Fleiri fréttir

Hlerunum beitt í vændismálum

80 mál er í rannsókn vegna vændiskaupa hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Færst hefur í vöxt að erlendar konur komi hingað til lands í stuttan tíma og stundi vændi.

Dýrar rannsóknarnefndir

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, formaður þingflokks sjálfstæðismanna, vill herða reglur varðandi rannsóknarnefndir Alþingis og segir nauðsynlegt að setja fastan ramma utanum lengd og rekstrarkostnað slíkra nefnda.

Vill leggja Listaháskólann niður í núverandi mynd

Sigríður Heimisdóttir, iðnhönnuður, gagnrýnir Listaháskóla Íslands í viðtali í Nýju lífi sem kom út í gær og segist vilja leggja hann niður. Einnig gagnrýnir hún fyrrverandi rektor skólans.

70 sinnum meira af LSD hjá Tollinum

Starfsmenn á Vogi telja meira magn efnisins MDMA, sem helst er að finna í e-töflum, hafa verið í umferð á Íslandi á þessu ári. Tollverðir telja einnig að aukið magn LSD sé í umferð.

Í yfirheyrslu eftir játningu í beinni útsendingu

Lögreglan mun kalla mann til yfirheyrslu sem játað hefur að hafa komið fyrir svínshausum og blóðugu eintaki af Kóraninum á lóð Félags múslima á Íslandi í Sogamýri á miðvikudag.

Styttist í mikla uppbyggingu

Deiliskipulag fyrir Reykjavíkurflugvöll mun liggja fyrir um miðjan desember. Miklar breytingar í Vatnsmýrinni þokast því nær; lokun flugbrautar, grisjun skógar í Öskjuhlíðinni auk uppbyggingar íbúabyggðar.

Tillögur um skuldalækkun samþykktar

Ríkisstjórnin samþykkti í morgun að halda áfram vinnu við undirbúning að framkvæmd tillagna sérfræðingahópsins um höfuðstólalækkun verðtryggðra húsnæðislána.

Fara fram á hlé á aðgerðum í Kolgrafafirði

Landssamband smábátaeigenda hefur farið fram á að Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegsráðherra, heimili ekki frekar aðgerðir til smölunar á síld í Kolgrafafirði.

Skuldatillögur kynntar á morgun

Sérfræðihópur ríkisstjórnarinnar um skuldamál heimilanna hefur lokið störfum og skilað tilllögum til forsætisráðherra. Kostnaður vegna skuldaleiðréttingar er talinn nema um 150 milljörðum króna.

Stofna umhverfissjóð til verndar Laugavegi

Ferðafélag Íslands hefur sett á fót sérstakan umhverfissjóð. Tilefnið er náttúruvernd á starfssvæði félagsins – ekki síst við hina vinsælu gönguleið Laugaveginn. Fimm fyrirtæki verða bakhjarlar sjóðsins. Sveitarfélögin verða virkjuð í stjórn.

„Við vorum bara að mótmæla mosku þarna“

Einn þeirra sem dreifðu svínshausum, blóði og blaðsíðum úr Kóraninum á lóð Félags múslima á Íslandi í fyrradag, segist hafa verið enn á lóðinni þegar lögregla kom á vettvang. Hann segir að tuttugu manna hópur standi á bak við verknaðinn.

Ók niður hús

Gerðist í rallaksturskeppni í Belgíu og gafl hússins hrynur algerlega.

Kaupa faðernispróf á netinu

Hægt er að kaupa einföld erfðapróf á netinu og fá niðurstöðu á viku. Nokkuð er um að faðerni sé sannað með prófunum. Félagsráðgjafi á Landspítalanum segir alltaf eiga að fara í próf í stað þess að velkjast í vafa.

Rekinn eftir slysið í Lettlandi

Stjórnarformaður verslunarkeðjunar sem rekur stórmarkaðinn í Lettlandi þar sem þakið hrundi með þeim skelfilegu afleiðingum að 54 létu lífið, hefur verið rekinn.

Tælenskir mótmælendur tóku yfir höfuðstöðvar hersins

Mótmælendur í Tælandi ruddust í morgun inn í höfuðstöðvar hersins í landinu en mótmæli gegn ríkisstjórninni hafa nú staðið í sex daga samfleytt. Þá umkringja þeir einnig höfuðstöðvar stjórnarflokks forsætisráðherrans Yingluck Shinavatra, sem fólkið vill að fari frá völdum.

Mögnuð rafmagnsþyrla

Hún getur flogið í klukkutíma í allt að 2 km hæð og borið um 450 kíló.

Draumurinn um jólahalastjörnu er sennilega úti

Væntanlega verður ekkert af því að Ison, halastjarna aldarinnar eins og hún hefur verið kölluð, muni heiðra okkur jarðarbúa með nærveru sinni yfir jólahátíðina eins og stjörnufræðingar höfðu vonað.

Vilja leyfa maríjúana á kaffihúsum í Berlín

Svo gæti farið að innan tíðar muni fyrsta Maríjúana-kaffihúsið opna í Berlín höfuðborg Þýskalands. Hverfisstjórnin í Kreuzberg hverfinu í Berlín hefur gefið sitt samþykki fyrir því að í hverfinu megi reka kaffihús í líkingu við þau sem þekkjast í Amsterdam í Hollandi þar sem gestir geta keypt sér maríjúana sígarettur á löglegan máta.

Óljóst hvort sprengjur hafi rekið síldina út úr Kolgrafafirði

Óljóst er hvort eitthvað af síld hefur flæmst út úr Kolgrafafirði í gær, þegar reynt var að smala henni út með því að sprengja hvellhettur neðansjávar. Vitað er að þær höfðu fælandi áhrif á síldina en dagsbirtan entist ekki til að meta endanlegan árangur.

Þjófur fékk of harðan dóm fyrir mistök

Erlendur maður sem dæmdur var fyrir þjófnað og fleira til níu mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í maí og átta mánuða fangelsi í Héraðsdómi Suðurlands í júní fær seinna dómsmálið tekið upp aftur.

Lá við stórslysi á Biskupstungnabraut - ók inn í hóp af fólki

Minnstu munaði að stórslys yrði, að sögn lögreglu, þegar ökumaður ók á fullri ferð í gler hálku í gegnum hóp af fólki og á milli tveggja sjúkkrabíla og lögreglubíls, á Biskupstungnabraut skammt frá Borg í Grímsnesi um tvö leitið í nótt, og lét sig hverfa út í náttmyrkrið.

Fjórir dópsalar teknir í borginni

Fjórir fíkniefnasalar voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt í þrþemur málum, sem upp komu. Fyrst var ökumaður stöðvaður á Reykjanesbraut við Vífilsstaðaveg upp úr klukkan níu í gærkvöldi, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.

Hækka ekki leikskólagjöld í Árborg

Gjöld í leik- og grunnskólum í Árborg verða ekki hækkuð milli ára. Bæjarráðið vill líka endurskoðun á nýsamþykktri 5 prósenta hækkun á heitu vatni.

Sjá næstu 50 fréttir