Kýldi lögreglukonu í Hraunbæ og kallaði hana vændiskonu Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 3. nóvember 2014 15:46 „Við báðum lögregluna að fara út en lögreglukonan var örugglega lesbía og sýndi konunni minni merki um það.“ visir/gva
Aðalmeðferð í máli ríkissaksóknara á hendur 43 ára lettnesks karlmanns sem gefið er að sök að hafa kýlt lögreglukonu fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Manninum er gefið að sök að hafa kýlt konuna með krepptum hnefa fyrir utan heimili hans í Hraunbæ 1. janúar 2013. Af atlögunni hlaut konan bólgu og mar á höku. Maðurinn var ásamt túlki í vitnaleiðslum í dag. Kvað hann eiginkonu sína hafa verið með lungnabólgu og verulega verkjuð og því hafi hann hringt á sjúkrabíl. Var það í annað sinn sama kvöld sem maðurinn hringdi á sjúkrabíl en í bæði skiptin neitaði konan að þiggja nokkurs konar aðstoð. Sjúkraflutningamenn báðu um aðstoð lögreglu þegar símtalið barst öðru sinni, en ekki kom fram hvers vegna það var. Tóku þeir þó fram að hjónin hafi bæði verið verulega drukkin. Ákærða hitnaði í hamsi við komu lögreglu á heimili þeirra hjóna, sér í lagi í garð lögreglukonunnar, að sögn vitna. Sögðu þau hann hafa ausið yfir hana svívirðingum og meðal annars kallað hana vændiskonu. „Við báðum lögregluna að fara út en lögreglukonan var örugglega lesbía og sýndi konunni minni merki um það. Ég er giftur maður og þetta er bara óviðeigandi í Lettlandi. Þar er eðlilegt að maður verji konuna sína,“ sagði ákærði í vitnaleiðslum, sem þó neitaði sök. Þegar lögreglukonan var spurð út í meinta hegðun hennar kvaðst hún aldrei hafa séð konuna. „Um leið og ég kom inn í íbúðina kom hann beint að mér, mjög ógnandi og byrjaði strax með svívirðingar og að ýta í mig. Ég sá konuna aldrei – hún var uppi í rúmi allan tímann,“ sagði lögreglukonan. „Þegar við erum komin út úr íbúðinni og inn í bíl kemur hann hlaupandi út, alveg brjálaður, ber að ofan. Hann byrjar þá að lemja í sjúkrabílinn og hleypur svo að lögreglubílnum. Hann kýlir þá tvisvar sinnum í hliðarrúðuna mín megin og ég fer út úr bílnum. Höggið á mig kom í kjölfarið,“ bætti hún við. Verjandi mannsins spurði hann hvort það kynni að vera að hann hafi gert þetta óviljandi og sagði maðurinn það vera hugsanlegt. „Ég hef mjög slæma reynslu af lögreglunni sem hefur hótað að skrifa ýmislegt um mig og kæra mig. Reynslan er mjög slæm,“ svaraði maðurinn. Eiginkona mannsins var ekki kölluð fyrir dóm þar sem hún var ekki vitni að málinu. Aðalmeðferð lauk í dag með munnlegum málflutningi lögmanna. Krafist er að maðurinn verði dæmdur til refsingar en brot hans gæti varðað allt að sex ára fangelsisvistar. Þá er jafnframt krafist að hann verði dæmdur til greiðslu alls sakarkostnaðar.
Mest lesið Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Fleiri fréttir Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Sjá meira