Ríkið blæs út 31. janúar 2005 00:01
Fjölmörg dæmi eru um aukin umsvif ríkisstofnana, dæmi um rekstur sem hægt hefði verið að einkavæða. Flugmálastjórn keypti til dæmis nýlega fjarskiptastöðina í Gufunesi af Símanum og stofnaði fyrirtækið Flugfjarskipti sem er að fullu í eigu Flugmálastjórnar. Þvottahús Landspítala háskólasjúkrahúss rekur saumastofu sem útvegar spítalanum lín. Það leigir líka út lín til annarra aðila í stað þess að láta einkaaðila sjá um þvottinn. Vinnueftirlit ríkisins hefur gert starfsánægjukönnun fyrir Landspítala háskólasjúkrahús auk þess sem Ríkisendurskoðun hefur gert svipaðakonar könnun hjá starfsmönnum Landhelgisgæslunnar í stað þess að leita til einkafyrirtækis sem sérhæfa sig í gerð slíkra kannana. Landmælingar Íslands eiga að sinna ákveðinni grunnvinnu eins og viðhaldi og upplýsingagjöf en halda sig fjarri framkvæmdum og framleiðslu gagna í samkeppni við einkafyrirtæki. Í stað þess að hlúa að og styrkja einkafyrirtæki hafa Landmælingar verið í aukinni samkeppni við þau. Allt þetta telur Verslunarráð dæmi um rekstur sem er betur kominn hjá einkafyrirtækjum. Þór Sigfússon, framkvæmdastjóri Verslunarráðs, segir ástæðu til að hafa áhyggjur af vaxandi umsvifum einstakra ríkisstofnana. "Við höfum verið að fást við ótrúlega mörg fyrirtæki í eigu ríkisins sem eru í samkeppni við einkafyrirtæki. Auknar kröfur eru um að þessi fyrirtæki skapi sér sértekjur og þess vegna erum við í fleiri tilfellum að sjá ýmsar stofnanir keppa við einkafyrirtæki, til dæmis verkfræðistofur og ráðgjafafyrirtæki." Verslunarráð er að vinna tillögur um hvað eigi að gera við fyrirtæki af þessu tagi og vill frekar líta á þau sem sóknarfæri fyrir atvinnulífið.
Fréttir Innlent Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Fleiri fréttir „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Sjá meira