Innlent

Búist við mengun til suðvesturs í dag

MYND/MORTENRIISHUUS
Veðurstofan býst við gasmengun úr Holuhrauni til suðvesturs frá gosinu, eða á svæði frá Selfossi í vestri og að Skeiðarárjökli í austri. Vindur er nokkuð ávkeðinn og eru því síður líkur á mikilli mengun, en svo lægir vind undir kvöldið. Áfram gýs í Holuhrauni og mikil skjálftavirkni er norður af Vatnajökli, en engin skjálfti náði stærðinni fimm í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×