Innlent

Söfnuðu fé með kaffi- og kökusölu

Börn á frístundaheimilinu Skýjaborgum í Vesturbæjarskóla söfnuðu á dögunum 27.848 krónum með kaffi- og kökusölu til styrktar fórnarlömbum flóðbylgjunnar í Suðaustur-Asíu. Féð rennur til söfnunarinnar Neyðarhjálp úr norðri og tók fulltrúi Rauða kross Íslands, Ingibjörg Eggertsdóttir, formlega við því í dag. Börnin bökuðu kökur á frístundaheimilinu og seldu þær foreldrum og starfsmönnum Vesturbæjarskóla ásamt drykk. Kostaði kaffi og kaka 100 krónur en fólki var heimilt að greiða meira ef það vildi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×