Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Verðbólga minnst á Íslandi Verðbólga á Íslandi reyndist aðeins 0,3% í júní samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs sem Hagstofan birti í morgun, en verðbólga hefur minnkað mikið síðustu mánuðina á þennan mælikvarða. Til samanburðar var verðbólga 2,0% að meðaltali á Evrópska efnahagssvæðinu og innan þess er hún nú minnst á Íslandi. 19.7.2005 00:01
Mótmæli við Kárahnjúka Fimmtán manns, flestir útlendingar, fóru inn á stíflusvæðið hjá Kárahnjúkavirkun í hádeginu í dag og stöðvuðu umferð að svæðinu í mótmælaskyni við framkvæmdirnar. Þeir hlekkjuðu sig við vinnuvélar og lögðu bílum þvert yfir veginn að Steypustöðinni til að vörubílar kæmust hvorki að né frá stíflusvæðinu. 19.7.2005 00:01
Blóðbankann vantar O mínus Birgðir Blóðbankans af O-mínus blóði eru af skornum skammti. Blóðbankinn hefur biðlað til blóðgjafa í þessum flokki að koma og gefa blóð en O-mínus blóð er notað í neyðarblóð sem gengur í alla aðra blóðflokka og því er mikilvægt að birgðir bankans séu ávallt miklar. Sigríður Ósk, hjúkrunarfræðingur hjá Blóðbankanum segir bankann vanta 60 einingar af O-mínus blóði sem fyrst en hver blóðgjafi gefur sem svarar einni einingu. 19.7.2005 00:01
Eyjamenn vilja Pompei norðursins Íbúar Vestmannaeyja virðast jákvæðir fyrir verkefninu Pompei norðursins, sem er uppgröftur húsa og fleiri gosminja sem grófust í undir ösku í Heimaeyjargosinu 1973. Þetta kemur fram í Eyjafréttum í dag. Mikill meirihluti þeirra sem tóku þátt í könnun á vefsíðu Eyjafrétta líst vel á verkefnið sem nú er í fullum gangi. Alls voru rúmlega 71% fylgjandi verkefninu, 19% leist illa á það og tæplega 10% höfðu ekki skoðun á málinu. 19.7.2005 00:01
Friðargæsluliðar til Afghanistan Íslenskir friðargæsluliðar halda til þjálfunar hjá norska hernum í lok júlímánaðar vegna fyrirhugaðrar þátttöku í starfi endurreisnar- og uppbyggingarsveita á vegum friðargæsluliðs Atlantshafsbandalagsins í Afganistan. Þjálfuninni lýkur í byrjun september og fer fyrsti hópurinn til Norður-Afganistan um miðjan þann mánuð. 19.7.2005 00:01
Mótmælendur lausir Þrettán mótmælendur voru handteknir og færðir til skýrslutöku á lögreglustöðinni við Kárahnjúka fyrr í dag. Þeim hefur öllum verið sleppt. 19.7.2005 00:01
Heimsfundur menningarráðherra Fyrsti heimsfundur menningarráðherra úr röðum kvenna verður haldinn í Reykjavík dagana 29.-30. ágúst. Boðað hefur verið til fundarins í tilefni 75 ára afmælis Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta, í apríl síðastliðnum. Að fundinum standa íslensk stjórnvöld í samstarfi við Heimsráð kvenleiðtoga en Vigdís var einn stofnenda og fyrsti formaður ráðsins. 19.7.2005 00:01
Einn Hallormsstaðarskógur á ári "Við í Skógræktinni ræktum því sem nemur einum Hallormsstaðarskógi á ári," segir Jón Loftsson skógræktarstjóri. Hann segir að á síðustu árum hafi 20 þúsund hektarar lands verið ræktaðir en þó sé aðeins 1,3% af flatarmáli Íslands neðan við fjögurhundruð metra hæð yfir sjávarmáli skógi vaxið. 19.7.2005 00:01
Þríburabarnafæðingum fækkar Frá því tæknifrjóvganir hófust árið 1990 hefur fjöldi þríburafæðinga þrefaldast eða jafnvel fjórfaldast að sögn Reynis Tómasar Geirssonar sviðsstjóra lækninga á kvennasviði Landspítala Háskólasjúkrahús. 19.7.2005 00:01
Ný verksmiðja við Mývatn Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu iðnaðarráðherra að verja allt að tvöhundruð milljónum til að kaupa hlutabréf í pappabrettaverksmiðju við Mývatn. Verksmiðjan verður í húsi gömlu kísílgúrverksmiðjunnar sem hætti starfsemi í fyrra. 19.7.2005 00:01
Sendiráð á Indlandi Davíð Oddsson utanríkisráðherra kynnti áform um að opna sendiráð í Indlandi á ríkisstjórnarfundi í morgun. Viðræður standa yfir við Indverja en vonast er til að sendiráðið geti orðið að veruleika um áramót. 19.7.2005 00:01
Sjónarhornið á vændiskaupandann Fimmtíu til níutíu prósent þeirra kvenna sem leiðast út í vændi hafa verið misnotaðar í æsku, að sögn framkvæmdastýru Kvennaathvarfsins. Goðsögnin um hamingjusömu gleðikonuna er lífseig og snýst um að konan sem selji líkama sinn geri það af fúsum og frjálsum vilja. 19.7.2005 00:01
Friðsamleg mótmæli Þrettán mótmælendur voru handteknir við Kárahnjúka í dag. Vinna við stíflusvæðið lá niðri í tvær og hálfa klukkustund, þegar þeir hlekkjuðu sig við vörubíla og vinnuvélar. Þá lokuðu þeir aðalveginum frá vinnusvæðinu að steypustöðinni með því að leggja fólksbílum yfir þveran veginn. 19.7.2005 00:01
Stefán Jón neitar Stefán Jón Hafstein neitar því alfarið að það hafi verið rætt formlega innan raða Samfylkingarinnar að bjóða fram undir merkjum R-Listans, án Vinstri-grænna og Framsóknarflokksins. Össur Skarphéðinsson segir Stefán hafa setið við hlið sér á fundi Samfylkingarinnar í Reykjavík þegar þetta var rætt og góður rómur gerður að. 19.7.2005 00:01
Hundruð milljóna í kostnað "Ég er ekki með tölurnar í hausnum en þetta eru einhver hundruð milljóna," segir Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, þegar hann er spurður um uppsafnaðan kostnað við Hvalstöðina í Hvalfirði og hvalbátana frá því hvalveiðar lögðust af. 19.7.2005 00:01
Fjöldi nýrra fjósa í byggingu "Það eru sautján ný fjós í byggingu sem ég veit af," segir Lárus Pétursson, umsjónarmaður innréttinga hjá Landstólpa ehf. "Þá eru fimmtán bændur að breyta eldri fjósum og langoftast verið að stækka þau í leiðinni." Lárus segir þessi fjós oftast vera lausagöngufjós með 60-70 bása eða hátt í það. 19.7.2005 00:01
Ekki búið að funda með öryrkjum Fulltrúar Öryrkjabandalags Íslands og Landssamtaka lífeyrissjóða hafa enn ekki fundað vegna bréfs sem um 1.300 öryrkjar fengu á dögunum þar sem þeir voru krafðir um skattframtöl síðustu þriggja ára fyrir örorkumat. Öryrkjabandalag Íslands óskaði eftir slíkum fundi í síðustu viku. 19.7.2005 00:01
Nýr ritstjóri Stúdentablaðsins Magnús Björn Ólafsson stjórnmálafræðinemi hefur verið ráðinn ritstjóri Stúdentablaðsins næsta vetur og tekur við af Helgu Arnardóttir. Sjö sóttu um starfið. Magnús hóf að skrifa greinar í blaðið á vorönn 2004 og var í ritstjórn blaðsins síðasta vetur. 19.7.2005 00:01
Óánægja með ráðningu skólastjórans Mikil óánægja virðist vera með ráðningu Fríðu Regínu Höskuldsdóttir sem skólastjóra Landakotsskóla hjá hluta foreldra og hópi kennara í skólanum. Fullyrða þeir að skólastjórinn sé ekki hlutlaus eins og lofað hafði verið. Einn af fimm stjórnarmönnum greiddi ekki atkvæði með ráðningu hennar. 19.7.2005 00:01
Misskilningur hjá Seðlabankastjóra Seðlabankinn getur ekki ætlast til þess að Íbúðalánasjóður leiki hlutverk í efnahagsstjórn landsins. Sjóðnum beri að ávaxta fé sitt samkvæmt lögum um áhættustýringu bankans. Þetta segir Árni Páll Árnason sem hefur unnið lögmannsstörf fyrir Íbúðalánasjóð og félagsmálaráðuneytið 19.7.2005 00:01
Hrafn Gunnlaugsson mótmælir slætti "Það er fallegt að sjá þessi yndislegu ungmenni starfandi í náttúrunni en maður myndi frekar vilja sjá þau týna upp rusl heldur en að tæta upp þessar alíslensku jurtir sem vaxa þarna ótilneyddar innan borgarmarkanna," segir Hrafn Gunnlaugsson, leikstjóri og íbúi í Laugarnesi, en þar var slegið í góða veðrinu í fyrradag. 19.7.2005 00:01
Þyrla hefði getað komið mun fyrr Þyrla hefði getað komið á vettvang klukkutíma og tuttugu mínútum fyrr en raun bar vitni þegar flutningaskipið Jökulfell sökk út af Færeyjum í febrúar. Þetta er niðurstaða óháðra sérfræðinga frá Norsk Veritas sem telja að senda hefði átt þyrluna mun fyrr á vettvang. Útvarp Föroya greindi frá þessu. 19.7.2005 00:01
Haldið í 30 klukkustundir Tvítug stúlka, Arna Ösp Magnúsdóttir, var í fyrradag handtekin af ísraelskum landamæravörðum á Ben Gurion flugvellinum og virðist hafa verið vísað úr landi. Í tölvupósti sem hún sendi frá Sviss í gær sagði hún að sér hefði verið "haldið í 30 klst án þess að fá að hafa samband við neinn, ekki einu sinni konsúlinn." 19.7.2005 00:01
Sumarolía hleypur í kekki í kulda Þeir sem hömstruðu díselolíu í stórum stíl áður en verð olíunnar breyttist, geta lent í stórkostlegum vandræðum í vetur. Þeir keyptu nefnilega sumarolíu, sem hleypur í kekki og stíflar síur þegar frost nær ákveðnu marki. Olían sem seld er yfir sumartímann þolir ellefu gráðu frost, en olían sem seld er yfir vetrartímann þolir 24 gráðu frost. 19.7.2005 00:01
Minkar í Laugarnesinu Minkurinn er ekki jafnskæður fuglabani og kötturinn sem mörgum finnst sjálfsagt að hafa heima í stofu. Hrafn Gunnlaugsson ákvað þó að kalla til meindýraeiði þegar læða og yrðlingar gerðu sig heimakomin á Laugarnesinu. Minkurinn á það til að leita innan marka höfuðborgarinnar fannst minkagreni í fjörunni á lóð Hrafns Gunnlaugssonar, kvikmyndagerðarmanns, í Lauganesinu í síðustu viku þar sem bjó læða með fjóra hvolpa. 19.7.2005 00:01
Stefán Jón neitar Stefán Jón Hafstein neitar því alfarið að það hafi verið rætt formlega innan raða Samfylkingarinnar að bjóða fram undir merkjum R-Listans, án Vinstri-grænna og Framsóknarflokksins. Össur Skarphéðinsson segir Stefán hafa setið við hlið sér á fundi Samfylkingarinnar í Reykjavík þegar þetta var rætt og góður rómur gerður að. 19.7.2005 00:01
Vonlaust að þagga niður í Össuri Össur Skarphéðinsson segist ekki vilja útiloka að gefa kost á sér sem borgarstjóraefni en segir að hugmyndin komi honum á óvart. Stefán Jón Hafstein segir erfitt að þagga niður í Össuri. 19.7.2005 00:01
Konur til friðargæslu í Kabúl "Stefnt er að því að ein til tvær konur haldi til Afganistan í haust," segir Arnór Sigurjónsson, hjá íslensku friðargæslunni. Í lok júlí halda tveir hópar til þjálfunar í Noregi en í september að þjálfuninni lokinni halda friðargæsluliðarnir til Afganistan. 19.7.2005 00:01
Íbúðalánasjóð í stjórnsýsluúttekt Félagsmálanefnd Alþingis hefur verið boðuð til fundar á morgun, en eina málið á dagskrá er 80 milljarða króna útlán Íbúðalánasjóðs til sparisjóða og banka. Fulltrúar frá Íbúðalánasjóði, Fjármálaeftirlitinu, Seðlabankanum, viðskiptabönkunum og fleiri verða kallaðir fyrir nefndina. 19.7.2005 00:01
Framleiða vörubretti úr pappír Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra hefur heimilað Nýsköpunarsjóði að ganga til samninga um kaup á hlutum í félagi sem áformar að framleiða vörubretti úr endurvinnanlegum pappír í Mývatnssveit. 19.7.2005 00:01
Indland næst á dagskrá Davíð Oddsson utanríkisráðherra gerði grein fyrir undirbúningi að nýju sendiráði Íslands á Indlandi á ríkisstjórnarfundi í gær. 19.7.2005 00:01
Bíðum ekki endalaust Gestur Gestsson formaður Framsóknarfélags Reykjavíkurkjördæmis norður segir að Framsóknarmenn bíði ekki endalaust eftir niðurstöðu viðræðna um framhald samstarfsins innan R-listans. 19.7.2005 00:01
Sólarhitinn sprengdi rúðu Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fékk um kvöldmatarleytið í gær tilkynningu um að sprenging hefði orðið á þrettándu hæð fjölbýlishúss við Rjúpnasali í Kópavogi. 19.7.2005 00:01
Eftirlit úr lofti Sjónum verður sérstaklega beint að akstri utan vega í auknu eftirliti lögreglu á hálendi. Lögreglan á Hvolsvelli í samvinnu við Landhelgisgæsluna fór í hálendiseftirlit á þyrlunni TF-SIF á mánudag en samvinnuverkefnið heldur áfram það sem eftir lifir sumars. 19.7.2005 00:01
Grunaður um að selja vændislista Lögreglan í Kópavogi hefur yfirheyrt mann sem grunaður er um dreifingu lista með nöfnum vændiskvenna á netinu. Sextán ára stúlka hefur einnig verið yfirheyrð en grunur leikur á því að maðurinn hafi fengið afnot af reikningi hennar til þess að taka við greiðslu fyrir listana. 19.7.2005 00:01
Kolmunnakvótinn minni en í fyrra Íslensk skip mega veiða 590.000 lestir af kolmunna á þessu ári að því er sjávarútvegsráðherra ákvað í gær. Kvóti ársins verður því 123.000 lestum minni en árið 2004 að því er segir í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu. 19.7.2005 00:01
Þingmaður á villigötum Benedikt Sigurðarson, formaður stjórnar Kaupfélags Eyfirðinga, segir Kristinn H. Gunnarsson þingmann á villigötum varðandi áform KEA um fjölgun starfa á Akureyri og eflingu byggðar á Norðurlandi en Kristinn ýjar að því í pistli á heimasíðu sinni að KEA ætli að kaupa stjórnsýsluákvarðanir tveggja ráðherra. 19.7.2005 00:01
Akureyri ljósleiðaravædd Akureyrarbær hefur samið við Tengi hf. um lagningu á 250 kílómetra löngu ljósleiðaraneti um nær alla Akureyri á næstu árum. Kostnaðurinn verður um einn milljarður króna. 19.7.2005 00:01
Fyrsta skipið skemmdi bryggjuna Nokkurt tjón varð á nýju álvershöfninni í Reyðarfirði í gær þegar Skaftafell lagðist þar að bryggju fyrst skipa. Rúnar Sigurjónsson, hafnarstjóri á Reyðarfirði, segir að skutur skipsins hafi rekist í bryggjuna í vindhviðu en sérfræðingar muni meta skemmdirnar í dag. 19.7.2005 00:01
Hlekkjuðu sig við vinnuvélar Átján erlendir mótmælendur stöðvuðu vinnu hluta starfsmanna við Kárahnjúkavirkjun um rúmar tvær klukkustundir í gær með því að fara í óleyfi fótgangandi inn á vinnusvæðið og hlekkja sig við vinnuvélar og leggjast í veg fyrir vinnutæki. 19.7.2005 00:01
Komast í samband við börn á Netinu Menn sem tengjast vændisstarfsemi hér á landi eiga mjög auðvelt með að komast í samband við börn á Netinu, eins og dæmi eru um, og því rík ástæða fyrir foreldra að fylgjast vel með netnotkun barna sinna. Þetta segir heimildarmaður Stöðvar 2 sem hefur skoðað þessi mál sérstaklega. 18.7.2005 00:01
Óafvitandi ekki með réttindi Meirapróf þarf á flesta þeirra pallbíla sem fluttir eru inn frá Bandaríkjunum en eigendur þeirra gera sér ekki alltaf grein fyrir því. Því eru dæmi um að bílstjórar hafi ekki réttindi til að aka þessum bílum sínum. Ef þeir lenda í umferðaróhappi mega þeir búast við að fá ekki greitt út úr tryggingum hvort sem þeir eru í rétti eða órétti. 18.7.2005 00:01
Stefnir ekki að borgarstjórastól Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans, segist ekki stefna að því að verða borgarstjóraefni R-listans og hefur hann enga ákvörðun tekið í þeim efnum. 18.7.2005 00:01
Dýrahótelin að fyllast Nú fer hver að verða síðastur að panta pláss á dýrahóteli fyrir gæludýrin sín en dýrahótel njóta sífellt meiri vinsælda hér á landi í kjölfar aukinnar gæludýraeignar. Sums staðar eru plássin bókuð langt fram í tímann og jafnvel allt orðið fullt fyrir sumarið. 18.7.2005 00:01
Ofurölvi undir stýri Lögreglan í Keflavík stöðvaði ökumann þar í bæ í gærkvöldi þar sem ökulag hans þótti ekki yfirvegað. Ökumaðurinn reyndist það ekki heldur og við blóðrannsókn kom í ljós að svo mikið áfengismagn var í blóði hans að hann hefði allt eins átt að vera sofnaður áfengisdauða. Honum var komið heim í háttinn að lokinni skýrslutöku. 18.7.2005 00:01