Síminn má einn setja ADSL-skilyrði 10. ágúst 2005 00:01
Viðskiptavinir með ADSL-tengingu hjá Og Vodafone færa sig unnvörpum yfir til Símans til að geta horft á enska boltann, en flutningur til Símans er skilyrði þess að ná útsendingum boltans. Samkeppnisráð segir að Og Vodafone hafi ekki leyfi til að gera það sama og Síminn er að gera. Til að horfa á enska boltann í vetur þurfa áhorfendur að vera með Breiðbandið eða vera með ADSL-tengingu í gegnum dreifikerfi Símans. Því flykkjast aðdáendur boltans sem höfðu ADSL-tengingu hjá Og Vodafone yfir til Símans. Ef 365 ljósvakamiðlar hefður sýningarrétt á enska boltanum mætti Og Vodafone hins vegar ekki senda leikina út þannig að aðeins þeir sem hefðu ADSL-tengingu hjá þeim gætu fylgst með boltanum. Samkeppnisráð sendi frá sér tvær ákvarðanir í vor til að samkeppni yrði á þessum mörkuðum. Ákvörðunin sem á við Símann og Skjá einn er hins vegar ólík ákvörðuninni sem á við Og Vodafone og 365 fjölmiðla. Einar Þór Sverrisson, lögmaður Og Vodafone, segir að félagið megi ekki setja skilyrði sem þessi og í því felist mismununin sem að mati Og Vodafone sé mjög alvarleg. Þetta sé eingöngu til þess fallið að styrkja yfirburðastöðu Símans á ADSL-markaði hér á landi á grundvelli skilyrða sem samkeppnisyfirvöld hafi sett. Og Vodafone gerði athugasemd við mismuninn á ákvörðununum strax í vor og hefur Samkeppniseftirlitið eins og það heitir nú verið að fara yfir málið síðan. Einar Þór segir auglýsingar dynji á landsmönnum þar sem Síminn auglýsi að hann sitji einn að þessu og sú eftirlitsstofnun sem eigi að hafa eftirlit með málinu virðist ekki hafa burði til þess að grípa inn í atburðarásina. Og Vodafone vill meina að þeir tapi stórlega á hverjum degi sem mismununin viðgengst. Aðspuður hvort félagið ætlaði í framhaldinu að krefja ríkið um skaðabætur vegna þessa segir Einar Þórþað sé ekki útilokað.
Fréttir Innlent Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira