Hefði verið kyrrsett annars staðar 30. júlí 2005 00:01
Hin sérstaka rannsóknarnefnd sem skoðað hefur alla þætti flugslyssins í Skerjafirði tekur undir margar athugasemdir aðstandenda þeirra sem fórust og gerir fjölmargar tillögur um bætta starfshætti Flugmálastjórnar og Rannsóknarnefndar flugslysa. Danski sérfræðingurinn í nefndinni telur að samkvæmt íslenskum lögum hefði ekki verið hægt að kyrrsetja vélina, en það hefði verið gert í mörgum öðrum löndum. Aðstandendur gerðu einkum sex athugasemdir samkvæmt skýrslunni. Þær lutu að skráningu flugvélarinnar á Íslandi, útgáfu lofthæfisskírteinis, afhendingu hreyfilsins snemma á rannsóknarferlinum, flugumferðarþjónustu þegar slysið varð, fyrri atvikum sem flugmaðurinn var viðriðinn og flugrekstrar- og viðhaldsþjónustu flugrekandans. Rannsóknarnefndin tekur undir fjögur atriði af þessum sex og segir í niðurstöðum sínum að flugmálastjórn hefði hvorki átt að skrá flugvélina né gefa út lofthæfisskírteini henni til handa vegna óljósrar sögu og ófullkominna gagna sem fylgdu henni. Danski sérfræðingurinn Sören Flensted, sem átti sæti í rannsóknarnefndinni, sagði í samtali við fréttastofu í dag að eftir því sem honum skildist þá hefði skortur á gögnum ekki dugað til að kyrrsetja vélina samkvæmt íslenskum lögum, en að í mörgum öðrum löndum hefðu þessi ófullkomnu gögn leitt til þess að vélin hefði verið kyrrsett. Flensted vildi þó taka fram að hann hefði ekki lesið skýrsluna í endanlegri mynd. Nefndin tekur einnig undir að flugumferðarþjónustu hafi verið ábótavant og að eftirlit Flugmálastjórnar með flugrekanda hafi ekki verið fullnægjandi. Sala hreyfilsins úr landi og fyrri flugatvik sem flugmaðurinn hafði lent í eru ekki talin skipta máli. Nefndin telur einnig að ýmislegt sé rangt í lokaskýrslu bresku flugslysasérfræðinganna tveggja sem aðstandendur fengu til að vinna óháða rannsókn fyrir sig. En orsök slyssins er skýr: eldsneytisskortur og þreyta og þjálfunarleysi flugmanns. Tillögur nefndarinnar til úrbóta eru fjölmargar og snúa einkum að starfsemi Flugmálastjórnar, en einnig að rannsóknarnefnd flugslysa og samgönguráðherra. Hvorki náðist í Sigurð Líndal, formann nefndarinnar, né Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra í dag en Sigurður hafði áður neitað að tjá sig um skýrsluna við Stöð 2.
Fréttir Innlent Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira