Betra líf á 4 dögum fyrir 60.000 31. janúar 2005 00:01 "
Þetta er algjörlega frábært. Þrátt fyrir ungan aldur hef ég stúderað þetta í mörg ár og farið á mörg námskeið og þetta er það besta," segir Katrín Bernhöft, 27 ára viðskiptafræðingur og áhugamaður um svonefnd árangursfræði. Hún stendur ásamt vinkonu sinni fyrir hópferð Íslendinga á námskeið hjá hvatningarþjálfaranum Anthony Robbins í Lundúnum í maí og er fullyrt að námskeiðið muni breyta lífi fólks. "Anthony Robbins er vinsælasti hvatningarfyrirlesari í heiminum í dag. Hann hefur verið að í 27 ár, byrjaði bara sautján ára." Námskeiðið ber yfirskriftina Unleash the Power Within eða Leystu orkuna úr læðingi. Í stuttri umsögn snýst það um að brjótast úr viðjum vana, komast yfir ótta og takmarkandi trú, ná markmiðum og átta sig á eigin þrám, breyta draumum í raunveruleika, búa til og viðhalda fullnægjandi samböndum og afrita áætlanir þeirra sem ná hámarksárangri til að gerbreyta eigin lífi. Fyrir orð vina fór Katrín á námskeið hjá Robbins í Lundúnum október og varð fyrir nýrri upplifun. Tólf þúsund manns sátu námskeiðið og þrátt fyrir margmennið náði hann eyrum hennar og vel það enda á hún vart til orð til að lýsa áhrifunum. Ögn færri komast að í maí, átta þúsund manns. Uppselt er á námskeiðið utan hvað Katrín á nokkra miða í fórum sínum. Stykkið kostar 60 þúsund krónur á mann, sem þykir lítið því miðinn kostar alla jafna 150 þúsund krónur í svipuð sæti. "Við erum svo fámenn að það er allt gert fyrir okkur," segir Katrín. Hún er viðskiptafræðingur og lokaverkefnið hennar fjallaði um árangursfræði. Bar það yfirskriftina "Sjálfgerðir milljónamæringar. Hafa allir jafna möguleika?" Þar velti hún fyrir sér hvort allir hefðu jafna möguleika á að verða ríkir. Og niðurstaðan? "Það hafa kannski ekki allir hundrað prósent jafna möguleika en allir hafa möguleika. Svo getur fólk aukið möguleika sína með námi og öðru." Sjálf hefur Katrín ekki almennilega gert upp við sig hvort hún vilji eignast ógrynni peninga. "Ég veit ekki hvort ég vil verða milljónamæringur í peningum eða hamingju. Það fer eftir því hvernig maður lítur á það. En auðvitað ætlar maður að verða þvílíkt glaður," segir hún og hlær. Katrín lætur vel af Anthony Robbins þó ekki þekkist þau persónulega. Hann á fjölmörg fyrirtæki á ýmsum sviðum og lætur jafnan gott af sér leiða. "Hluti af ágóða hans rennur til góðgerðarmála og hann býður alltaf einhverjum hópum á námskeiðin sín, til dæmis nemum eða þeim sem minna mega sín að einhverju leyti." Ekki er að fullu ljóst hve margir Íslendingar sitja í salnum stóra hjá Anthony Robbins í maí en Katrín segist búast við að þeir verði hátt í eitt hundrað. "Það vilja allir gera betur í skammdeginu," segir hún og bætir við að ekki sé nokkur leið að fá hann til Íslands til fyrirlestrahalds. "Við reyndum það fyrst en hann er bara allt of stór fyrir íslenskan markað." Anthony Robbins.
Fréttir Innlent Mest lesið Kalli Snæ biðst afsökunar Innlent Bílstjóri ráðherra lagði ríkið Innlent Tilgáta um að launmorðingi hafi farið mannavillt þegar Jón Þröstur hvarf Innlent Tilraunaverkefni hjá borginni á að koma ruslinu á réttan stað Innlent Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum Innlent Dæmdur fyrir líkamsárás á meðan hann er grunaður um morð Innlent Þingmenn hneykslast á mótmælum við hátíðarathöfnina Innlent „Er allt komið í hund og kött?“ Innlent Reykvíkingur ársins erlendis en fær að veiða í júlí Innlent Fangar fluttir á spítala nokkrum sinnum á ári vegna ofneyslu vímuefna Innlent Fleiri fréttir Leitin að Jóni Þresti og hópmálsókn ferðaþjónustunnar Tomasz tekur við formennsku í innflytjendaráði Bein útsending: Réttlæti og ábyrgð – Vernd barna í Úkraínu „Er allt komið í hund og kött?“ Reykvíkingur ársins erlendis en fær að veiða í júlí Um níu þúsund umsóknir í Háskóla Íslands Tilgáta um að launmorðingi hafi farið mannavillt þegar Jón Þröstur hvarf Fangar fluttir á spítala nokkrum sinnum á ári vegna ofneyslu vímuefna Tilraunaverkefni hjá borginni á að koma ruslinu á réttan stað Kalli Snæ biðst afsökunar Bílstjóri ráðherra lagði ríkið Tilfinning hægri manna um að fréttir RÚV séu óháðar fer dvínandi Gengur hringinn til styrktar vannærðum börnum Þingmenn hneykslast á mótmælum við hátíðarathöfnina Ein bílferð jafngildi tuttugu þúsund mótorhjólaferðum Dæmdur fyrir líkamsárás á meðan hann er grunaður um morð Féll í hálku í sundi og fær bætur Hátt spennustig, ruslið sem ekki er hægt að endurvinna og kvennavaka Ótrúlegar myndir af krefjandi lendingu án nefhjóls Írskir lögreglumenn til Íslands vegna máls Jóns Þrastar Bréfið rímar ekki við fullyrðingar Kalla Snæ Hyggjast ekki greina frá nöfnum hinna látnu Skúringabúnaðurinn laus af segulómtækinu en ástand þess óljóst Húseigandinn Jón dansari segist koma af fjöllum Gátu loks yfirheyrt konuna Fækka hefðbundnum kennslustundum um þriðjung „Þetta er verra hjá strákunum heldur en hjá stelpunum“ Eigandi Bjargar í áfalli en vonast til að bjarga fötum Hólavallagarður friðlýstur Gerir ráð fyrir að ljúka þingstörfum fyrir mánaðamót Sjá meira