Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Framlengja Brexit-aðlögun Norður-Írlands Bresk stjórnvöld tilkynntu í dag að aðlögunartími fyrir innflutning til Norður-Írlands eftir útgönguna úr Evrópusambandinu verði enn framlengt. Frestinum er ætlað að veita Bretum og Evrópusambandinu meiri tíma til að komast að niðurstöðu um varanlega lausn. 6.9.2021 22:23
Vilja að ráðherra skoði stöðu vararíkissaksóknara Aðgerðasinnahópurinn Öfgar segir í ákalli til Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur dómsmálaráðherra að innan dómkerfisins finnist menn sem ítrekað hafi tekið stöðu gegn þolendum kynbundins ofbeldis. 6.9.2021 22:11
Skaftá að komast í ham til að flæða yfir hringveginn Rennsli í Skaftá fór hratt vaxandi við Sveinstind eftir hádegi og er verið að loka hálendisvegum á svæðinu og rýma fjallaskála. Búist er við að hlaupið nái hámarki í byggð eftir tvo sólarhringa og eru líkur taldar á að hringvegurinn í Eldhrauni geti lokast um tíma. 6.9.2021 21:00
Þurfti að stöðva viðtal vegna umferðarlagabrots fyrir framan nefið á lögreglu Það ríkir ákveðið stjórnleysi á göngugötunni á Laugavegi á milli Klapparstígs og Frakkastígs. 6.9.2021 20:16
Rituungi í Eyjum sem neitar að fara að heiman Fjölskylda í Vestmannaeyjum hefur tekið að sér rituunga, sem neitar að fara að heiman. Unganum finnst allra best að fá loðnu í matinn. Kötturinn og hundurinn á heimilinu eru bestu vinir ungans. 6.9.2021 20:10
Mikill viðbúnaður þegar bifreið rann í sjóinn í Nauthólsvík Tilkynnt var um bifreið sem runnið hafði í sjóinn í Nauthólsvík rétt í þessu. Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út ásamt almennri lögreglu og sjúkraliði. 6.9.2021 19:46
Vilja ræða afléttingar á ríkisstjórnarfundi Ráðherrar telja rétt að ræða afléttingar á samkomubanni í ljósi faraldursins á ríkisstjórnarfundi á morgun. Sóttvarnalæknir segir að fara þurfi hægt í tilslakanir. 6.9.2021 19:40
Flokkar hefðu aðeins níu daga til að stilla upp listum eftir þingrof Ný kosningalög sem taka gildi á næsta ári gætu gert nýjum flokkum erfiðara fyrir að bjóða fram til þingkosninga. Ef þing yrði rofið hefðu flokkarnir ekki nema níu daga til að safna meðmælum og skila inn framboðslistum. 6.9.2021 19:22
Akureyri verði „svæðisborg“ Flokka ætti Akureyri sem „svæðisborg“ með skilgreinda ábyrgð og skyldur til að þjóna íbúa og atvinnulíf í landshlutanum samkvæmt tillögu starfshóps á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. 6.9.2021 19:14
Valdaránsmenn í Gíneu boða nýja þjóðstjórn Leiðtogi valdaránsmanna sem steyptu Alpha Condé, forseta Gíneu, af stóli um helgina boðar að ný þjóðstjórn verði mynduð á næstu vikum. Condé er enn í haldi valdaránsmanna og ekki liggur fyrir hvað verður um hann. 6.9.2021 18:37
Kári Stefánsson vill afnema allar fjöldatakmarkanir Kári Stefánsson segir málum nú vera svo háttað að afnema eigi allar fjöldatakmarkanir enda séu núgildandi takmarkanir illverjanlegar. 6.9.2021 18:31
Zamknięte drogi z powodu powodzi lodowcowej Z powodu powodzi lodowcowej na rzece Skaftá, zamknięte dziś zostaną cztery drogi górskie znajdujące się najbliżej rzeki. 6.9.2021 18:21
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í fréttum okkar í kvöld segjum við frá því að tveir ráðherrar ríkisstjórnar Íslands telja tíma til kominn að létta á aðgerðum innanlands. Sóttvarnalæknir er hins vegar ekki á sama máli. Faraldurinn er á hægri niðurleið og álagið á Landspítalann ekki í nánd því eins mikið og þegar verst lét í þessari bylgju. 6.9.2021 18:10
Pięć nowych lokali wyborczych w Reykjaviku W sobotę 25 września, w Islandii odbędą się wybory parlamentarne. Głosowanie będzie przeprowadzone w 23 lokalach wyborczych w Reykjaviku. 6.9.2021 17:46
Blikur á lofti vegna fellibyljarins Larrys Veruleg óvissa er í veðurkortum næstu daga vegna fellibyljarins Larrys suður í Atlantshafi. Líklegast er talið að hann gæti átt þátt í suðaustan hvassviðri á landinu í lok næstu helgar. 6.9.2021 17:40
Loka vegum vegna Skaftárhlaups Fjórum vegum verður lokað í kvöld vegna Skaftárhlaupsins. Búist er við að vatn flæði yfir vegi í nálægð við hlaupið og verður þeim lokað frá og með klukkan sjö í kvöld. 6.9.2021 16:12
Lofar andspyrnu gegn Talibönum Þrátt fyrir fullyrðingar Talibana um að hafa náð síðasta héraðinu í Afganistan undir sína stjórn, segir talsmaður andspyrnuhreyfingarinnar NRF að baráttan í Panjshir-dal haldi áfram. 6.9.2021 15:56
Tilbúin með aðstöðu til að framkvæma hraðpróf fyrir smitgát og stærri viðburði Aðstaða til að framkvæma hraðpróf er nú tilbúin í húsnæði Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á Suðurlandsbraut 34. Enn þá er unnið að því að klára uppsetningu tölvukerfis og er gert ráð fyrir að það verði tilbúið á morgun, 7. september. 6.9.2021 15:11
Hlaupvatnið komið undan jöklinum Rennsli og vatnshæð í Skaftá við Sveinstind hefur vaxið hratt frá því um hádegisbilið. Rennslið var um klukkan 14 komið í um 613 rúmmetra á sekúndu en er nú, klukkan 15:20 komið upp í tæpa 740 rúmmetra. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Veðurstofu Íslands. 6.9.2021 15:02
Hattur með erfðaefni Napóleons til sölu Hattur sem fannst nýlega og var í eigu franska keisarans Napóleons Bónaparte er nú til sýningar í uppboðshúsinu Bonhams í Hong Kong. Erfðaefni keisarans fannst inni í hattinum og er því talið nær öruggt að keisarinn hafi borið hattinn á höfði sér. 6.9.2021 14:51
„Reynið að fá ykkur almennilega vinnu“ Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona og rithöfundur, var fundarstjóri á málþingi Bandalags íslenskra listamanna um helgina. Og hún hundskammar nú ráðamenn fyrir að hafa skrópað. 6.9.2021 14:45
Óttast að milljónir barna fái enga menntun Samkvæmt nýrri skýrslu eru menntamál í ólestri í 48 þjóðríkjum 6.9.2021 13:59
Sveik út vörur fyrir 2,3 milljónir króna með kreditkorti mömmu Karlmaður var í dag dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa svikið út vörur frá hinum ýmsu fyrirtækjum vörur að andvirði rúmra tveggja milljóna króna, með því að hafa við kaupin notað kreditkort móður sinnar og þriggja annarra. 6.9.2021 13:55
Sjálfstæðismenn séu að reyna að forðast umræðu um skatta Kristrún Frostadóttir, frambjóðandi Samfylkingarinnar, segir sjálfstæðismenn vera að forðast efnislega umræðu um aukið framlag ríkasta fólksins til samfélagsins með málflutningi sínum um meint ólögmæti stóreignaskatts. Hún telur að legið hafi fyrir frá upphafi að áformin standist stjórnarskrá. 6.9.2021 13:31
Hvítrússneskir stjórnarandstæðingar fangelsaðir í áratug Tveir áberandi stjórnarandstæðingar í Hvíta-Rússlandi, sem mótmæltu umdeildum forsetakosningum harðlega, hafa verið dæmdir í margra ára fangelsi fyrir að hafa ógnað þjóðaröryggi og reynt að ræna völdum. 6.9.2021 13:15
Gagnrýna að settur forstjóri Útlendingastofnunar sé nú formaður eftirlitsnefndar Tólf félagasamtök gagnrýna harðlega skipun Þorsteins Gunnarssonar í embætti formanns kærunefndar útlendingamála og fara fram á að hann segi af sér vegna vanhæfis. 6.9.2021 12:32
Páll hvetur Kára til að biðjast afsökunar Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, segir Kára Stefánsson, forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, hafa vegið ómaklega að starfsfólki spítalans í grein í Læknablaðinu í síðustu helgi. Hann hvetur Kára til að biðja starfsfólkið, hetjur þessa samfélags, afsökunar. 6.9.2021 12:23
Þórólfur telur hægt að skoða tilslakanir en sér ekki fyrir víðtækar afléttingar Sóttvarnalæknir telur að fara þurfi hægt í tilslakanir á samkomubanni jafnvel þó harðar takmarkanir séu í gildi á landamærunum. Bylgjan er enn á niðurleið og enginn er á gjörgæslu. 6.9.2021 12:09
Reiknað með stærra hlaupi en 2018 Almannavarnir vara fólk við að vera á ferli við Skaftá en gert er ráð fyrir að hlaupvatn úr Eystri- Skaftárkatli nái að vatnshæðarmæli við Sveinstind síðdegis í dag. Íshellan á katlinum hefur nú þegar sigið um 25 metra. Veðurstofan útilokar ekki að að hlaupið fari yfir þjóðveg 1. 6.9.2021 11:59
Formanninum krossbrá þegar hann sá umdeilda Facebook-færslu Sigurðar G Sigurði Erni Hilmarssyni, formanni Lögmannafélags Íslands, brá beinlínis þegar hann sá ljósmyndir sem Sigurður G. Guðjónsson hæstaréttarlögmaður birti en þar má sjá brot úr lögregluskýrslu þar sem fjallað er um mál þeirra Þórhildar Gyðu Arnarsdóttur og Kolbeins Sigþórssonar knattspyrnumanns. 6.9.2021 11:56
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður staðan tekin á hlaupinu í Skaftá en hættuástandi var lýst yfir á svæðinu í gær. 6.9.2021 11:35
26 greindust innanlands í gær Alls greindust 26 með kórónuveiruna innanlands í gær. Sextán þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 62 prósent nýgreindra. Tíu voru utan sóttkvíar, eða um 38 prósent. 6.9.2021 10:47
Öldruðum hrúgað í vöruskemmu þegar Ída gekk yfir Þegar fellibylurinn Ída var farinn hjá og storminn lægði, áttu margir í Louisiana erfitt með að hafa uppi á öldruðum ástvinum. Í ljós kom að um 800 íbúar sjö hjúkrunarheimila höfðu verið fluttir í vöruhús og sjö áttu ekki afturkvæmt. 6.9.2021 10:31
Fimm nýir kjörstaðir í Reykjavík og breytt kjördæmamörkun Alþingiskosningar fara fram laugardaginn 25. september næstkomandi. Kosið verður á 23 stöðum í Reykjavík og bætast fimm nýir kjörstaðir við í þessum kosningum. Þeir eru Frostaskjól (KR-heimilið), Höfðatorg, Álftamýrarskóli, Foldaskóli og Rimaskóli. 6.9.2021 10:29
Lyftu líparíthaugum af veginum heim Grjóhrun hindraði för hópa Ferðamannafélags Íslands en göngugarparnir gerðu sér lítið fyrir og ýttu grjóthnullungum frá og út í á. 6.9.2021 10:23
Boðar áframhald aðgerða á landamærunum Takmarkanir á landamærunum eru forsenda þess að hægt sé að slaka á innanlands. Þetta segir Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir um stöðu kórónuveirufaraldursins. Hann segir yfirstandandi bylgju á hægri niðurleið. 6.9.2021 08:36
Björguðu týndum þriggja ára dreng eftir fjóra daga í skóginum Þriggja ára drengur sem týndist í skógi í Ástralíu fyrir fjórum dögum fannst heill á húfi í morgun eftir umfangsmikla leit. 6.9.2021 08:24
Hyggjast heimila varðveislu eggja, sæðis og fósturvísa í 55 ár Til stendur að heimila varðveislu frosinna eggja, sæðis og fósturvísa í allt að 55 ár í Bretlandi. Hingað til hefur hámarks varðveislutíminn verið tíu ár en ráðamenn segja breytinguna munu veita einstaklingum meira val um það hvenær þeir stofna fjölskyldu. 6.9.2021 07:56
Reikna með hlaupvatni við Sveinstind á allra næstu tímum Starfsmenn Veðurstofunnar gera ráð fyrir að hlaupvatns úr Eystri Skaftárkatli verði vart við Sveinstind á allra næstu klukkustundum. Þegar það gerist mun taka um átta tíma fyrir hlaupvatnið að ná niður að þjóðveginum við Eldvatn. 6.9.2021 07:54
Rigning, suðlægir vindar og milt í dag Landsmenn mega búast við rólegheitaveðri í byrjun annarrar viku septembermánaðar. Almennt hægir suðlægir vindar og milt í dag, dálítil rigning eða súld, einkum sunnan og vestan til, en vestlægari og styttir víða upp með kvöldinu. 6.9.2021 07:17
Þrefalt toppsæti hjá Volvo vörubílum frá Velti Volvo vörubílar eru þeir vinsælustu á Íslandi árið 2021 og hefur salan aukist meira en 240% það sem af er ári og trónir Volvo í þremur toppsætum á árinu. Volvo vörubílar eru mest seldir á heildarmarkaði vörubíla, mest seldir í flokki vörubíla yfir 16 tonn og Volvo FH16 er mest selda einstaka gerðin. 6.9.2021 07:00
Taívanar kvarta yfir umferð kínverskra herþota Yfirvöld í Taívan segja að nítján kínverskar herþotur hafi flogið inn fyrir skilgreint varnarsvæði Taívans í gær. Varnamálaráðuneyti landsins segir að þeirra á meðal hafi verið orrustuþotur og sprengjuflugvélar sem borið geti kjarnorkusprengjur. 6.9.2021 06:55
Talíbanar segjast hafa náð yfirráðum yfir Panjshir Talíbanar segjast nú hafa náð yfirráðum yfir Panjshir-dal, sem er síðasta vígi andstæðinga þeirra í Afganistan. Miklir bardagar hafa geisað á svæðinu síðustu daga en dalurinn er norður af höfuðborginni Kabúl. 6.9.2021 06:49
Níu ná manni inn en aðeins fjórir fá yfir 10 prósent Níu flokkar ná mönnum inn á Alþingi í komandi kosningum, ef marka má nýja skoðanakönnun sem MMR gerði fyrir Morgunblaðið og mbl.is. Aðeins fjórir fá meira en 10 prósent fylgi. 6.9.2021 06:38
Sjö stöðvaðir við vímuefnaakstur Um klukkan 19 í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um slagsmál á bar í póstnúmerinu 108. Einn var handtekinn og vistaður í fangageymslu og þolandinn fluttur á bráðamóttöku til skoðunar. 6.9.2021 06:12