Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Impregilo vill opinbera rannsókn Portúgalinn sem sakaður er um að kúga fé og brennivín út úr starfsfólki, starfar enn við Kárahnjúka. Impregilo fullyrðir að fyrirtækið sé haft fyrir rangri sök og hefur farið fram á opinbera rannsókn. Fyrirtækinu var afhentur undirskriftarlisti tuga starfsmanna þess fyrir ári þar sem sömu ásakanir komu fram en ekkert var aðhafst. 31.1.2005 00:01
Einkaaðilar byggi samgöngumiðstöð Samgönguráðherra vonast til að ákvörðun um að reisa nýja samgöngumiðstöð á Reykjavíkurflugvelli verði tekin innan fárra mánaða. Einakaðilar myndu byggja hana og hún bæði þjóna flugumferð og rútum. 31.1.2005 00:01
Tveir ráðherrar bætast í hópinn Ekki er víst að breytingar á eftirlaunalögum sem heimila fyrrverandi ráðherrum og alþingismönnum að þiggja eftirlaun þótt þeir séu í hálaunastöðum annars staðar, verði afturvirkar. Tveir nýir ráðherrar hafa bæst í hópinn eftir að umræðan komst í hámæli. 31.1.2005 00:01
Orsök bilunar finnst í þurrkví Ekki verður hægt að segja til um hvað olli biluninni í Dettifossi á föstudaginn fyrr en skipið verður komið í þurrkví. Stórt, þýskt dráttarskip er á leiðinni hingað til lands til þess að draga Dettifoss til Rotterdam. 31.1.2005 00:01
Vonast eftir meira öryggi Lítil stúlka frá Keflavík lést fyrir tíu dögum eftir erfiðleika við fæðingu. Flytja þurfti móður hennar með sjúkrabíl til borgarinnar vegna þess að skurðstofur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru ekki opnar allan sólarhringinn. Foreldrarnir syrgja dóttur sína sárt en segjast vonast til þess að reynsla þeirra verði til einhvers; að öryggi verði bætt fyrir íbúa á Suðurnesjum. 31.1.2005 00:01
Guðni telur ekki sótt að sér Guðni Ágústsson, varaformaður Framsóknarflokksins, segir átökin í flokknum að undanförnu óheppileg félagslega. Hann telur þetta þó ekki vera ráðabrugg til að steypa sér af stóli. 31.1.2005 00:01
Bændur vilja svigrúm til sölu Bændur vilja meira svigrúm til að selja afburðir sínar beint frá búunum og leggur nefnd á vegum landbúnaðarráðherra meðal annars til að kannað verði hvort slaka megi á kröfum um gerilsneyðingu mjólkur. 31.1.2005 00:01
Jafnréttisákvæðin verði hert Framsóknarkonur ætla að leggja það fram á flokksþingi að það verði sett í lög félagsins að hvort kynið skipi ekki minna en 40 prósent af öllum ábyrgðarstöðum og framboðslistum. 31.1.2005 00:01
Frestar skilum á skýrslu Fjölmiðlanefndin sem menntamálaráðherra skipaði í október síðastliðnum nær ekki að skila greinargerð sinni á tilsettum tíma, en áætlað var að nefndin skilaði af sér skýrslu í dag. 31.1.2005 00:01
Átök í framsókn Framsóknarmenn hafa skipast í tvær fylkingar sem takast á innbyrðis. Önnur starfar í nánum tengslum við Halldór Ásgrímsson en hin er ósátt við vinnubrögð flokksins og vill breytingar. Ekki er talið víst að deilurnar nái upp á yfirborðið á flokksþingi. 31.1.2005 00:01
Impregilo vill rannsókn Impregilo hefur farið fram á opinbera rannsókn vegna fréttar í DV. Þar er greint frá fyrrum starfsmönnum Impregilo sem sögðust hafa verið neyddir til að borga yfirmanni fyrirtækisins brennivín í skiptum fyrir yfirvinnu. 31.1.2005 00:01
Sameining lögregluliða Lagt er til í skýrslu dómsmálaráðuneytisins um nýskipun lögreglumála sem birt var í gær að lögregluembættin þrjú á Höfðuborgarsvæðinu verði sameinuð. 31.1.2005 00:01
Samfylkingin særst flokka Fylgi Samfylkingarinnar eykst um fjögur prósentustig og mælist með ríflega 34 prósenta fylgi í könnun Gallups. Flokkurinn mælist með mest fylgi stjórnmálaflokka. 31.1.2005 00:01
Sjómaður slasaðist á hendi Sjómaður á togaranum Guðmundi í Nesi slasaðist illa á hendi í gær. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti manninn eftir að rætt hafði verið um ástand hans við lækni. 31.1.2005 00:01
Fimm ára barn féll af fjórðu hæð Fimm ára barn féll af svölum fjórðu hæðar fjölbýlishúss í Austurborginni rétt fyrir klukkan sex í gær. 31.1.2005 00:01
Austurland skelfur Jarðskjálfta varð vart á Austurlandi í gærkvöldi. Samkvæmt Veðurstofunni voru upptök hans um 200 kílómetra austan af landinu. Skjálftinn hafi minnst verið 5,2 á Richter. 31.1.2005 00:01
Ekki heppilegt að rugga skipinu Össur Skarphéðinsson segir Samfylkinguna á góðri siglingu og því ekki heppilegt að rugga skipinu með því að skipta um skipstjóra. Hann segir kosningabaráttuna mælikvarða á flokkinn en að sín barátta verði einungis háð á málefnalegum grunni. </font /></b /> 30.1.2005 00:01
Illa gengur með Dettifoss Dettifoss lónar enn stjórnlaus með brotið stýrisblað um 23 sjómílur úti fyrir Reyðarfirði. Varðskipin Týr og Ægir hafa nú í á annan sólarhring barist við að draga skipið til hafnar en illa gengur. 30.1.2005 00:01
Lög um hringamyndun lögð fram Lög um hringamyndun verða lögð fram á Alþingi á næstu dögum að því er fram kemur í opnuviðtali við Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra í Morgunblaðinu í dag. Halldór segir að í lögunum felist endurskipulagning á Samkeppnisstofnun þannig að eftirlit með hringamyndun verði hert en jafnframt verði kveðið á um refsingar vegna brota á lögunum. 30.1.2005 00:01
Vegurinn um Mýrdalssand lokaður Þjóðvegurinn um Mýrdalssand er lokaður. Leysingavatn rauf skarð í veginn seint í nótt en miklar rigningar, hláka og rok hefur verið á þessum slóðum. 30.1.2005 00:01
Fok á Akureyri Töluverður erill var hjá lögreglunni á Akureyri í gær og í nótt vegna veðurs. Vindhraða sló upp í þrjátíu metra þegar mest var og þakplötur og þakskyggni fóru af stað. 30.1.2005 00:01
Skerpt á lögum Samkeppnisstofnunar Ríkisstjórnin ætlar ekki að setja sérstök lög um hringamyndun. Í staðinn verður skerpt á lögum um Samkeppnisstofnun og verður frumvarp þess efnis lagt fram á Alþingi á næstu dögum. 30.1.2005 00:01
Umferð um veginn hleypt á Bráðabirgðaviðgerð á þjóðveginum um Mýrdalssand er lokið og umferð hefur verið hleypt um veginn á ný. Hann lokaðist í morgun þegar leysingavatn rauf skarð í veginn. Hins vegar hefur umferð verið lokað um veginn við Ferjukot í Borgarfirði. 30.1.2005 00:01
Siv segist ekki muna Siv Friðleifssdóttir, fyrrverandi ráðherra, segist ekki muna hvort stuðningur Íslands við innrásina í Írak hafi verið ræddur á ríkisstjórnarfundi þann 18. mars árið 2003. Þetta kom fram í þættinum Silfur Egils á Stöð 2 í hádeginu í dag. 30.1.2005 00:01
Skipin nálgast land Varðskipin Týr og Ægir eru nú aftur lögð af stað með Dettifoss í togi eftir að hafa haldið sjó fyrir austan land í sólarhring vegna veðurs. Tæpir tveir sólarhringar eru liðnir frá því stýrisblað Dettifoss brotnaði í tvennt. Björgunaraðgerðir hafa gengið treglega enda hefur haugasjór og vonskuveður hamlað aðgerðum. 30.1.2005 00:01
Þakplötur fuku og malbik fór af Hvassviðri var víðast hvar um landið um helgina og loka þurfti veginum við Mýrdalssand sökum vatnavaxta aðfaranótt sunnudags. Á Akureyri fuku þakplötur af raðhúsalengjum og vörubifreið fauk út af veginum rétt norðan við bæinn. 30.1.2005 00:01
Getur þjóðarsálin búið í buxum? Getur þjóðarsálin búið í klakaboxi, á snaga eða í gallabuxum? Þessari spurningu er varpað fram á sýningu sem opnuð var á Þjóðminjasafninu fyrir helgi. Sýningin ber nafnið „Ómur - Landið og þjóðin í íslenskri hönnun“ og þar getur að líta verk 42 hönnuða sem valin voru í sex flokkum: snjórinn, sauðkindin, sjórinn, þjóðbúningurinn, hraunið og þjóðlegt. 30.1.2005 00:01
Formennirnir viðurkenni mistök Steingrímur Hermannson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, segist halda að Davíð Oddsson hafi einn tekið ákvörðun um að styðja innrásina í Írak. Hann hvetur stjórnarherrana til að tala opinskátt um málið, birta fundargerðir utanríkismálanefndar og viðurkenna að mistök hafi verið gerð. 30.1.2005 00:01
Ekki lengur með hreinan skjöld Steingrímur Hermannsson fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins telur það hafa verið við hæfi að jafn mikilvægt mál og stuðningur Íslands við innrásina í Írak hefði átt að vera tekið upp og rætt í ríkisstjórn. 30.1.2005 00:01
Tekið undir hugmyndir Georgs "Ég fagna mjög sjónarmiðum Georgs um að íhuga leigu á skipi," segir Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslynda flokksins. Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, sagði í viðtali við Fréttablaðið á laugardag að hagkvæmara væri að leigja nýtt varðskip í stað þess að kaupa það. 30.1.2005 00:01
Flóðbylgja gæti náð til Grindavíku Gjósi Katla af öllum mætti gæti flóðbylgja skollið á suðurströnd landsins. Þessi möguleiki er fjarlægur en engu að síður raunhæfur og út frá honum verður unnið þegar aðgerðir vegna hugsanlegs Kötlugoss verða ákveðnar. 30.1.2005 00:01
Hagkvæmasti kosturinn valinn Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra finnst sjálfsagt að skoða til hlítar möguleikann á að taka nýtt varðskip á leigu í stað þess að festa á því kaup. 30.1.2005 00:01
Safnar sorpi í kjallaraíbúð Rottugangur og flær hrjá nágranna konu við Hverfisgötu sem er aftur byrjuð að safna rusli í kjallaraíbúð sína eftir fimm ára hlé. Konan var borin út fyrir fimm árum vegna subbuskapar. Hún neitar að flytja úr húsinu eða bæta umgengina. Nágrannarnir geta hvergi leitað réttar síns. Þeir geta aðeins skorað á hana skriflega að bæta umgengnina. <b><font face="Helv" color="#000080" size="2"></font></b> 30.1.2005 00:01
Skattsvik rædd í þinginu Skattsvik og aðgerðir gegn þeim verða til umræðu á Alþingi í dag. 30.1.2005 00:01
Hvorki kynja- né innanflokksátök Páll Magnússon, varaþingmaður Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi, segist ekki hafa gert upp við sig hvort hann sækist eftir að leiða lista flokksins í næstu bæjarstjórnarkosningum í Kópavogi. Ýmsir innan flokksins telja að tilgangur hallarbyltingar í Freyju, félagi framsóknarkvenna í Kópavogi í liðinni viku, hafi verið að tryggja honum oddvitastöðu í bænum. 30.1.2005 00:01
Dettifoss kominn á lygnan sjó Búist var við því í gærkvöldi að varðskipin Týr og Ægir kæmu kæmi með flutningaskipið Dettifoss í togi til hafnar á Eskifirði í nótt. Þau voru stödd í mynni Reyðarfjarðar um klukkan sjö í gærkvöld. Stýrisblað skipsins brotnaði af um klukkan átta á föstudagskvöld þar sem það var statt austur af landinu á leið til Eskifjarðar frá Reykjavík. 30.1.2005 00:01
40% neita líffæragjöf Fjörutíu prósent aðstandenda látinna sem geta gefið líffæri neita slíkum beiðnum. Íslendingar gefa færri líffæri en aðrir Norðurlandabúar. 30.1.2005 00:01
Pompei norðursins í Vestmannaeyjum Pompei norðursins mun rísa í Vestmannaeyjum. Grafa á upp hús og aðrar minjar sem urðu undir í gosinu árið 1973 og setja á fót sýningarsvæði um liðna tíð. Menningarfulltrúi Vestmannaeyja segir verkefnið verða unnið í samstarfi við fyrrum íbúa húsanna. 30.1.2005 00:01
Líkan til að finna kuml Fornleifafræðingar hafa gert líkan til að finna út líklega staðsetningu heiðinna grafa. Miklar vonir eru bundnar við að það skili því að heil og óskemmd kuml komist í hendur fornleifafræðinga. 30.1.2005 00:01
Íslenk stuttmynd um einelti Einelti getur eyðilagt líf fólks til frambúðar, segir ungur aðalleikari nýrrar íslenskrar stuttmyndar um einelti og afleiðingar þess sem frumsýnd var í Laugarásbíói í dag. 30.1.2005 00:01
250 þúsund til að rétta námið af Grunnskólar Reykjanesbæjar fá hver um sig 250 þúsund króna styrk frá bæjaryfirvöldum. Styrkina á að nýta til að bæta nemendur 10. bekkja skólanna í stærðfræði og íslensku fyrir samræmd próf í vor. 30.1.2005 00:01
Ótímabært að meta sérsamninginn Algerlega ótímabært er fyrir samninganefndir kennara og sveitarfélaga að tjá sig um hvernig þeim lítist á sérkjarasamning í Sjálandsskóla fyrr en þeir hafi hann í höndunum, segir Ásdís Halla Bragadóttir bæjarstjóri í Garðabæ. 30.1.2005 00:01
Garðabær getur ekki ákveðið launin Sérsamningur við kennara í Sjálandsskóla, nýjum grunnskóla Garðabæjar, getur ekki orðið að veruleika nema launanefnd sveitarfélaga og Kennarasamband Íslands samþykki hann. 30.1.2005 00:01
Ríkið á í 200 fyrirtækjum Ríkið á eignarhlut í 206 fyrirtækjum. Ríkissjóður á 24 fyrirtæki. Þingmaður Sjálfstæðisflokks segir að sameina eigi Byggðastofnun og Nýsköpunarsjóð. Sjóðirnir fjárfesti jafnvel í sömu fyrirtækjunum. </font /></b /> 30.1.2005 00:01
Staða formanns rædd Stjórn Blaðamannafélags Íslands hefur verið boðuð til fundar á mánudag til að ræða stöðu mála eftir að formaður félagsins sagði upp starfi sínu á Stöð 2 eftir að fréttastofa stöðvarinnar dró til baka og baðst afsökunar á frétt hans. Róbert lýsti því yfir að hann hygðist áfram gegn formennsku í Blaðamannafélaginu. 29.1.2005 00:01