Fleiri fréttir

"Engar ákvarðanir verið teknar"

Hart er deilt á Eygló Harðardóttur félagsmálaráðherra vegna væntanlegra breytinga á félagsþjónustu og barnaverndarkerfinu um allt land. Starfsmenn Barnaverndarstofu segja að svo virðist sem ráðherra viti ekki hvaða verkefnum Barnaverndarstofa sinni. Ráðherra segir málið víðtækt og engar ákvarðanir hafi enn verið teknar.

Tíu metra með tíu lítra

Vigdís Hauksdóttir formaður fjárlaganefndar ýtti í dag úr vör vitundarvakningu frjálsra félagasamtaka og Þróunarsamvinnustofnunar Íslands sem kallast Sterkar stelpur - sterk samfélög.

Geðrannsókn á manninum hafin

Maðurinn sem grunaður er um að hafa orðið eiginkonu sinni að bana undirgengst nú geðmat en yfirheyrslur yfir honum eru enn ekki hafnar.

„Það er sko búið að kjósa um stjórnarskrána“

Hátt í 100 umsagnir bárust til stjórnarskrárnefndar vegna fyrstu áfangaskýrslu nefndarinnar sem birt var í júní síðastliðnum. Öllum var frjálst að senda inn athugasemdir vegna skýrslunnar og eru þær birtar á vef forsætisráðuneytisins.

Sambýlið mun rísa við Austurbrún

Borgarráð hefur samþykkt deiliskipulag sem gerir ráð fyrir að sambýli fyrir hreyfihamlaða einstaklinga rísi á lóðinni við Austurbrún 6.

Þórey stefnir blaðamönnum DV

Aðstoðarmaður innanríkisráðherra hefur falið lögmanni að birta Jóni Bjarka Magnússyni og Jóhanni Páli Jóhannssyni stefnu vegna ærumeiðandi ummæla og grófra aðdróttana í hennar garð.

Lögregla lýsir eftir ökutækjum

Lögreglan lýsir eftir gráum Range Rover Sport og tveimur 250cc bifhjólum, Yamaha og Husqvarna, sem stolið var í gærkvöldi eða nótt.

Reynt að tæla börn upp í bíla í Vesturbænum

Í bréfi sem sent hefur verið foreldrum í Vesturbæjarskóla kemur fram að foreldrar hafi sett sig í samband við skólann og lýst áhyggjum af því að ókunnugir menn hafi ávarpað börn þeirra og boðið þeim bílfar.

Stálu fjórum tonnum af áli

Búið var að koma hluta þýfisins í sölumeðferð, en lögreglunni tókst að hafa aftur upp á því.

Skilur tilgang RÚV með nýjum reglum

Tónlistarkonan Greta Salóme tekur hatt sinn ofan fyrir tillögu RÚV að reyna að stuðla að bættri stöðu kvenna í tónlist og kynjajafnfrétti almennt.

Leitar vitna vegna árásar á Ísafirði

Lögregla óskar eftir vitnum að alvarlegri líkamsárás sem varð aðfaranótt laugardagsins 20. september fyrir framan skemmtistaðinn Edinborg á Ísafirði.

Eyjamenn hafa áhyggjur af vetrarsiglingum

Vegamálastjóri segir að fjármagn, sem ætlað sé til reksturs Herjólfs og Landeyjahafnar, eigi að duga til að veita þá þjónustu sem verið hafi við Vestmannaeyjar seinustu ár. Þetta kemur fram í minnisblaði bæjarstjóra til bæjarráðs.

Íbúar fundi um rússneska rétttrúnaðarkirkju

Borgarráð frestaði í gær afgreiðslu tillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokks um að fela skipulagsfulltrúanum í Reykjavík að efna til opins íbúafundar um staðsetningu byggingar rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar á Nýlendugötureit.

Illugi vill engu svara um athugasemdirnar

Ríkisendurskoðun ætlar að taka samning menntamálaráðuneytisins við Rannsóknir og greiningu ehf. til rannsóknar. Menntamálaráðherra hefur ekki gefið kost á viðtali vegna athugasemda Ríkisendurskoðunar um umdeildan samning.

Sjá næstu 50 fréttir