Fleiri fréttir

Neysla einstæðra milljón umfram te

Neysluútgjöld einstæðra foreldra eru að meðaltali milljón hærri en meðaltekjur þeirra. Útgjöld hjóna og sambúðarfólks hafa aukist meira en útgjöld einstæðra og voru fjórðungi hærri 2002 en átta árum áður. </font /></b />

Játar aðild að lyfjaráni

Ungur maður hefur játað aðild að ráninu í Árbæjarapóteki á laugardag þar sem tveir grímuklæddir menn rændu lyfjum. Lögreglan í Reykjavík handtók í gær mann grunaðan um aðild að ráninu og játaði hann við yfirheyrslur í gærkvöldi. Hinn maðurinn er ófundinn en lögregla veit hver hann er. Hins vegar eru sjoppuræningjarnir sem frömdu rán í Kópavogi og Reykjavík í fyrrakvöld enn ófundnir.

Talinn vera með falsað vegabréf

Rúmlega þrítugur útlendingur sem kom til landsins með síðustu ferð Norrænu er grunaður um að vera með falsað vegabréf. Hann var fluttur til Reykjavíkur í gær til yfirheyrslu. Maðurinn hefur óskað eftir pólitísku hæli hér á landi en við athugun er komið í ljós að hann hefur líka óskað eftir því í Bretlandi. Óljóst er hver málalok verða hér á landi.

Fékk bónusvinning óskiptan

Íslendingur fékk bónusvinninginn í Víkingalottóinu óskiptan í gærkvöldi, en hann er 22 milljónir króna. Miðinn var seldur í söluturni í Keflavík. Aðalvinningurinn upp á rúmar 46 milljónir rann hins vegar óskiptur til Svía.

Má leggja 20% ofan á meðalverð

Lyfjagreiðslunefnd hefur gert samning við lyfjafyrirtækið Actavis um að það megi leggja tuttugu prósent ofan á meðalverð samheitalyfja í Noregi og Svíþjóð ef lyfin eru seld hér. Reyndar á Danmörk að vera með í meðaltalinu en vegna harðrar samkeppni á danska lyfjamarkaðnum, sem leitt hefur til verðlækkunar þar, hefur nefndin heimilað Actavis að sleppa Danmörku úr meðaltalsreikningunum þannig að fyrirtækið getur selt lyfin dýrarara verði hér á landi.

Getur aftur sprangað um bryggjuna

Eskfirðingurinn, sem fréttastofa Bylgjunnar og Stöðvar 2 sagði frá á dögunum að væri óhress með að geta ekki lengur sprangað óhindrað um bryggjurnar vegna girðingar gegn hryðjuverkamönnum, getur nú andað léttar.

Síminn gefur Fjarskiptasafnið

Síminn hefur ákveðið að gefa Þjóðminjasafninu Fjarskiptasafn sitt við Suðurgötu, bæði húsið sem áður hýsti gömlu loftskeytastöðina og alla munina sem þar eru sýndir. Þetta kemur í fréttatilkynningu frá Símanum.

Fékk bætur fyrir gæsluvarðhald

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi íslenska ríkið í morgun til að greiða karlmanni á fertugsaldri 500 þúsund krónur í bætur fyrir ólögmætt gæsluvarðhald sem hann sat í.

Námsmenn líða fyrir gengistap

Dæmi eru um að hjón, sem bæði eru í námi í útlöndum og lifa af námslánum, sem greidd eru eftir á, hafi tapað 200 til 300 þúsund krónum vegna gengisþróunar krónunnar. Margir fengu eftir á greidd lán afgreidd um áramótin þegar krónan var mjög sterk gagnvart öðrum gjaldmiðlum þannig að námsmennirnir fengu mun minni gjaldeyri en þeir höfðu reiknað með.

Álagningin vegna prentkostnaðar

Lyfjagreiðslunefnd hefur gert samkomulag við lyfjainnflytjendur um að þeir megi leggja tuttugu prósent ofan á meðalverð samheitalyfja eins og það er í Noregi og Svíþjóð vegna prentkostnaðar við leiðbeiningar á íslensku ef lyfin eru seld hér á landi.

Vilja kanna varðveislugildi húsa

Húsafriðunarnefnd og þjóðminjavörður mælast til þess að varðveislugildi þeirra húsa, sem jafnvel stendur til að rífa við Laugaveginn, verði kannað. Jafnframt að kannaðir verði nánar möguleikar á framtíðarnýtingu þeirra í tengslum við nýja uppbyggingu á sömu reitum.

Vill aðildarviðræður við ESB

Aðildarviðræður að Evrópusambandinu eiga að hefjast á kjörtímabilinu, samkvæmt drögum að ályktun flokksþings Framsóknarflokksins sem hefst á morgun. Þá er gert ráð fyrir að málið verði borið undir þjóðaratkvæði í næstu alþingiskosningum.

Fékk þrjú ár fyrir fíkniefnasmygl

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag Árna Geir Norðdahl Eyþórsson í þriggja ára fangelsi fyrir fíkniefnasmygl, en hann var sakfelldur fyrir að flytja til landsins rúmlega 800 grömm af hassi og 236 grömm af kókaíni. Árni Geir var á skilorði sem hann rauf með þessu broti og var ekki talið tilefni til að skilorðsbinda refsinguna.

Fá orður rússnesku kirkjunnar

Rússneska rétttrúnaðarkirkjan ætlar að sæma Ólaf Ragnar Grímsson forseta Íslands og Þórólf Árnason, fyrrverandi borgarstjóra, orðum. Ólafur Ragnar fær orðu heilags Vladímírs konungs 2. stigs og verður hún afhent á mánudag og daginn eftir verður orða Sergís á Radoness 3. stigs afhent borgarstjóranum fyrrverandi.

Dæmdir fyrir fjölda brota

Héraðsdómur Reykjaness dæmdi fyrir stundu tvo karlmenn um þrítugt í 9 og 6 mánaða fangelsi fyrir fjölda brota. Þeir voru dæmdir fyrir margvísleg umferðarlagabrot, fíkniefnabrot og þjófnaði þar sem meðal annars var stolið tölvubúnaði úr bíl sem var að verðmæti um 10 milljónir króna með því sem í henni var. Bótakrafa vegna þess taldist vanreifuð og var því vísað frá dómi.

Mesta magn LSD sem fundist hefur

"Fjögur þúsund skammtar eru ákaflega mikið magn efna og gætu verið í sölu mánuðum saman ef því er að skipta," segir Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkniefnadeildar hjá lögreglunni í Reykjavík.

Breikkun ekki á döfinni

Breikkun þjóðvegarins alla leið milli Reykjavíkur og Selfoss sem ýmsir telja jafn brýnt samgöngumál og frekari breikkun Reykjanesbrautar er ekki á dagskrá og ekki gert ráð fyrir frekari framkvæmdum á þessari leið næstu þrjú árin.

Færri tækifæri fyrir konur

Verkefnaval íslensku friðargæslunnar hefur verið með þeim hætti að mjög hallar á hlut kvenna að mati Kolbrúnar Halldórsdóttur, þingmanns Vinstri grænna, en samþætting jafnréttissjónarmiða í friðargæslu Íslendinga var rætt utandagskrár á þingi í gær.

Heimsminjanefnd Íslands stofnuð

Menntamálaráðherra hefur sett á laggirnar svokallaða heimsminjanefnd Íslands sem er hugsuð sem samráðsvettvangur til að fylgja eftir samningi UNESCO frá 1972 um menningar- og náttúrarfleifð heimsins. Þetta kemur fram í vefriti menntamálaráðuneytisins. Er nefndinni meðal annars falið það hlutverk að undirbúa tilnefningu íslenskra staða á heimsminjaskrá UNESCO, en nýverið urðu Þingvellir fyrsti staðurinn á Íslandi til þess að komast á skrána.

Þjóðir bregðist við hættunni

Þróun fuglaflensunnar, sem herjað hefur á Asíulönd er óbreytt, að sögn formanns framkvæmdastjórnar WHO. Hann segir að þjóðir heims þurfi að gera þær ráðstafanir sem hægt sé. Mesta hætta á heimsfaraldi frá árinu 1968. </font /></b />

Hafi samband við lögregluna

Árni Magnússon félagsmálaráðherra heitir á alla sem geta bent á dæmi um ráðningar fyrirtækja á ólöglegum erlendum starfsmönnum að setja sig í samband við lögregluna.

Nýr stjórnarformaður Baugs

Sigrún Þorláksdóttir var kjörin formaður kvenfélagsins Baugs í Grímsey á aðalfundi félagsins sem haldinn var um síðustu helgi. </font />

Alvarleg undirboð á vinnumarkaði

Alvarleg undirboð eru stunduð á íslenskum vinnumarkaði í skjóli þjónustusamninga og erlendra starfsmannaleigna. Af 750 erlendum iðnaðarmönnum á höfuðborgarsvæðinu er aðeins tíundi hluti á launaskrá íslenskra fyrirtækja. 250-300 starfsmenn eru á svörtum markaði. </font /></b />

Fundaði með Nóbelsverðlaunahafa

Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra átti í gær fund með dr. Wangari Maathai, aðstoðarráðherra umhverfis- og auðlindamála í Kenýa, sem hlaut friðarverðlaun Nóbels árið 2004 fyrir störf sín að friðar- og umhverfismálum.

KÍ skoðar enn að kæra ríkið

Kennarasamband Íslands hefur ekki kært lagasetningu á verkfall grunnskólakennara til Mannréttindadómstóls Evrópu. Stefnt hefur verið að því frá því að kennarar sömdu við sveitarfélögin.

Tíu stúlkubörn á leið frá Kína

Tíu stúlkur á öðru aldursári eru komnar í faðm íslenskra foreldra í Kína. Hinir nýbökuðu foreldrar eru tíundi hópurinn sem ættleiðir frá Kína.

Kaupa þjónustu

Marteinn Magnússon lögmaður segir að GT verktakar séu að kaupa þjónustu af erlendu fyrirtæki og um slíka þjónustusölu gildi lög frá árinu 2001 þannig að hið erlenda fyrirtæki geti sent starfsmenn sína hingað til að sinna þeirri þjónustu.

Mikil ánægja með íslenskt

Ríflega sextíu prósent neytenda gefa íslenskri mat- og drykkjarvöru hæstu einkunn í viðhorfskönnun sem IMG Gallup gerði fyrir Samtök iðnaðarins.

Ályktunardrög fara víða

Drög fyrir flokksþing Framsóknarflokksins um að hefja beri aðildarviðræður að Evrópusambandinu á þessu kjörtímabili hafa farið víða. Erlendar fréttastofur hafa haft samband við fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunnar og spurst fyrir um þessi sinnaskipti íslenskra stjórnvalda í Evrópumálum.

Þjónusta bætt við Leifsstöð

Leigubílstjórar geta frá og með fyrsta október næstkomandi ekið með farþega bæði til og frá Leifsstöð en það hefur hingað til verið óleyfilegt þar sem um tvö aksturssvæði hefur verið um að ræða.

Auga fyrir góð málefni

Sjóðurinn Auga var stofnaður á Kjarvalsstöðum. Sjóðnum er ætlað að styðja góð málefni í samfélaginu með afli auglýsinga.

Enginn grunaður vegna íkveikju

Ekki er enn vitað hver kveikti í atvinnuhúsnæðinu Votmúla á Blönduósi að sögn Kristjáns Þorbjörnssonar, yfirlögregluþjóns á staðnum.

Ríkissaksóknari kominn með málið

Lögreglan hefur lokið rannsókn sinni á orsökum brunans sem varð í einbýlishúsi á Sauðárkróki í byrjun desember. Maður um tvítugt lést í brunanum.

Haförn sást í Víðidal

Haförn hefur gert sig heimakominn í Húnaþingi vestra, á slóðum þar sem þessi konungur fuglanna á Íslandi sést venjulega ekki. Íbúarnir á bænum Dæli í Víðidal segja að hann hafi fyrst sést í október og síðan hafi hann öðru hverju komið í heimsókn.

Hæstiréttur staðfestir lögbann

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Norðurlands vestra um lögbann við því að stofnfé í Sparisjóði Skagafjarðar verði aukið.

Orkuverð hækkar vegna orkulaga

Orkuverð hækkar víða um land vegna nýrra raforkulaga sem banna ýmis sérkjör sem áður buðust. Reynt er að finna lausn en helst kemur til greina að auka niðurgreiðslur á orkuverði til ýmissa hópa.

Fjöltækniskóli Íslands

Fjöltækniskóli Íslands er nýtt nafn sameinaðs Stýrimannaskóla og Vélskóla Íslands. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðhera svipti hulunni af nýja nafninu í gærmorgun.

Menningarverðlaun DV afhent

Gamlir sykurmolar voru áberandi við afhendingu menningarverðlauna DV undir kvöld. Björk hlaut þar verðlaun fyrir tónlist. Kvikmyndaverðlaunin féllu Berki Gunnarssyni í skaut og Íslenski dansflokkurinn skaraði fram úr í leiklistarflokki. Bragi Ólafsson rithöfundur hlaut bókmenntaverðlaunin í ár.

Þrjú ár fyrir fíkniefnainnflutning

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær hinn 33 ára Árna Geir Norðdahl Þórðarson í þriggja ára fangelsi fyrir vörslu á um hálfu kílói á fíkniefnum og fyrir brot á skotvopnalögum.

Kærður fyrir fjárdrátt

Héraðsdómur Reykjavíkur þingfesti í gær ákæru á hendur lögregluþjóni úr Dalasýslu. Lögregluþjóninum er gefið að sök að hafa dregið að sér fé og nota lögreglubifreið í eigin þágu, sem er brot í opinberu starfi. Meint brot voru framin í fyrra.

Ríkið greiði bætur fyrir varðhald

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær íslenska ríkið til að greiða 36 ára gömlum karlmanni 500 þúsund krónur í bætur fyrir að hafa hneppt hann í gæsluvarðhald án fullnægjandi rökstuðnings. Maðurinn stefndi ríkinu í júní í fyrra.

Tveir teknir með fíkniefni

Tveir menn á fertugsaldri voru handteknir með tvö grömm af amfetamíni og lítilræði af hassi í Hafnarfirði um tíuleytið í gærmorgun. Að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði hafa báðir mennirnir komið við sögu lögreglunnar áður og þótti ástæða til afskipta þegar þeir sáust á gangi.

Segir R-listann svíkja samkomulag

R-listinn sveik samkomulag sem hann gerði við F-listann, að sögn Ólafs F. Magnússonar borgarfulltrúa. Ólafur segist hafa frestað að flytja tillögu um stofnun nýs starfshóps um deiliskipulag við Laugaveg að ósk Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur borgarstjóra. Hún hefði á móti heitið að R-listinn myndi ekki nýta frestunina til að flytja aðrar tillögur um málið.

Efast um að fé fari til fatlaðra

Rúmlega átta þúsund fermetra húsnæði hefur verið byggt á Sólheimum, þar sem aðeins 40 fatlaðir búa. Þar á meðal er bygging sem er leigð út fyrir ráðstefnuhald og kirkja sem rúmar tvöfaldan íbúafjölda Sólheima. Stjórnarmaður Þroskahjálpar á Suðurlandi segir þetta brandara og fyrrverandi starfsmaður Sólheima vill heldur sjá fénu varið í að bæta þjónustuna við fatlaða.

Ekki hrifinn af ályktun um ESB

Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, er ekki hrifinn af tillögu um að flokksþing Framsóknarflokksins álykti að taka upp aðildarviðræður við Evrópusambandið.

Sjá næstu 50 fréttir