Fleiri fréttir

Vinna við innra eftirlit lögreglu hafin

Slíkt eftirlit mun að öllum líkindum ekki heyra undir sömu stjórn og lögregla en eftirlitið mun hafa svipað sjálfstæði og saksóknarar gera í dag.

Var bjargað af ókunnugum manni á hrekkjavöku í Reykjavík

„Eftir síðasta bjórinn sem ég fékk mér fór mig að svima,“ segir Jóna Guðbjörg Guðmundsdóttir sem á föstudag var bjargað heim af ókunnugum manni sem tók eftir því að hún var ekki í eðlilegum ástandi á skemmtistað.

Flotbryggja slitnaði upp

Flotbryggja í smábátahöfninni í Norðurfirði losnaði í norðaustanóveðrinu í gær.

Farþeginn fluttur á spítala

Einstaklingurinn, sem grunur lék á að væri með ebólu og lent var með á Keflavíkurflugvelli í dag, var með krampa og froðufelldi en það eru ekki einkenni ebólu.

Fór á barinn á flugvélinni

Ástralskur karlmaður bíður nú ákæru eftir að hafa ekið og lagt vængjalausri flugvél sinni fyrir utan bar í smábæ í vesturhluta Ástralíu.

Fer fram á nafnleynd í meiðyrðamáli gegn RÚV

Fyrirtaka í máli slökkviliðsmanns sem stefnt hefur Malín Brand fréttakonu og Óðni Jónssyni, þáverandi fréttastjóra RÚV, fyrir meiðyrði fór fram öðru sinni í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Merkel varar Cameron við

Þýska blaðið Der Spiegel hefur eftir heimildum innan úr þýsku ríkisstjórninni að Angela Merkel kanslari hafi varað David Cameron forsætisráðherra Breta við með harðorðum hætti á dögunum.

Búist við mengun til suðvesturs í dag

Veðurstofan býst við gasmengun úr Holuhrauni til suðvesturs frá gosinu, eða á svæði frá Selfossi í vestri og að Skeiðarárjökli í austri. Vindur er nokkuð ávkeðinn og eru því síður líkur á mikilli mengun, en svo lægir vind undir kvöldið. Áfram gýs í Holuhrauni og mikil skjálftavirkni er norður af Vatnajökli, en engin skjálfti náði stærðinni fimm í nótt.

Handtóku bílþjófa

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók fjögur ungmenni í gærkvöldi, sem tengdust bílþjófnaði í fyrrakvöld. Þeir reyndust allir undir áhrifum fíkniefna og fíkniefni fundust í íbúðinni sem þeir voru í. Þeir sofa nú úr sér í fangageymslum.

Verkfallið hefur mikil áhrif á kennslu í læknadeildinni

Læknaverkfall hefur áhrif á kennslu við læknadeild Háskóla Íslands. Formaður Félags læknanema vonast þó til þess að það hafi ekki áhrif á námsönnina í heild. Verkfallið heldur áfram í vikunni, meðal annars á geðsviði.

Rektor MR óttast að yfir 100 störf tapist

Framhaldsskólarnir gætu samtals þurft að fækka stöðugildum um meira en hundrað ef fjárlagafrumvarpið verður samþykkt. Rektor MR segir útlit fyrir að nýnemum við skólann fækki um 75. Kennarar hafa miklar áhyggjur af stöðu mála.

Leiðréttingin kynnt eftir viku

Skuldaleiðrétting ríkisstjórnarinnar verður kunngjörð á mánudaginn í næstu viku. Umsækjendur um skuldaleiðréttinguna geta kynnt séð niðurstöður hennar daginn eftir.

Vilja afnema gömul orlofslög

„Þetta er náttúrlega bara löggjöf sem er komin vel til ára sinna og er úrelt. Og á þessum tímum þegar við erum að tala um jafnrétti þá þurfum við náttúrlega að átta okkur á því að það þarf að gilda í báðar áttir,“ segir Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, í samtali við Fréttablaðið.

Fornminjar berskjaldaðar á Þingvöllum

Stálbrú yfir stíg að Peningagjá er möguleg lausn á varðveislu minja um Kóngsveg frá 1907 sem fundust þar á dögunum. Minjavörður Suðurlands vill loka Spönginni tímabundið vegna fornra tófta sem ógnað er af miklum átroðningi ferðamanna.

Sjá næstu 50 fréttir