Fleiri fréttir

Foo Fighters á Íslandi

Ísland er uppáhaldsstaðurinn okkar að spila á í heiminum, segir Dave Grohl, söngvari Foo Fighters. Tónleikar með hljómsveitinni verða haldnir í Egilshöllinni annað kvöld.

Eldur í eldhúsi við Rauðarárstíg

Á áttunda tímanum í kvöld varð eldur laus í eldhúsi íbúðar sem stendur við Rauðarárstíg. Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra hjá Slökkviliði Reykjavíkur voru tveir slökkvibílar sendir á staðinn. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og engin slys urðu á fólki.

Mikill munur á matarverði

Mikill munur var á hæsta og lægsta verði margra vörutegunda í verðkönnun sem Alþýðusamband Íslands framkvæmdi í byrjun mánaðarins.

Samfylking fær bestu bitana

Ný tillaga framsóknarmanna vegna áframhaldandi samstarfs R-listans í Reykjavík gerir ráð fyrir að Samfylkingin fái fyrsta val um borgarstjóra, formann borgarráðs og forseta borgarstjórnar samkvæmt heimildum Fréttablaðsins.

Líks leitað í Grafarvogi

Lögreglumenn og slökkviliðsmenn leituðu í gærkvöld að líki við Gullinbrú í Reykjavík. Leitin hófst eftir að barn sagði frá því að það hefði séð lík á floti þar sem það var á ferð. Að sögn lögreglu var lýsing barnsins þannig að ekki var annað hægt en að hefja leit af fullri alvöru.

Hjón slasast í gassprengingu

Maður og kona fengu annars og þriðja stigs bruna eftir gassprengingu á tjaldstæðinu í Bjarkarlundi í fyrrakvöld. Maðurinn var inni í hjólhýsi sínu ásamt konunni að skipta um gaskút þegar upp kom gasleki. Sprengingin varð þegar gasið komst í snertingu við loga sem var á gashellu inni í hjólhýsinu.

Segir fleiri spurningar vakna

Helgi Hjörvar segir það vekja upp spurningar að Ker hafi skrifað undir afsal að flokksskrifstofum Framsóknar um það leyti sem Búnaðarbanki var seldur árið 2002. Aðdróttanir úr lausu lofti gripnar segja framsóknarmenn sem keyptu húsið 1997.</font /></b />

Grunuðum nauðgara sleppt

Lögreglan á Höfn í Hornafirði hefur sleppt manninum sem handtekinn var í gær vegna gruns um að hafa nauðgað konu í bænum í fyrrinótt. Konan kærði nauðgun til lögreglunnar og var maðurinn handtekinn í kjölfarið. Sökum ölvunar var ekki hægt að yfirheyra hann strax en það er búið nú og hefur honum verið sleppt. Rannsókn málsins heldur áfram.

Kaupin á Somerfield í uppnámi

Kaupin á Somerfield-verslanakeðjunni komust í uppnám um helgina eftir að eigendur Baugs voru ákærðir fyrir auðgunarbrot og fleira, samkvæmt breskum fjölmiðlum. Samkvæmt þeim á Jón Ásgeir Jóhannesson að hafa boðist til að draga sig út úr tilboði sem fyrirtækið hefur gert ásamt fleirum í Somerfield.

Viðgerð lokið á Farice-strengnum

Viðgerð er lokið á Farice-strengnum lauk í nótt en ekkert samband hefur verið um hann um nokkura daga skeið. Viðgerðin hófst um miðnætti og var samband komið á um klukkan þrjú.

Ók á konu og flúði

Ekið var á konu við Vaglaskóg í nótt og ökumaðurinn stakk síðan af. Þegar hann var kominn nokkuð frá vettvangi beið lögreglan á Akureyri eftir honum og gómaði hann. Þá var einnig ekið á mann á Flúðum seint í gærkvöldi.

Stakkst réttindalaus inn í garð

Sautján ára ökumaður en réttindalaus reyndi að hrista lögregluna af sér um hálfþrjúleytið í nótt með þeim afleiðingum að hann stakkst inn í garð á mótum Langholtsvegar og Skeiðarvogs og staðnæmdist harkalega á húsinu.

Höfn: Hafast við í íþróttahúsinu

Tæplega hundrað manns hafast nú við í íþróttahúsinu á Höfn í Hornafirði eftir að fólkið neyddist til að yfirgefa tjöld sín vegna vonskuveðurs. Lögregla, björgunarsveitir og starfsmenn Rauða krossins brugðust skjótt við og hjálpuðu fólki að taka niður tjöld sín og búnað og komast í skjól.

Enginn handtekinn í nauðgunarmáli

Enginn hefur enn verið handtekinn vegna nauðgunarmáls sem kom upp í Ólafsvík í fyrrinótt. Fimmtán ára stúlka kærði nauðgun og taldi að sér hefði verið byrlað ólyfjan. Tvær aðrar stúlkur tilkynntu lögreglu líka að þær teldu að þeim hafi verið byrlað einhverju álíka.

Kaup 10-11 einn ákæruliða

Kaupin á Somerfield-verslanakeðjunni eru komin í uppnám vegna ákærunnar á eigendur Baugs. Breskir fjölmiðlar segja einn ákæruliðanna gegn Jóni Ásgeiri snúa að kaupum Baugs á verslanakeðjunni 10-11.

Lokaður vegna aurskriðu

Vegurinn um Fagradal milli Egilsstaða og Reyðarfjarðar er lokaður vegna aurskriðu við Mýrarbotna. Slæmt veður er á þessum slóðum, rigning og rok, og óljóst hvenær hægt verður að opna veginn aftur.

Sýning og tilsögn í fluguköstum

Fimm erlendir kastkennarar verða með kastsýningu og tilsögn í fluguköstum á Miklatúni í dag. Þar fer fremstur í flokki Henrik Mortensen sem er einhver besti flugukastari heims um þessar mundir. 

Ljósleiðari rofnaði fyrir austan

Ljósleiðari Símans rofnaði um hádegið í dag, að því er talið er vegna aurskriðunnar sem féll á milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar. Bilunin hefur engin áhrif á talsímasamband Símans á þessu svæði. Aftur á móti liggur útsending Ríkisjónvarpsins niðri en útsending Ríkisútvarpsins er inni.

Varað við veðurofsa á Kjalarnesi

Ökumaður bifhjóls missti stjórn á hjóli sínu og endaði utan vegar þegar skyndileg vindhviða reið yfir í Kollafirði fyrir stundu. Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni í Reykjavík er talið að meiðsl mannsins séu minniháttar. Veðurofsi er þessa stundina á Kjalarnesi og beinir lögregla þeim tilmælum til ökumanna að fara mjög varlega. Bílar með tjaldvagna og fellihýsi í eftirdragi gætu jafnvel þurft að bíða á meðan veðrið gengur yfir.</font />

Samfylkingin tilnefnir síðust

Samfylkingin hefur tilnefnt fulltrúa í nefnd um endurskipulagningu lagalegrar umgjarðar um stjórnmálastarfsemi á Íslandi, síðust flokka á Alþingi. Dregist hefur í meira en mánuð að halda fyrsta fund í nefndinni, þar sem beðið var tilnefningar frá Samfylkingunni, en nú er undirbúningur að starfsemi nefndarinnar hafinn.

Sjö bílar hið minnsta fastir

Að minnsta kosti sjö bílar eru fastir á milli aurskriða sem féllu á veginn um Fagradal milli Egilsstaða og Reyðarfjarðar í dag. Slæmt veður er á þessum slóðum, rigning og rok, og búast má við að ástandið vari að minnsta kosti fram á kvöld.

Sviftivindasamt víða um land

Það er mjög sviftivindasamt víða um land og vill Umferðarstofa beina þeim tilmælum til ökumanna, og þá sérstaklega þeirra sem að eru með eftirvagna, að halda löglegum hraða. Samkvæmt upplýsingum frá umferðarfulltrúa slysavarnarfélagsins Landsbjargar og Umferðarstofu gengur umferðin yfirleitt vel fyrir sig og það virðist ekki vera mikið um framúrakstur

Útskrifaður af sjúkrahúsi

Starfsmaður Landspítalans, sem veiktist af hermannaveiki, hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi. Hann er nú í endurhæfingu og eru batahorfur mjög góðar.

200 bíða eftir að komast í meðferð

Eftirmeðferðarstöðvum SÁÁ, Vík og Staðarfelli, þarf að loka í sex vikur yfir sumarmánuðina. Þórarinn Tyrfingsson segir nauðsynlegt að loka til að spara peninga.

Skessuhorn kaupir vefinn 847.is

Fyrirtækið Skessuhorn ehf, sem gefur út héraðsfréttablaðið Skessuhorn á Vesturlandi og vefmiðilinn skessuhorn.is, hefur fest kaup á hestavefnum 847.is.

Peningaþvætti ekki í ákæruliðunum

Peningaþvætti kemur ekki fyrir í ákæruliðunum í Baugsmálinu. Ríkislögreglustjórinn fékk fyrir rúmum fjórtán mánuðum aðgang að gögnum Kaupþings í Lúxemborg um reikninga fyrirtækja Baugs á þeim forsendum að sterkur grunur léki á peningaþvætti.

Sigur Rós syngur á íslensku

Upptökum á nýrri geislaplötu hljómsveitarinnar Sigur Rósar er lokið en þær hafa staðið með hléum síðasta eina og hálfa árið.

Vegurinn opnaður um níuleytið

Vegurinn um Fagradal milli Reyðarfjarðar og Egilsstaða mun verða opnaður um klukkan níu í kvöld að sögn Vegagerðarinnar. Unnið hefur verið að því frá því upp úr hádegi að ryðja veginn eftir að aurskriður féllu á hann. Ökumönnum er þó bent á að fara varlega því fleiri aurskriður gætu fallið.  

Enn haldið sofandi í öndunarvél

Manni er enn haldið sofandi í öndunarvél eftir að hann slasaðist alvarlega í árekstri jeppa og fólksbíls á Hellisheiði á sjötta tímanum á föstudaginn. Að sögn lækna hefur ástand mannsins lítið breyst undanfarinn sólarhring.

Fleiri skriður gætu fallið

Vegurinn um Fagradal er lokaður vegna aurskriðna en vonast er til að hægt verði að opna hann seint í kvöld. Að minnsta kosti sjö bílar voru fastir í dag á milli skriðna og er óttast að fleiri skriður geti fallið. Tæplega hundrað manns flúðu tjaldstæðið á Höfn í Hornafirði vegna vonskuveðurs og leituðu skjóls í íþróttahúsinu.

Gestir Humarhátíðar leituðu skjóls

All margir gestir humarhátíðar á Höfn þurftu aðstoð frá björgunarsveitum við að taka saman föggur sínar þegar veðrið tók að versna í gær morgunn. Þar sem ekki var ráðlagt að vera á ferðinni vegna veðurs leituðu um 80 manns skjóls í íþróttahúsinu og biðu þar eftir að veðrinu slotaði.

Ók próflaus á hús

Um klukkan hálf þrjú, aðfaranótt sunnudags hafði lögreglan afskipti af ökumanni í Austurborginni. Ökumaðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglunnar og reyndi að komast undan. Það tókst þó ekki betur en svo að bíllinn hafnaði inni í húsagarði á gatnamótum Skeiðarvogs og Langholtsvegs og rakst þar á húsvegg.

Alþjóðleg glæpastarfsemi á Íslandi

Alþjóðleg glæpastarfsemi með öllu sem henni fylgir hefur skotið rótum á Íslandi. Fréttastofa Stöðvar 2 mun á næstu dögum sýna röð frétta um skipulagða glæpi á Íslandi og umfang þeirra, þá fyrstu annað kvöld.

Húsbíll fauk út af

Síðdegis í gær fauk húsbíll út af veginum við Böðvarsholt í Staðarsveit. Bíllinn er gjörónýtur en allir sem í bílnum voru sluppu nokkuð vel og fengu að fara heim eftir læknisskoðun.

Umferðin dreifðari en oft áður

Ein mesta ferðahelgi ársins er afstaðin. Umferðin gekk stórslysalaust fyrir sig en víða urðu minniháttar óhöpp einkum vegna veðurs.

Talsvert tjón vegna rigninga

Gríðarleg rigning á Austurlandi olli víða tjóni í gær. Um hádegisbil féllu skriður á veginn í Fagradal milli Reyðarfjarðar og Egilsstaða og var veginum fljótlega lokað vegna skemmda og hættuástands. Vegurinn var lokaður allan daginn í gær.

Bifhjól fauk út af

Um klukkan fjögur síðdegis í gær fauk bifhjól út af veginum á Kjalarnesi. Gríðarlegt hvassviðri og rigning olli því að víða var illfært um vegi landsins og var ástandið sérlega slæmt á Vesturlandsvegi.

Spurning um hæfi Halldórs

Þingmenn stjórnarandstöðunnar segja Halldór Ásgrímsson hafa verið vanhæfan þegar gengið var frá sölu ríkisbankanna og vísa til lögfræðilegrar álitsgerðar sem meðlimir ríkisstjórnarinnar gera lítið með. Spurningum um vanhæfi Halldórs er ennþá ósvarað.

Davíð þyrlar upp ryki

Davíð Oddsson utanríkisráðherra segir þingmenn stjórnarandstöðunnar eki þora að spyrja um hæfi Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra þegar ríkisbankarnir voru seldir því þeir óttist svarið. Þingmenn stjórnarandstöðunnar eru á allt öðru máli.

Faðir, sonur og móðir prestar

Blað verður brotið í íslenskri kirkjusögu í kvöld þegar sonur starfandi presta verður vígður. Fréttamaður Stöðvar 2 hitti þrenninguna: Föðurinn, soninn - og móðurina.

Ríkisstjórnin líklega blekkt

"Ef þýski bankinn keypti aldrei bréf í Búnaðarbankanum, eins og haldið er fram, hefur ríkisstjórnin líklega verið blekkt," segir Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, um hinn þráláta orðróm að þýski bankinn Hauck & Aufhäuser hafi aldrei átt bréf í Búnaðarbankanum.

GSM-sendir Og Vodafone úti

GSM-sendir hjá Og Vodafone er úti á Egilsstöðum vegna bilunar í ljósleiðara á Austurlandi. Þá hefur bilunin einnig áhrif á ADSL-notendur á Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði og á Djúpavogi.

Skipverja í háska bjargað

Skipverja af Ísborgu SH var bjargað í gærkvöldi eftir að báturinn hálfsökk. Skipverjanum tókst ekki að kalla á hjálp en Bárður SH sem var nærstaddur lét vita af því sem var að gerast, sigldi síðan að Ísborginni og bjargaði skipverjanum um borð. Ísborgin var síðan tekin í tog og dregin í hálfu kafi inn á Arnarstapa.

Sturla ekki í forstjórastólinn

Sturla Böðvarsson samgönguráðherra mun ekki setjast í forstjórastól Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins en starfið hefur verið auglýst laust til umsóknar. Fram hefur komið í <em>Viðskiptablaðinu</em> að Sturla muni að öllum líkindum taka við starfinu en aðstoðarmaður ráðherra neitar því alfarið.

Sjá næstu 50 fréttir