Komast í samband við börn á Netinu 18. júlí 2005 00:01
Menn sem tengjast vændisstarfsemi hér á landi eiga mjög auðvelt með að komast í samband við börn á Netinu, eins og dæmi eru um, og því rík ástæða fyrir foreldra að fylgjast vel með netnotkun barna sinna. Þetta segir heimildarmaður Stöðvar 2 sem hefur skoðað þessi mál sérstaklega. Heimildarmaðurinn var inni á síðunni Private.is og sá þar auglýstan lista yfir konur sem bjóða kynlífsþjónustu gegn greiðslu. Þegar hann prufaði að panta listann fékk hann uppgefið reikningsnúmer hjá sextán ára gamalli stúlku. Við það brá honum og safnaði í framhaldinu upplýsingum til að láta lögregluna hafa. Hann hafði upp á stúlkunni á einum degi og komst að því að maður á sextugsaldri hefði fengið hana til að taka við greiðslum frá þeim sem keyptu listann. Hann lofaði stúlkunni greiðslu, gegn því að hún tæki út peningana og afhenti sér þá. Heimildarmaðurinn hvetur því foreldra til að fylgjast með bloggsíðum barna sinna. Það sé t.a.m. ekki ráðlegt að skilja eftir MSN-netfang eða tölvupóstnetfang sitt á þessum síðum. Umræddur maður komst í samband við stúlkuna með því að nálgast MSN hennar á bloggsíðu stúlkunnar. Spurður hvað hann telji að þurfi til að maður sem þessi hafa samband við ungling og bjóði honum pening fyrir afnot af bankareikningi segir heimildarmaðurinn að það þurfi ekki meira en að eigandi bloggsíðunnar skrifi að hann eða hana langi svo í Diesel-gallabuxur en þær séu svo dýrar. Maðurinn geti þá boðist til að gefa viðkomandi slíkar buxur, gegn afnotum af bankareikning unglingsins. Heimildarmaðurinn hafði upp á manninum og lét lögreglu hafa upplýsingar um hann. Í samskiptum sínum við manninn þar sem hann villti á sér heimildir kom í ljós að bankareikningur stúlkunnar hafi aðeins verið notaður um stundarsakir. Því þarf hann væntanlega oft að finna reikninga til afnota. Heimildarmaðurinn telur mikilvægt að stórir vinnustaðir, skólar og bókasöfn loki fyrir notkun á síðum eins og Einkamál.is og Private.is því erfitt geti verið að hafa upp því hver hafi haft samband í gegnum netkerfi þeirra. Á ferð sinni um vændisheim Netsins sjái hann margt, eins og að fjöldi manna virðist ekki veigra sér við ungan aldur þeirra sem bjóða kynlífþjónustu. Það skipti engu máli hvort stúlkan sé 26 ára eða 14 ára. Og heimildarmaðurinn segir stúlkur mjög fljótar að fá viðbrögð við auglýsingum, og það í miklu magni. Auglýsing sem t.d. sé sett inn klukkan tólf á föstudagskvöldi er komin með 60-70 svör hálftíma seinna.
Fréttir Innlent Mest lesið „Fólk er bara slegið“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Blása á gagnrýni og opna dagatalið Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Fleiri fréttir Skora á yfirvöld að taka SÁÁ til skoðunar „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ „Við fyrirgefum ráðherra þessa yfirsjón“ Fleiri en einn yfirheyrður en enginn í haldi Segir afnám vaxtabóta bitna á tekjulágum heimilum Blása á gagnrýni og opna dagatalið „Fólk er bara slegið“ Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Breytingar á innanlandsflugi vegna bilunar Langflestir upplifðu sólmyrkvann Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Kristrún flytur stefnuræðuna „Ég er hræddur við þessa menn“ Ekkert heitt vatn á Suðurnesjum í dag Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Sex gistu í fangageymslu í nótt Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi „Það kostar peninga að afla peninga“ Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Íkveikja í miðborginni Rukka meira fyrir aksturinn og sérstaklega fyrir veginn Þjóðin eigi náttúrupassa skilið „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ Sjá meira