Fleiri fréttir

Útvarpsgjaldið er óvissuþáttur

Ríkisútvarpið átti ekki fyrir greiðslu af skuldabréfi sem var á gjalddaga í dag og hefur því verið samið um að fresta gjalddaga um þrjá mánuði.

Fimmtíu skjálftar í Bárðarbungu

Smáskjálftavirkni heldur áfram á svæðinu norðvestan til í Vatnajökli en fjöldi skjálfta frá því um kvöldmatarleytið í gær voru í kringum fimmtíu.

Danir taka þátt í hernaði á ný

Forsætisráðherra Danmerkur, Helle Thorning-Schmidt, fagnar því að danska þingið hafi samþykkt þátttöku Dana í lofthernaði gegn samtökunum sem nefnast Íslamska ríkið.

Íbúar haldi lúpínu í skefjum

Eyðingu lúpínu á kostnað Borgarbyggðar verður hætt ef farið verður að áliti umhverfis-, skipulags- og landbúnaðarnefndar sveitarfélagsins.

Finnst öryrkjum gefið langt nef

„Mér finnst að Tryggingastofnun sé að gefa öryrkjum langt nef og jafnvel eitthvað þaðan af verra,“ segir Bergur Þorri Benjamínsson, varaformaður Sjálfsbjargar, um viðbrögð Tryggingastofnunar ríksins við áliti umboðsmanns Alþingis.

Lagaheimild til kaupa könnuð

Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir erindið frá skattrannsóknarstjóra um kaup á gögnum um Íslendinga sem á einn eða annan hátt tengjast skattaskjólum vera til vandlegrar skoðunar í fjármálaráðuneytinu.

Brutu flísar og rúður fyrir um tíu milljónir

Skemmdarverk sem unnin hafa verið á atvinnuhúsnæði við Tjarnarvelli í Hafnarfirði nema um tíu milljónum króna. Bæjaryfirvöld krefjast þess að eigandinn bæti umgengni á lóðinni og hóta dagsektum. Byggt árið 2008 en hefur staðið autt síðan.

„Þetta var algjört klúður“

Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari fer yfir vanhæfni sína í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu, og ásakanir um ófullnægjandi eftirlit með símhlustunum sem hún segir vera algjört klúður af hálfu sérstaks saksóknara.

Sala ríkiseigna fer í lækkkun skulda ekki nýjan spítala

Ekki er á dagskrá hjá ríkissjóði að fjármagna byggingu nýs Landspítala með sölu ríkiseigna þar sem tekjur af slíkri sölu munu nær allar fara í lækkun skulda. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir í forgangi að lækka vaxtabyrðina.

„Situr samankrumpuð í stólnum þínum og gerir ekkert gagn“

Þessi skilaboð blöstu við Freyju Haraldsdóttur, varaþingmanni Bjartrar framtíðar, þegar hún fór í gegnum skilaboðin sín á Facebook á dögunum. Skilaboðin fékk hún send frá nafnlausum aðila í kjölfar gagnrýni hennar á orð Vigdísar Finnbogadóttur í desember síðastliðnum.

Réðst á dyravörð á English pub

Rúmlega fertugur karlmaður var í Hæstarétti Íslands í dag dæmdur í fjögurra mánaða óskilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa ráðist á dyravörð á English Pub við Austurstræti 12 í Reykjavík í ágúst 2012.

„Af hverju ætli þetta mál lifi með þjóðinni?“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson dómsmálaráðherra hefur ákveðið að skipa settan ríkissaksóknara sem mun fara yfir endurupptökubeiðnir í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu eftir að Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari lýsti sig vanhæfa. Embættismenn í dómsmáláráðuneytinu ræddu við mögulega kandídata í dag og á að kynna settan saksóknara á allra næstu dögum.

Erfiðlega gengur að finna nýjan ríkissaksóknara

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson ætlar að setja ríkissaksóknara í stað Sigríðar Friðjónsdóttur á næstu dögum til að taka afstöðu til endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmálsins.

Afkvæmin líkjast fyrri rekkjunaut

Vísindamenn við University of New South Wales hafa nú sýnt fram á að afkvæmi geta ekki aðeins líkst líffræðilegum föður sínum, og móður, heldur einnig fyrrverandi bólfélögum móðurinnar.

Lagði hald á 150 kannabisplöntur

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í iðnaðarhúsnæði í austurborginni um síðastliðna helgi

Safinn ekki seldur sem barnamatur

Eiturefnið patúlín sem myndast vegna myglusvepps í skemmdum ávöxtum hefur fundist í tveimur algengum tegundum af eplasafa.

Ráðherra forðast Hafnfirðinga

Hafnfirðingar ná ekki eyrum Sigurðar Inga Jóhannssonar ráðherra, en bæjarstjóri hefur gert ítrekaðar tilraunir til að ná fundi hans. Mikil gremja er í Hafnarfirði vegna fyrirhugaðs flutnings Fiskistofu úr bæjarfélaginu.

Ómega-3 fitusýra getur bætt hegðunartruflanir barna

Börn með hegðunarvanda sem fengu 1 gramm af ómega-3 fitusýru á dag í ávaxtasafa urðu rólegri og ekki jafn árásargjörn, að því er niðurstöður nýrrar, bandarískrar rannsóknar sýna. Neysla á feitum fiski er mikilvæg.

Aukahlutir í Loom-teygjum innkallaðir á Englandi

Loom-teygjurnar svokölluðu, sem hafa verið heitasta æðið hjá litlum og stórum stelpum í sumar og haust, voru innkallaðar af stórri breskri leikfangakeðju, The Entertainer, í 92 verslunum á Englandi.

Hverfisráð vill Sæbraut í stokk

„Tryggja þarf betur en kemur fram í tillögum að tengingar séu góðar milli Vogahverfis og Vogabyggðar meðal annars með því að setja Sæbraut í stokk eða sambærilega lausn,“ ítrekaði hverfisráð Laugardals fyrri bókun sína þegar ráðinu var kynnt breytingatillaga á aðalskipulagi.

Sjá næstu 50 fréttir