Innlent

Fyrsta skipið skemmdi bryggjuna

Nokkurt tjón varð á nýju álvershöfninni í Reyðarfirði í gær þegar Skaftafell lagðist þar að bryggju fyrst skipa. Rúnar Sigurjónsson, hafnarstjóri á Reyðarfirði, segir að skutur skipsins hafi rekist í bryggjuna í vindhviðu en sérfræðingar muni meta skemmdirnar í dag. "Það eru sýnilegar skemmdir á steyptum kanti á bryggjunni en við fyrstu athugun virðist stálþilið óskemmt," segir Rúnar. Í farmi Skaftafells er risakrani með allt að 110 tonna lyftigetu og verður hann notaður við uppskipun á stórförmum og gámum með hráefni til álversins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×