Fleiri fréttir

Segir valdaráni afstýrt

Naumlega tókst að afstýra valdaráni þegar laganefnd Framsóknarflokksins komst að þeirri niðurstöðu í gærkvöld að aðalfundur Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi, hefði verið ólöglegur, að mati Unu Maríu Óskarsdóttir varaformanns. Aðalheiður Sigursveinsdóttir sem var stjórnarmaður í Freyju segir gleðilegt að nýjar aðildarkonur hafi verið hreinsaðar af áburði um vafasaman tilgang með veru sinni í félaginu.

Erlent vinnuafl notað í hagstjórn

Fyrrverandi forstjóri Útlendingastofnunar segir Íslendinga ekki standa sig nógu vel í málefnum innflytjenda. Hann segir erlent vinnuafl á vissan hátt notað sem hagstjórnartæki.

Bjóðast til að sýna leiki á Sýn

Sjónvarpsstjóri Sýnar hefur boðið sjónvarpsstjóra Skjás eins að senda út á Sýn þá leiki í ensku knattspyrnunni sem Skjár einn sendir út án þula.

Sjálfstæðisflokkurinn í lægð

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með um 33,5 prósent að meðaltali úr síðustu ellefu skoðanakönnunum Fréttablaðsins sem ná frá ágúst mánuði árið 2003 til 1. febrúar síðastliðins. Sjálfstæðisflokkurinn fékk 33,7 prósenta fylgi í síðustu alþingiskosningum. Það er þriðja lakasata útkoma flokksins frá upphafi. 

Áhyggjur af niðurrifi húsa

Margar nýbyggingar við Laugaveg eru gersamlega úr takt við eldri byggð og götumynd þessarar helstu götu borgarinnar að sögn Ólafs F. Magnússonar, borgarfulltrúa F-listans.

Bara bætur vegna útboðs árið 1996

Líklegt er að Reykjavíkurborg fari aðeins fram á skaðabætur frá olíufélögunum Olís, Essó og Skeljungi vegna eins af þremur útboðum sem snertu borgina og fjallað er um í úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála.

Hálfur milljarður í landnámsbæinn

Oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn gagnrýnir það sem hann kallar gríðarlega mikinn kostnað borgarinnar vegna landnámsskálans í Aðalstræti. Borgarstjóri segir kostnaðinn vera í samræmi við áætlanir. Heildarkostnaður borgarinnar vegna landnámsbæjarins verður því vel yfir hálfan milljarð króna.

Halldór fær falleinkunn

Helmingur landsmanna telur að Halldór Ásgrímsson hafi staðið sig illa eða frekar illa sem forsætisráðherra samkvæmt könnun Fréttablaðsins. Prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands segir að útkomuna vera með því lakasta sem hann hafi séð. Sígandi lukka er best segir aðstoðarmaður Halldórs.

Segir könnun Gallups marktækari

Fylgi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar er nær hnífjafnt ef marka má könnun Fréttablaðsins í dag. Vinsældir Framsóknarflokksins hafa hins vegar sjaldan verið minni en varaformaður hans telur könnun Gallups marktækari.

Lyf eru aðeins skammtímalausn

Lyf eru aðeins skammtímalausn í meðferð geðraskana hjá börnum og ráðast ekki að rótum vandans þó þau slái á einkennin, segir danskur sérfræðingur sem staddur er hér á landi.

Ókurteisi færist í vöxt

Ókurteisi og niðurlægjandi framkoma við fólk í þjónustustörfum hefur færst í vöxt á undanförnum árum. Starfsmenn Tryggingastofnunar fá reglulega sérstaka áfallahjálp vegna erfiðra viðskiptavina og hefur verið kennt að hengja áhyggjurnar upp á snaga í lok vinnudags.

Bíða eftir megrun á Reykjalundi

Þrjú hundruð sextíu og sex manns bíða eftir að komast í megrun á Reykjalundi, þar af 250 sem ætla í skurðaðgerð til að minnka í sér magann. Offita er vaxandi heilbrigðisvandamál hér á landi en samt sem áður sáu stjórnvöld ekki ástæðu til að geta hennar í heilbrigðisáætlun sem gildir til ársins 2010.

Aðferð veigameiri en verknaður

Aðferðin sem notuð er við nauðgun skiptir meira máli heldur en verknaðurinn sjálfur samkvæmt lögum. Þetta er niðurstaða kandídatsritgerðar í lögfræði við Háskóla Íslands.

Vill efla trúverðugleikann

Bjarnason, þingmaður Vinstri grænna, er flutningsmaður þingsályktunartillögu um sjálfstæði og eflingu Fjármálaeftirlitsins. Hann vill að fjármálaeftirlitið verði fært undir alþingi til að efla trúverðugleika þess en það er nú undir viðskiptaráðherra.

Áfram í öryggisgæslu á Sogni

Móðirin sem varð ellefu ára dóttur sinni að bana og særði son sinn á Hagamel í lok maí í fyrra er gert að sæta áfram öryggisgæslu á réttargeðdeildinni að Sogni. Hún er ekki talin sakhæf og segir í áliti geðlæknis að hún hafi verið alls ófær um að stjórna gerðum sínum þegar hún framdi verknaðinn.

Ofurforstjórar ekki með bílstjóra

Allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa bíl og einkabílstjóra til umráða. Ekki verður séð að forstjórar og stjórnarformenn stærstu fyrirtækja landsins njóti slíkra hlunninda þó að erill þeirra sé mikill. Kostnaðurinn við bílaflota ríkisstjórnarinnar nemur nærri hálfum milljarði á sex árum, að sögn Jóhönnu Sigurðardóttur. "Praktískt," segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. </font /></b />

Dettifoss kominn til Eskifjarðar

Varðskipin Týr og Ægir komu með flutningaskipið Dettifoss í togi til Eskifjarðar um miðnætti eftir svaðilför út af Austfjörðum, sem hófst með því að stýrið datt af Dettifossi á föstudagskvöldið og skipið varð stjórnlaust. Vel gekk að leggja þessu stærsta flutningaskipi íslenska flotans að bryggju enda var veður orðið gott.

Samþykktu kjarasamning

Félag leikskólakennara hefur samþykkt nýgerðan kjarasamning við launanefnd sveitarfélaganna og verður því ekki boðað til verkfalls. Tæplega 1500 manns eru á kjörskrá og tók rúmlega 91 prósent þátt í kosningunni. Rúm 64 prósent samþykktu samninginn en 32 prósent voru honum andvíg.

Reyndi að stinga lögreglu af

Ökumaður fólksbíls reyndi að stinga lögregluna af þegar hún ætlaði að hafa tal af honum við venjulegt eftirlit í Breiðholti undir morgun. Eftir að hafa gefið vel í snarstöðvaði hann bílinn og hljóp út úr honum en lögreglumenn náðu honum skömmu síðar. Grunur leikur á að hann hafi stolið bílnum enda hefur hann áður orðið uppvís að slíku.

Vilja lækka álagningarhlutfall

Stjórn Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í Reykjavík, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar hún mótmælir hækkunum á fasteignagjöldum í Reykjavík sem komi í kjölfar hækkunar fasteignamats um áramótin. Stjórnin telur að Reykjavíkurborg hefði átt að fara sömu leið og mörg önnur sveitarfélög hafa gert en þau völdu að lækka álagningarhlutfallið niður fyrir 0,32% þannig að gjöld hækkuðu ekki meira en 5% og jafnvel lækkuðu í einhverjum tilvikum.

Loðnuvinnsla gengur vel

Loðnuvinnsla á Fáskrúðsfirði hefur gengið vel þennan fyrsta mánuð ársins og hefur Loðnuvinnslan hf. aldrei tekið við jafnmikilli loðnu í janúar frá því að verksmiðja fyrirtækisins tók til starfa 1996, eða 20.700 tonnum. Þetta kemur fram á fréttavef Austurbyggðar. Einnig kemur fram að bæði innlend og erlend skip hafi komið þangað til löndunar.

Vekja athygli á skaðsemi reykinga

Hundrað og þrjátíu tannlæknar um allt land ætla eftir hádegi á föstudaginn að bjóða almenningi ókeypis tannskoðun og ráðgjöf, einkum til að vekja athygli á skaðsemi reykinga fyrir tennurnar.

Fjölmiðlanefnd vinnur lengur

Nefnd menntamálaráðherra, sem á að gera tillögur að frumvarpi um fjölmiðla, nær ekki að skila af sér á morgun eins og til stóð. Karl Axelsson, formaður nefndarinnar, segir að tíminn sem nefndinni var ætlaður til verksins hafi reynst allt of stuttur miðað við umfang þess og það skýrist ekki fyrr en eftir mánuð eða svo hvenær nefndin ljúki störfum og skili af sér skýrslu.

Dettifoss dreginn til Rotterdam

Stór, þýskur dráttarbátur er lagður af stað hingað til lands til að draga Dettifoss frá Eskifirði til Rotterdam þar sem hann verður tekinn í þurrkví til viðgerðar.

Vilja ógilda aðalfund Freyju

Þess hefur verið krafist að aðalfundur Freyju, félags framsóknarkvenna í Kópavogi, verði úrskurðaður ógildur. Fjölskylda Árna Magnússonar félagsmálaráðherra og Páls, bróður hans, er sögð hafa fjölmennt á fundinn.

Vilja vinna og selja eigin vörur

Vaxandi áhugi er meðal bænda á því að fá að vinna og selja sjálfir eigin landbúnaðarvörur. Landbúnaðarráðherra er þessa stundina að kynna hvernig norskir bændur hafa náð árangri á þessu sviði.

Sker upp herör gegn ósannindum

Impregilo hefur skorið upp herör gegn því sem fyrirtækið kallar ósannar fullyrðingar um starfsemi félagsins. Félagið fór í dag fram á það við Lögreglustjórann í Reykjavík að fram færi opinber rannsókn vegna ásakana á hendur félaginu sem birtust í DV þann 27. janúar 2005, eftir því sem fram kemur í yfirlýsingu frá félaginu.

Miltisbrandsgirðing stöðvuð

Vinna við girðinguna að Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd hefur verið stöðvuð, að sögn Gunnars Arnar Guðmundssonar héraðsdýralæknis.

Impregilo sýknað af launakröfum

Ítalska verktakafyrirtækið Impregilo var í dag sýknað af launakröfum fyrrverandi innkaupastjóra upp á um þrjár og hálfa milljón króna í Héraðsdómi Reykjavíkur. Krafa innkaupastjórans, sem er viðskiptafræðingur að mennt, var í mörgum liðum en hann krafðist meðal annars greiðslu fyrir yfirvinnu á starfstíma og launa í uppsagnarfresti auk orlofs af yfirvinnu og uppsagnarfresti.

Náttúrulegar vörur inni

"Þetta eru virkilega góðar fréttir," segir Jóhannes Sigfússon, bóndi á Gunnarsstöðum á Langanesi og formaður Landssambands sauðfjárbænda. Fréttablaðið greindi frá því í gær að íslenska lopapeysan væri komin í tísku á ný og að sala á lopa hefði stóraukist.

Kostar 30.000 að leysa út kött

Kosta mun um 30.000 krónur að leysa út kött sem eftirlitsmenn á Suðurnesjum hafa veitt og hefur verið geymdur í viku, að sögn Magnúsar Guðjónssonar framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Suðurlands.

Rúðuþurrkurnar endurnýjaðar

Annir hafa verið á bensínstöðvum síðustu daga þar sem fólk hefur streymt að til að skipta um rúðuþurrkur, eða vinnukonur eins og sumir kjósa að kalla þær.

Heiftarleg markaðssetning

Markaðssetning á verkjalyfinu Vioxx var mjög heiftarleg, segir Magnús Jóhannsson prófessor. Hann rifjar upp fund framleiðandans í Berlín, með stórum hópi lækna, meðal annars frá Íslandi þar sem Vioxx var lofsungið, en ekkert rætt um gallana. </font /></b />

Betra líf á 4 dögum fyrir 60.000

Hvatningarþjálfarinn Anthony Robbins er sagður geta breytt lífi fólks á aðeins fjórum dögum. Hann ku vera sá virtasti í heiminum á sínu sviði enda verið að í næstum 30 ár. Útlit er fyrir að um eitt hundrað Íslendingar sitji námskeið hans í Lundúnum í maí. Miðinn kostar 60 þúsund krónur og fæst á kostakjörum. </font /></b />

Aukin notkun þrátt fyrir viðvörun

Landlæknisembættið sendi út viðvörun til lækna um að fara gætilega í ávísun verkjalyfsins celebra, sem er af sama flokki og Vioxx og fellur undir svokallaða COX - 2 hemla.

Beint frá bóndanum

Í gær kynnti Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra skýrslu nefndar sem fjallað hefur um heimasölu afurða bænda, en hann telur það afar nauðsynlegt að bændur geti í vaxandi mæli selt afurðir sínar beint frá búum sínum og vill að vinna verði lögð í það af krafti.

Ríkið blæs út

Ríkisstofnunum hefur fjölgað og rekstur þeirra aukist á undanförnum árum, að mati Verslunarráðs Íslands. Nýjar stofnanir hafa verið settar á laggirnar, stofnanir hafa fært út kvíarnar og minna boðið út en áður og ríkisfyrirtæki hafa keypt einkafyrirtæki. Auknar kröfur eru um að ríkisfyrirtæki skapi sértekjur. </font /></b />

Impregilo sýknað

Impregilo SpA-Iceland var sýknað af kröfum stefnanda, Birgis Guðjónssonar viðskiptafræðings, samkvæmt dómi sem féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.

Athugasemdir frá SA

Hrafnhildur Stefánsdóttir, yfirlögfræðingur Samtaka atvinnulífsins, segir að athugasemdir hafi verið gerðar í allverulegum atriðum við reglugerðardrög félagsmálaráðherra um atvinnuleyfi útlendinga.

Skuldbundin að aðstoða Fjarðaál

Ríkisstjórnin hefur skuldbundið sig til að aðstoða Fjarðaál við að öðlast þau atvinnuleyfi sem nauðsynleg eru hvenær sem Fjarðaál fer fram á það.

Einblínt um of á álverið

Tryggvi Harðarson, bæjarstjóri á Seyðisfirði, telur að það komi niður á Austurlandi ef stjórnvöld einblína um of á álversuppbygginguna fyrir austan.

Fjallað um Fischer á fimmtudag

Fjallað verður um málefni bandaríska skákmeistarans Bobby Fischers á fundi í allsherjarnefnd Alþingis á fimmtudaginn.

Erna framkvæmdastjóri Akademíunnar

ReykjavíkurAkademían hefur ráðið Ernu Indriðadóttur, fréttamann á fréttastofu Sjónvarpsins, í starf framkvæmdastjóra til eins árs frá og með 1. febrúar. Erna hefur starfað við fjölmiðla í rúm 20 ár en hún lauk BA-prófi í samfélagsfræði frá Háskólanum í Lundi árið 1981 og MPA-námi frá Washington-háskóla í Seattle í Bandaríkjunum árið 2001.

Söfnuðu fé með kaffi- og kökusölu

Börn á frístundaheimilinu Skýjaborgum í Vesturbæjarskóla söfnuðu á dögunum 27.848 krónum með kaffi- og kökusölu til styrktar fórnarlömbum flóðbylgjunnar í Suðaustur-Asíu. Féð rennur til söfnunarinnar Neyðarhjálp úr norðri og tók fulltrúi Rauða kross Íslands, Ingibjörg Eggertsdóttir, formlega við því í dag.

Sjá næstu 50 fréttir