Össur kynnti Moe hugmyndir um þjónustumiðstöð fyrir olíuvinnslu 22. mars 2013 10:42
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, átti í morgun fund með Ole Borten Moe, olíumálaráðherra Noregs, og kynnti honum hugmyndir sínar um að á Íslandi byggi Íslendingar, Norðmenn og Grænlendingar upp þjónustu við væntanlega olíusvæði þjóðanna norðan Íslands, þ.e.a.s. á Drekasvæðinu, Noregsmegin markalínunnar á Jan Mayen hryggnum, og við Austur-Grænland. Á öllum þessum stöðum eru vaxandi vísbendingar um olíu. Í tilkynningu segir að utanríkisráðherra hafi lýst því sjónarmiði að ekki yrði hægt að byggja mikla aðstöðu á Jan Mayen sem væri að mestu friðuð vegna náttúruverndarsjónarmiða, og taldi það óæskilegt. Sömuleiðis væri það óæskilegt frá umhverfisverndarsjónarmiðum að sækja þjónustu langan veg til Noregs eða Skotlands, og væri því Ísland hentugast frá sjónarmiði umhverfisverndar sem miðstöð þjónustu. Hann taldi jafnframt að í framtíðinni yrðu ríkin að hafa samstarf um viðbúnað til að geta leitað og bjargað mönnum sem tengdust olíuiðnaðinum á svæðunum, ss. þyrlusveitir, sem einnig gætu nýst öðrum sjófarendum um svæðið. Utanríkisráðherra lýsti sérstakri ánægju með að í gærkvöldi staðfesti norska Stórþingið 25% þátttöku ríkisolíufyrirtækisins Petoro í þeim olíuleyfum sem úthlutað var á Drekasvæðinu í janúar, og með samkomulag sem hann undirritaði í gær við Espen Barth Eide, utanríkisráðherra, um samstarf á norðurslóðum, m.a. olíusamstarf. Ole Borten Moe lýsti áhuga á samstarfi við Íslendinga á þessum sviðum í framtíðinni, en lagði áherslu á að Norðmenn ættu eftir að taka formlega ákvörðun um leit og vinnslu á svæðinu. Þeir hygðust nota næsta ár til að greina og afla frekari gagna, meðal annars með sýnatökum til að kanna betur jarðlög sín megin á svæðinu. Hann upplýsti að því yrði lokið 1. mars á næsta ári, Fram að þeim tíma verður unnið að frekari úrvinnslu gagna og rannsóknum.
Mest lesið Fannst látinn í tjaldi Innlent Lést á Fimmvörðuhálsi Innlent Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Velja Viljandi villt Innlent „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið Innlent Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Innlent Spá sautján stiga hita á höfuðborgarsvæðinu Veður Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Fleiri fréttir Töluvert um sameiningar lífeyrissjóða upp á síðkastið Andlát í tjaldi og slys á bæjarhátíð Lést á Fimmvörðuhálsi Hringekjan tekin úr notkun strax eftir slysið „Hver vill ganga í gjaldþrota ríkjasamband?“ Fannst látinn í tjaldi Einkunnagjöf, jarðgangagerð og hagræðingaraðgerðir borgarinnar Velja Viljandi villt Var til vandræða og reyndist eftirlýstur Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Sjá meira