"Þetta er þakklætisvottur" Kjartan Hreinn Njálsson skrifar 22. mars 2013 20:48
Íslenskir kvikmyndagerðarmenn fagna auknum framlögum í Kvikmyndasjóð Íslands með viðeigandi hætti. Landsmönnum verður boðið í bíó núna um helgina og gefst færi á að sjá helstu perlur íslenskrar kvikmyndasögu. Verulega dró úr fjárframlögum í Kvikmyndasjóð í kjölfar hrunsins og um leið dróst framleiðsla kvikmynda saman. En nú birtir til, enda hefur sjóðurinn hækkað um helming. Af því tilefni vilja kvikmyndagerðarmennirnir þakka fyrir sig með því að blása til kvikmyndaveislu um allt land. Alls verða þrjátíu og fjórar íslenskar kvikmyndir sýndar á átján stöðum og ókeypis verður inn á allar sýningar. Til dæmis verður Sódóma Reykjavík og Börn náttúrunnar sýndar í Bíó Paradís. Þá verður Hrafninn flýgur sýnd Háskólabíói. Hetjur Valhallar-Þór verður sýnd í Ólafsvík og það í félagsheimilinu Klifi. Þá verður Borgríki sýnd á Patreksfirði og Algjör Sveppi og dularfulla hótelherbergið á Ísafirði. Það verður síða nóg um að vera á Norðurlandi þar sem sýningar fara fram á sex stöðum. Þar á meðal verður Englar alheimsins sýnd á Hvammstanga, Bíódagar á Sauðárkróki og Á annan veg á Raufarhöfn. Og þá má einnig geta þess að sýningar verða á Ólafsfirði líka. Þá verður Okkar eigin Osló sýnd á Egilsstöðum og Borgríki á Vopnafirði. Sunnlendingum er einnig boðið í bíó. Hetjur Valhallar verður til sýninga á Höfn í Hornafirði og Gauragangur verður síðan sýnd á Kirkjubæjarklaustri. „Þetta er svona þakklætisvottur. Íslenskir kvikmyndagerðarmenn eru þakka fyrir sig. Ríkisstjórni jók framlag í kvikmyndasjóð eftir nokkur mögur ár og við vildum sýna lit og bjóða fólki í bíó og hafa gaman," segir Ragnar Bragason, leikstjóri. „Ég hvet alla til að mæta og þakka öllum þeim aðilum sem koma að þessu verkefni, sýningarmenn og aðrir, sem leggja fram vinnu sína. Ég vona að fólk skemmti sér vel og sjá vonandi gamla perlu þau hafa ekki séð í áratugi."
Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Innlent Fleiri fréttir Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Sjá meira