé tilkomið vegna veiðanna en þó mælir margt gegn því. 10.8.2005 00:01
Hive selur inn á ADSL kerfi Símans Netfyrirtækið Hive, sem er með sitt eigið ADSL-dreifikerfi, hefur brugðið á það ráð að tengja viðskiptavini sína við dreifikerfi Símans, frekar en að missa þá yfir til Símans. "Við höfum trú á því að fyrr eða síðar verði Síminn að láta þetta af hendi," segir Arnþór Halldórsson, hjá Hive. 10.8.2005 00:01
Segja gróflega vegið að dýralæknum Dýralæknafélag Íslands mótmælir því harðlega að ekki hafi verið ráðinn dýralæknir í starf forstjóra nýrrar Landbúnaðarstofnunar. Einnig tekur félagið undir gagnrýni starfsmanna embættis yfirdýralæknis á staðsetningu stofnunarinnar á Selfossi. Forystumenn félagsins segja að Jón Gíslason hafi jaðarmenntun með tilliti til starfssviðs stofnunarinnar. 10.8.2005 00:01
Aftanívagn valt yfir á veginn Banaslysið við Hallormsstaðaskóg kom til af því að aftanívagn flutningabílsins valt yfir á hinn vegarhelminginn í sömu andrá og bílarnir mættust. Ekki liggur fyrir af hverju það gerðist. 10.8.2005 00:01
Fjögurra ára í ökuferð Fjögurra ára drengur komst inn í fólksbíl afa síns á Akureyri síðdegis í gær og tókst honum að setja bílinn í frígír með þeim afleiðingum að hann rann af stað. Bíllinn rann um sjötíu metra áður en hann fór á annan kyrrstæðan bíl. Báðir bílarnir skemmdust lítils háttar en drengurinn slapp með kúlu á höfðinu. 10.8.2005 00:01
Aftur kominn á sjúkrahús Daníel Guðmundur Hjálmtýsson, sem slasaðist þegar hann kastaðist úr hraðfleygu tívolítæki síðasta mánudag í Torremolinos á Spáni, er kominn á einkasjúkrahús þar í landi en hann slasaðist nokkuð á höfði, baki og öxlum. 10.8.2005 00:01
Ásgeir í prófkjörsslag Ásgeir Magnússon, framkvæmdastjóri Skrifstofu atvinnulífsins á Akureyri og fyrrum bæjarstjóri í Neskaupstað, hefur tilkynnt að hann hyggist bjóða sig fram í lokuðu prófkjöri Samfylkingarinnar á Akureyri vegna sveitarstjórnarkosninganna á næsta ári. 10.8.2005 00:01
Ánægð með stuðning Sólveig Pétursdóttir, formaður utanríkismálanefndar alþingis, lýsir ánægju með árangurinn sem náðst hefur við að afla stuðnings við framboð Íslands til setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna árin 2009 og 2010. Greint var frá því í Fréttablaðinu í gær að þegar hefðu fengist loforð um stuðning frá fjörutíu til fimmtíu þjóðum. 9.8.2005 00:01
Sveitarfélögum fækkað um helming Nefnd sem fjallar um eflingu sveitarstjórnarstigsins hefur lagt fram tillögur sem fela í sér sameiningu 62 sveitarfélaga í landinu í sexán. Kosið verður um tillögurnar 8. október næstkomandi. 9.8.2005 00:01
Þráðlaust net í Fljótsdalshérað Fljótsdalshérað hefur gert samstarfssamning við eMax um uppbyggingu þráðlauss breiðbandskerfis í sveitarfélaginu. Þráðlaust breiðbandskerfi nýtist sem burðarlag fyrir margskonar þjónustu s.s. að tengjast Internetinu, flytja útvarps- og sjónvarpssendingar og fyrir eftirlits og öryggiskerfi sem t.d. má nota við fjarvöktun á sumarhúsum, svo dæmi séu tekin. 9.8.2005 00:01
Ferðast til Pakistans Nemendur og starfsmenn Borgarholtsskóla munu á morgun efna til táknræns hlaups, göngu eða hjólreiða í tilefni tíu ára afmælis skólans. Ætlunin er að ferðast til Pakistans í óeiginlegri merkingu, en markmiðið er að samanlagður kílómetrafjöldi sem lagður verður að baki verði jafn vegalengdinni í loftlínu á milli Íslands og Pakistan. 5.8.2005 00:01
Ellefu fíkniefnamál á Akureyri Ellefu fíkniefnamál hafa komið upp á útihátíðinni Ein með öllu á Akureyri á síðasta sólarhring þar sem í hverju tilfelli var um lítilræði af fíkniefnum að ræða. Þá voru fimm fluttir á slysadeild eftir líkamsárásir en töluvert var um slagsmál í bænum í nótt. 31.7.2005 00:01
Mikið fyllerí í borginni Lögreglan í Reykjavík stóð í ströngu í nótt þrátt fyrir að fjölmargir höfuðborgarbúar séu á faraldsfæti annars staðar á landinu um helgina. Að sögn lögreglu var mikið fyllerí í miðborginni í nótt og mikið um útköll vegna drukkins fólks. 31.7.2005 00:01
Halldór á Íslendingaslóðum Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra gladdi í gær íbúa bæjarins Mountain í Norður-Dakóta ríki með nærveru sinni. Hann var þar í opinberri heimsókn. Hann fagnaði því með íbúum bæjarins, sem eru um hundrað, að 131 ár er liðið frá því að Íslendingar hófu undirbúning að aðskilnaði frá Danmörku. 31.7.2005 00:01
30 grömm fundust við húsleit Lögreglan í Hafnarfirði handtók í morgun karlmann á nítjánda ári. Hann hafði verið grunaður um fíkniefnasölu um hríð og var í morgun gerð húsleit hjá honum. Þar fundust þrjátíu grömm af eiturlyfjum: amfetamíni, kókaíni og hassi. 31.7.2005 00:01
Hlaup hafið í Skaftá Hlaup er hafið í Skaftá. Sverrir Elefsen hjá vatnamælingum Orkustofnunar segir allt útlit fyrir að hlaupvatn sé að koma fram við Sveinstind. 31.7.2005 00:01
Ekki mikla vatnavexti að sjá Ekki er mikla vatnavexti að sjá ennþá í Skaftárhlaupinu sem hófst í morgun, að sögn Sverris Elefsens hjá vatnamælingum Orkustofnunar. Rennslið í ánni er nú um 270 rúmmetrar á sekúndu. 31.7.2005 00:01
Má búast við öllu Töluverðir vatnavextir eru nú í Skaftá en hlaup hófst í ánni í morgun. Svipað mikið er í Skáftárkötlum og í stóru hlaupunum árið 2000 og 2002 og því má búast við öllu, að sögn Sverris Elefsens hjá vatnamælingum Orkustofnunar. 31.7.2005 00:01
Átján fíkniefnamál í Eyjum Átján fíkniefnamál hafa komið upp í Eyjum og hefur lögregla haldlagt mest af amfetamíni en einnig hafa fundist e-töflur og LSD auk kannabisefna. 31.7.2005 00:01
Í hvað fara peningarnir? Hver einasti Íslendingur á aldrinum 16-70 ára sem er með meira en um átta hundruð þúsund krónur í árstekjur þarf að greiða 5.378 krónur í framkvæmdasjóð aldraðra um mánaðamótin. Reynslan af svona eyrnamerktum sköttum er misjöfn, svo spurt er: í hvað fara þessir peningar? 31.7.2005 00:01
Athugasemdir teknar til greina Forstöðumaður Rannsóknarnefndar flugslysa segir athugasemdir sérstakrar rannsóknarnefndar um flugslysið í Skerjafirði réttmætar og að þær hafi flestar þegar verið teknar til greina. Samgönguráðherra vill ekki segja orð um málið fyrr en á vinnudegi. 31.7.2005 00:01
Varnarliðsmenn skemmi leigubílana Leigubílstjórar á Suðurnesjum íhuga að hætta að þjónusta varnarliðsmenn á kvöldin og um helgar. Það hefur færst í aukana að þeir beri á sér ýmis vopn þegar þeir fara út að skemmta sér. Dæmi eru um að leigubílar séu skemmdir og lausum munum stolið. 31.7.2005 00:01
Amenningsgarður á þaki Magasíns Íslenskir eigendur Magasíns í Danmörku hafa blásið nýju lífi í hugmyndir um almenningsgarð á þaki verslunarinnar. Á þrjú þúsund fermetra þakinu á að verða hægt að skella sér á skíði, í sólbað eða í bíó. 31.7.2005 00:01
Líklegt að Skaftárhlaup hefjist Allt er með kyrrum kjörum við Skaftá en Matthew Robert á Veðurstofu Íslands segir þó vísbendingar um að Skaftárhlaup hefjist. Vart hefur orðið óróa á jarðskjálftamælum á Grímsfjalli og Skrokköldu sem þykja vísbendingar um að vatn úr Skaftárkatli sé að brjóta sér leið undir jöklinum. 30.7.2005 00:01
Krani fór á hliðina á Sultartanga Kranastjóri við Sultartanga á fótum sínum fjör að launa í gærkvöld þegar krani sem notaður var til að reisa stagmastur fór á hliðina. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli er verið að leggja nýja línu við Sultartanga og höfðu fjögur möstur verið reist daginn áður. Þegar vinna hófst í gærmorgun gáfu undirstöður hliðartjakka undan við fyrsta mastrið. 30.7.2005 00:01
Tólf fíkniefnamál í Eyjum Eftir fyrsta sólarhringinn á Þjóðhátíð hafa komið upp tólf fíkniefnamál í Vestmannaeyjum. Í flestum tilfellum er um neysluskammta að ræða og hafa bæði fundist kannabisefni og amfetamín. 30.7.2005 00:01
Fjölmennasta hátíðin á Akureyri Fjölmennasta hátíðin þessa helgina virðist vera Ein með öllu á Akureyri. Þar eru nú hátt í tólf þúsund manns. Sól og blíða er í bænum og 19 stigi hiti. 30.7.2005 00:01
Hefði verið kyrrsett annars staðar Hin sérstaka rannsóknarnefnd sem skoðað hefur alla þætti flugslyssins í Skerjafirði tekur undir margar athugasemdir aðstandenda þeirra sem fórust og gerir fjölmargar tillögur um bætta starfshætti Flugmálastjórnar og Rannsóknarnefndar flugslysa. Danski sérfræðingurinn í nefndinni telur að samkvæmt íslenskum lögum hefði ekki verið hægt að kyrrsetja vélina, en það hefði verið gert í mörgum öðrum löndum. 30.7.2005 00:01
Hlaup hugsanlega hafið Vísbendingar eru um að Skaftárhlaup hefjist á næstu dögum. Ríkissjónvarpið sagði hlaup hafið fyrir nokkrum mínútum en Veðurstofan vill ekki staðfesta það. Hún sagðist þó fyrr í dag vilja vara ferðalanga á þessum slóðum við. 30.7.2005 00:01
Ógerlegt að taka RÚV af markaðinum Markús Örn Antonsson telur nær ógerlegt að Ríkisútvarpið verði tekið af auglýsingamarkaði. Páll Magnússon, verðandi útvarpsstjóri, sagði í Íslandi í dag í gær og Kastljósi Ríkissjónvarpsins að hann teldi eðlilegt að skoða að stofnunin yrði ekki á þeim markaði. Markús hefur undirbúið áramótaávarpið fyrir arftaka sinn. 30.7.2005 00:01
Brúðarkjólar keyptir á Netinu Tilvonandi brúðir eru farnar að nýta sér Netið í auknum mæli til að kaupa ódýrari brúðarkjóla. Algengt leiguverð er 25 til 40 þúsund krónur en hægt er að kaupa kjóla á Netinu fyrir 10 til 15 þúsund krónur hingað komna. Eigendur kjólaleiga óttast þó ekki samkeppnina. 30.7.2005 00:01
Eldfimar upplýsingar í könnun Nokkrar niðurstöður lífskjararannsóknar sem IMG Gallup framkvæmdi á Akureyri og á höfuðborgarsvæðinu í vor hafa vakið deilur á Akureyri. Út úr niðurstöðunum má meðal annars lesa laun fylgismanna stjórnmálaflokkanna, menntun og í hvaða hverfum þeir eru búsettir. Bæjaryfirvöld á Akureyri hafa í höndum sambærilegar upplýsingar varðandi Reykvíkinga. 29.7.2005 00:01
Götum borgarinnar lokað í hádeginu Vörubílstjórar sem hyggjast loka fyrir umferð úr höfuðborginni í dag ætla ekki að láta sér segjast þrátt fyrir eindregin tilmæli lögreglu. "Við gætum farið af stað í kringum hádegið," sagði Sturla Jónsson, talsmaður þeirra, í gærkvöldi. "Ég á von á því að fjörutíu til fimmtíu bílar taki þátt, en sjáum til hvort þeir mæta allir þegar á hólminn er komið." 29.7.2005 00:01
Hættuástand við aðgerðir bílstjóra Fulltrúar lögreglu og slökkviliðs hafa komið því á framfæri við nokkra atvinnubílstjóra, sem ætla að trufla eða jafnvel stöðva umferð á aðalumferðaræðum á höfuðborgarsvæðinu í dag, að það teljist hættuástand ef neyðarakstur lögreglu-, slökkviliðs- og sjúkrabíla tefst af þeim völdum. 29.7.2005 00:01
Þyrlan leitaði báts Þyrla Landhelgisgæslunnar hóf leit að fiskibáti með fjögurra manna áhöfn undir kvöld í gærkvöldi eftir að sendingar frá honum hættu að berast inn í sjálfvirka tilkynningaskyldukerfið og farið var að óttast um sjómennina. 29.7.2005 00:01
Töluverð umferð úr bænum Töluverð umferð var frá höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld en ekki er vitað um slys eða óhöpp, nema hvað nokkur ungmenni sluppu ómeidd þegar bíll þeirra fór út af í lausamöl skammt frá Brú í Hrútafirði. Þar hafði laust slitlag verið lagt á veginn og varar lögregla við því. 29.7.2005 00:01
Eldur í einbýlishúsi á Selfossi Eldur kviknaði í sjónvarpi í barnaherbergi í nýju einbýlishúsi á Selfossi síðdegis í gær og fór reykskynjari í gang. Nágranni heyrði í honum og reyndi að slökkva eldinn en fékk aðkenningu að reykeitrun. 29.7.2005 00:01
Jarðskjálfti á Skjálfandaflóa Jarðskjálfti upp á 3,0 á Richter varð á Skjálfandaflóa um eittleytið í nótt. Upptökin voru 15 km norðvestur af Húsavík. Einn smærri jarðskjálfti fylgdi í kjölfarið. Ekki hefur orðið vart við frekari virkni á svæðinu. 29.7.2005 00:01
Páll næsti útvarpsstjóri RÚV Páll Magnússon hefur verið skipaður í embætti útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins til fimm ára, frá 1. september næstkomandi. Menntamálaráðuneytinu bárust alls 23 umsóknir um embættið. 29.7.2005 00:01
Páll skipaður útvarpsstjóri Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, hefur skipað Pál Magnússon í embætti útvarpsstjóra Ríkisútvarpsins til fimm ára, frá 1. september næstkomandi. Menntamálaráðuneytinu bárust alls 23 umsóknir um embættið. 29.7.2005 00:01
Fengu ekki endurgreiðslu skattsins Mörgum sem áttu von á endurgreiðslu frá skattinum eða barnabótum brá í brún snemma í morgun þegar ekkert hafði verið lagt inn. Fólk sem hringdi í fréttastofuna sagði að það hefði stólað á þessar greiðsur til að geta gert sér og sínum dagamun um helgina og það yrðu mikil vonbrigði ef greiðslurnar bærust ekki í tæka tíð. 29.7.2005 00:01
Lögreglan gerir allt sem hún getur Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn segir að lögreglan muni gera allt til þess að umferðin geti gengið snurðulaust fyrir sig, þrátt fyrir að atvinnubílstjórar ætli að trufla eða jafnvel stöðva umferð á aðalumferðaræðum á höfuðborgarsvæðinu í dag. 29.7.2005 00:01