Fleiri fréttir

"Það er sælla að gefa en þiggja!"

Jón Gnarr minnir á að ekki einu sinni Ísland sé eyland. Borgarstjórinn í Reykjavík segir að Íslendingar hafi skyldum að gegna við bræður sína og systur um allan heim.

Sex slösuðust í bílveltu

Sex ungir menn voru fluttir á slysadeild á Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri í morgun eftir að bíll valt á Þverárfjallsvegi í Norðurdal. Rúv greinir frá þessu.

Hvíthákarl lét til sín taka

Bryan Plummer og félagar komust í hann krappann á dögunum þegar þeir ákváðu að fara að kafa í fríi í Suður-Afríku.

Aðstæður fínar víða

Skíðasvæðin eru opin víða um land, í Hlíðarfjalli er opið frá klukkan tíu til fjögur og ágætar aðstæður.

Þorsteinn gagnrýnir framgöngu Davíðs á landsfundi

Formaður Sjálfstæðisflokksins hefur sætt andróðri í eigin röðum, um flest að ósekju. Þetta segir Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins í aðsendri grein í Fréttablaðinu í dag.

Yfir hundrað tíst hjá löggunni

Netverjar fengu heldur betur innsýn inn í störf lögreglu í nótt en hún sagði frá atburðum gærkvöldsins og næturinnar á twitter-bloggi sínu.

Páfamatur

Frans, nýskipaður páfi, mun brjóta blað í sögu kaþólsku kirkjunnar í dag þegar hann og forveri hans í páfastóli, Benedikt páfi sextándi, munu setjast niður og snæða hádegisverð.

Fylgjast með útblæstri herflugvéla

Egypski og ísraelski herinn, kínversk flugfélög, stefnumótasíðan dating.dk og líbanskt flugfélag. Þetta eru dæmi um þá flugrekendur sem skráðir eru á Íslandi og eru á ábyrgð íslenskra stjórnvalda þegar kemur að útblástursmálum.

Foreldrar óttast um öryggi barna

Ýmsar brotalamir virðast vera á menntastefnunni skóla án aðgreiningar. Foreldri barns sem drengur með alvarlegar raskanir réðst á segir nemendur líða fyrir úrræðaleysi. Neitaði að setja son sinn í skólann fyrr en drengurinn fengi hjálp.

Ormagryfja misnotkunar opnaðist í kjölfarið á kæru

Þroskaskert kona segist hafa sætt langvarandi misnotkun stjúpa síns og tveggja bræðra hans á sveitabæ á Snæfellsnesi. Þegar upp komst um brot tengdasonar hennar gegn henni hófst víðtæk lögreglurannsókn.

Lögregluna vantar 3,5 milljarða á ári

Fjölga þarf lögreglumönnum um 236 á næstu fjórum árum, segir í skýrslu innanríkisráðherra um löggæslumál. Lögreglan þarf 14 milljarða í viðbót næstu fjögur ár.

Kindur staðnar að verki við spóaeggjaát

Íslensku sauðkindinni hefur verið kennt um ýmislegt í gegnum tíðina en nú hafa náðst myndir af kindum að éta spóaegg úr hreiðrum. Líffræðingur segir ekki hægt að fullyrða um hversu stórtæk kindin er en það megi rannsaka nánar.

Grímurnar birtast á götunum í Japan

Þegar vora tekur í Japan birtist grímuklætt fólk á götunum. Þetta árið er óvenju mikið um frjókorn. Að sama skapi er óvenju mikið um grímur á götunum. Þær eru nú orðið ekki bara hvítar og skurðstofulegar, heldur í öllum regnbogans litum.

Kaþólskir gegn kirkju páfans

Víða um heim hefur kaþólska kirkjan átt í vök að verjast, rétt eins og flest önnur trúarbrögð, Óþrjótandi kynferðisbrotamál og einstrengingsleg afstaða gagnvart getnaðarvörnum og samkynhneigð gerir illt verra. Erfitt verður fyrir nýjan páfa að snúa við þeirri þróun, þótt hann sé fyrsti páfinn frá Suður-Ameríku og þyki bæði ljúfur og lítillátur.

Að hefja sig upp yfir vanvirðingu

Björt framtíð er einn þeirra nýju flokka sem bjóða fram í vor. Fréttablaðið hitti Heiðu Kristínu Helgadóttur, stjórnarformann flokksins, og fór yfir helstu málin, sem snúast helst um að breyta stjórnmálamenningunni og auka virðingu.

Fjölskyldan komin í fyrsta sæti

Árið hefur verið viðburðaríkt hjá Magnúsi Geir Þórðarsyni. Hann eignaðist son í janúar og heldur heimili ásamt konu sinni Ingibjörgu Ösp Stefánsdóttur á tveimur stöðum. Frumsýning Mary Poppins var svo hápunktur á vel heppnuðu leikári.

Fékk ekki afgreiðslu og hringdi í lögregluna

"Þetta hefur gengið rosalega vel. Það er einhver reitingur og mér sýnist að þetta sé dæmigert kvöld - enn sem komið er,“ segir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu.

"Þetta er þakklætisvottur"

Íslenskir kvikmyndagerðarmenn fagna auknum framlögum í Kvikmyndasjóð Íslands með viðeigandi hætti. Landsmönnum verður boðið í bíó núna um helgina og gefst færi á að sjá helstu perlur íslenskrar kvikmyndasögu.

Fríríki inn í miðri borg?

Formaður borgarráðs Reykjavíkur undrast frumvarp forseta Alþingis þar sem lagt er til að ráðherra fái skipulagsvald á stóru svæði í miðborginni. Hann efast um að frumvarpið standist stjórnarskrá.

Tólf nýir strætisvagnar

Strætó bs. hefur fest kaup á 12 nýjum strætisvögnum sem koma í þjónustu fyrirtækisins frá og með næstu vetraráætlun sem hefst þann 18. ágúst næstkomandi. Í tilkynningu segir að kaupin séu liður í reglubundinni endurnýjun á vagnakosti fyrirtækisins. Verðmæti kaupanna nemur rúmum 400 milljónum króna.

Nágranni hringdi á sjúkrabíl

Faðir, sem grunaður er um að hafa orðið valdur að dauða fimm mánaða gamallar dóttur sinnar, neitar sök. Nágranni mannsins hringdi á sjúkrabíl.

Magnús vildi taka sjálfur við ákærunni í Lúxemborg

Sérstakur saksóknari hefur lokið við að birta öllum sakborningum sem ákærðir eru vegna starfa sinna fyrir Landsbankann og Kaupþing ákæru. Síðasta ákæran var birt í morgun með aðstoð lögregluyfirvalda í Lúxemborg.

Lögreglan ætlar að „tísta“ um öll verkefni sín í nótt

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu muna taka þátt í svokölluðu tíst-maraþoni í kvöld og í nótt. Ekki er lögreglan að fara að tísta eins og smáfugl heldur ætlar embættið að tala þátt í alþjóðlegu Twitter-maraþoni þar sem tæplega 200 lögreglumenn um allan heim mun skrifar Twitter-færslur um verkefni sín.

Töluverður verðmunur á páskaeggjum

Algengast er að 20-30% verðmunur sé á hæsta og lægsta verði á páskaeggjum milli matvöruverslana að því er fram kemur í nýrri verðkönnun sem Verðlagseftirlit ASÍ gerði í verslunum á höfuðborgarsvæðinu í vikunni og má finna á heimasíðu sambandsins.

Féll aftur fyrir sig - Iron Gym þolir bara 100 kíló

Neytendastofu barst kvörtun frá neytenda um að hættulegt æfingatæki væri á markaðnum. Um er að ræða Iron Gym upphífingastöng sem seld er í versluninni Hreysti. Kvörtunin barst í kjölfar slyss sem varð þegar notandi féll aftur fyrir sig við það að tækið losnaði af dyrakarmi. Talið var að slysið orsakaðist af af því hvernig tækið væri uppsett.

Dæmdar fyrir að afklæða konu og raka af henni hárið

Þrjár konur voru dæmdar í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi til þriggja ára og sú fjórða í 12 mánaða fangelsi óskilorðsbundið fangelsi fyrir grófa líkamsárás í Mosfellsbæ á síðasta ári. Sú sem hlaut þyngsta dóminn rauf skilorð vegna fíkniefnabrots sem hún var dæmd fyrir árið 2011.

Meintur smyglari í farbann

Lithái um þrítugt hefur verið úrskurðaður í farbann til 17. apríl í tengslum við fíkniefnamál, sem er til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Maðurinn var handtekinn fyrir hálfum mánuði ásamt öðrum Litháa, sem er á fimmtugsaldri, en mennirnir komu hingað til lands frá Bretlandi.

Ný plata Sigur Rósar kemur út á Þjóðhátíðardag

Ný plata Sigur Rósar kemur úr á sjálfan þjóðhátíðardag Íslendinga, þann 17. júní næstkomandi, Platan ber titilinn Kveikur og hefur myndband við eitt laganna þegar verið frumsýnt á vef hljómsveitarinnar. Lagið við myndbandið heitir Brennisteinn. Þessi nýja plata Sigur Rósar er fyrsta platan sem hljómsveitin gefur út án Kjartans Sveinssonar hljómborðsleikara sem hefur yfirgefið hljómsveitina og horfið á vit nýrra ævintýra.

Áhugaljósmyndarinn leiddur fyrir dómara

Ákæra yfir Eyþóri áhugaljósmyndara var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Eyþór var handtekinn í janúar, grunaður um að hafa boðið börnum og unglingum greiðslur fyrir að sitja fyrir nakin. Hann er talinn hafa nálgast þau í gegnum samskiptamiðla á netinu. Eyþór var viðstaddur þingfestinguna eins og sjá má að meðfylgjandi myndskeiði.

Össur kynnti Moe hugmyndir um þjónustumiðstöð fyrir olíuvinnslu

Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, átti í morgun fund með Ole Borten Moe, olíumálaráðherra Noregs, og kynnti honum hugmyndir sínar um að á Íslandi byggi Íslendingar, Norðmenn og Grænlendingar upp þjónustu við væntanlega olíusvæði þjóðanna norðan Íslands, þ.e.a.s. á Drekasvæðinu, Noregsmegin markalínunnar á Jan Mayen hryggnum, og við Austur-Grænland. Á öllum þessum stöðum eru vaxandi vísbendingar um olíu.

Eftirlýstur maður tekinn fyrir fíkniefnaakstur

Karlmaður á þrítugsaldri var stöðvaður í Keflavík vegna gruns um að hann væri undir áhrifum fíkniefna. Hann bar þess greinileg merki og var því handtekinn og færður á lögreglustöð. Sýnatökur staðfestu sýnatökur að hann hefði neytt kannabisefna, amfetamíns og kókaíns.

Erill hjá slökkviliðinu

Óvenjumikill erill hefur verið hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu síðastliðinn sólarhring og hefur það sinnt tíu útköllum. Hvergi varð þó mikill bruni eða vatnsleki.

Sjá næstu 50 fréttir