Fleiri fréttir

Sigurður biðst afsökunar á hyskis-ummælum

Sigurður Harðarson, stjórnarmaður í Félagi Sjálfstæðismanna í Grafarvogi, biðst afsökunar á orðum sem hann lét falla á fundi með Jóni Gnarr borgarstjóra í gærkvöld.

Hart tekist á um stjórnarskrárfrumvarpið í dag

Lokaátökin um stjórnarskrárfrumvarpið hófust á Alþingi í dag við upphaf annarrar umræðu um málið. Þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks tala ýmist um bútasaum eða verið sé að hafa alþingismenn að fíflum. Formaður stjórnlaganefndar sagði tíma kominn til að stjórnarandstaðan hætti að stoppa öll þjóðþrifamál.

Ron Jeremy berst fyrir lífi sínu á spítala

Íslandsvinurinn og klámmyndaleikarinn Ron Jeremy berst nú fyrir lífi sínu á Cedar-Sinai spítalanum í Los Angeles eftir að hann var lagður þar inn vegna slagæðagúlps nærri hjarta.

Komu athugasemdum á framfæri vegna komu FBI til Íslands

"Þetta stenst,“ segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra spurður um orð Kristins Hrafnssonar í Kastljósi í kvöld, þar sem hann lýsti því þegar fulltrúar bandarísku alríkislögreglunnar (FBI) komu hingað til lands til þess að rannsaka sakamál gegn WikiLeaks.

Segir Ögmund hafa rekið liðsmenn FBI úr landi

Kristinn Hrafnsson, upplýsingafulltrúi WikiLeaks, sagði í Kastljósi í kvöld að einkaflugvél með fulltrúum bandarísku alríkislögreglunnar (FBI), hefði lent á Reykjavíkurflugvelli og ætlað sér að hefja sakamálarannsókn gegn WikiLeaks hér á landi.

Fjölskylda Sigmars segir að hann hafi gleymst

Sigmar B. Hauksson beið heima í níu daga án þess að fá aðhlynningu eða verkjameðferð eftir að hann greindist með krabbamein í lok nóvember. Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV. Þar segir að fjölskyldan telur að álag á sjúkrahúsinu hafi orðið til þess að hann hafi gleymst.

Olíuiðnaðurinn bíður eftir að komast í Jan Mayen-gögnin

Olíustofnun Noregs hyggst innan tveggja mánaða birta áætlun um verðmæti olíu- og gaslinda á Jan Mayen-svæðinu. Helsti áhrifamaður norska olíuiðnaðarins segir auðlindamatið ráða miklu um hversu mikill áhugi verður á olíuleit þar. Hann er forstjóri ConocoPhilips í Noregi og jafnframt formaður samtaka norska olíu- og gasiðnaðarins og heitir Steinar Våge. Á Norðurslóðaráðstefnunni í Tromsö í síðustu viku flutti hann erindi um olíuvinnslu við erfið skilyrði á heimskautasvæðum og var einnig á pallborði með utanríkisráðherrum Svíþjóðar og Noregs.

Mátti ekki miðla upplýsingum um þá sem urðu fyrir heimilisofbeldi

Persónuvernd hefur úrskurðað að Landspítalanum (LSH) hafi verið óheimilt að láta af hendi lista yfir sjúklinga vegna rannsóknar um ofbeldi í nánum samböndum vegna rannsóknar manneskju sem stóð að verkefninu "Rannsókn á heilbrigðisþjónustu varðandi ofbeldi í nánum samböndum“.

Suzuki Swift klífur 3ja milljóna múrinn

Japanski bílaframleiðandinn Suzuki Motor náði þeim merka áfanga fyrr í þessum mánuði að samanlögð sala á Suzuki Swift fór yfir þrjár milljónir eintaka frá markaðssetningu á bílnum. Suzuki hefur í gegnum tíðina ekki síst sérhæft sig í framleiðslu og sölu á litlum og sportlegum fólksbílum og er Swift ágætt dæmi um þá áherslu. Bíllinn var fyrst framleiddur og seldur í Japan í nóvember 2004 en hann var engu að síður hannaður og þróaður sem bíll fyrir alla heimsbyggðina. Árið 2005 hófst sala á bílnum í Ungverjalandi, Indlandi og Kína. Nú er bíllinn fáanlegur í yfir 120 löndum víðs vegar um heiminn. Swift hefur unnið til fjölda verðlauna. Hann var valinn bíll ársins af blaðamönnum í Japan 2006 og 2011 og hefur hlotið fjölmargar viðurkenningar í Evrópu, Indlandi og víðar. Suzuki Swift varð fyrir valinu sem Bíll ársins 2006 í árlegu kjöri Bandalags íslenskra bílablaðamanna.

Sex ára gömlum strák haldið í gíslingu

Maður vopnaður byssu fór um borð í skólabíl í Alabama-fylki í morgun, tók sex ára gamlan dreng í gíslingu og drap bílstjórann sem reyndi að bjarga stráknum.

Of fáar leikkonur til þess að tilnefna fimm

Þrjár konur eru tilnefndar sem leikkona ársins í aðal- og aukahlutverkum á Edduverðlaununum árið 2013. Í sömu flokkum hjá körlunum eru fimm leikarar tilnefndir.

Féll í klettum í Esjunni

Karlmaður slasaðist þegar hann féll í Esjunni í klettunum, fyrir ofan Stein við Þverfellshorn, nú síðdegis. Hann var ásamt öðrum manni á göngu þegar óhappið varð og rúllaði hann niður um sextíu metra. Fjallamenn á vegum Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið á staðinn.

"Geðveik leið til þess að fá okkur til að fræðast um þetta"

"Það er svo oft bara talað um það vandræðalega sem getur gerst fyrir stelpur. En þetta getur líka verið vandræðalegt fyrir stráka og þeir geta alveg eins verið óöruggir eins og stelpur," segir Selma Dögg Björgvinsdóttir í 10. bekk Háteigsskóla.

Myndband frá íbúafundinum í Grafarvogi

Halldór Árni Sveinsson, fagstjóri fjölmiðladeildar Flensborgarskólans, hefur sett myndskeið inn á vefsvæðið Netsamfelag.is frá íbúafundinum í Grafarvogi í gær.

Lokuðu hraðbraut til að drifta

Það er í sjálfu sér hættulaust á rýmri svæðum fyrir bíladellukalla að búa til dálítinn gúmmíreyk með því að "drifta" afturhjóladrifnum bílum sínum. Verra er þegar notaðar eru fjölfarnari hraðbrautir til þess arna. En það var einmitt það sem nokkrir ungir menn gerðu í Orange sýslu í Kaliforníu um daginn við lítinn fögnuð lögreglyfirvalda í sýslunni. Það sem meira var, þeir lokuð hraðbrautinni, sem er ekki smásniðnari en sex akreinar. Á meðfylgjandi myndbandi sést til ungmennanna á Ford Mustang, Chevrolet Camaro og nokkrum Nissan 240SX bílum leika sér að búa til "kleinuhringi" á hraðbrautinni. Örugglega gaman hjá þeim en síður fyrir þá sem þurftu að bíða eftir því að þeir lykju sér af.

Segir eineltið ekki hafa verið ímyndun

Jón Gnarr borgarstjóri segir það rangt, sem haldið hefur verið fram, að upplifun hans á einelti í Grafarvogi í gær hafi verið ímyndum. Skrif hans um eineltið hafa vakið gríðarleg viðbrögð í dag. Fjölmargir hafa brugðist við bæði á Facebook og víðar.

Naut veitinga víða án þess að greiða fyrir

Reykvískur karlmaður hefur verið dæmdur fyrir að hafa blekkt starfsfólk á Kaffi París við Austurstræti í ágúst síðastliðnum með því að hafa pantað og neytt veitinga að andvirði 15. 280 krónur, án þess að geta greitt fyrir.

Bíllinn endaði á hliðinni

Árekstur varð á gatnamótum Glerárgötu og Strandgötu um eittleytið í dag, Keyrt var í veg fyrir bíl með þeim afleiðingum að hann valt, samkvæmt upplýsingum frá sjónarvotti. Lögreglan segir að ökumenn bílanna hafi verið einir í þeim. Annar þeirra mun hafa farið á slysadeild til skoðunar og hinn ætlar að fara í dag. Talið er að þeir hafi ekki slasast alvarlega.

Mercedes Benz auglýsing tekin á Íslandi

Nýleg auglýsing Mercedes Benz vegna CLA bíls Benz var tekin hér á landi í fyrra og er mjög forvitnileg áhorfs. Myndskeiðið sem hér má sjá er ríflega þriggja mínútna langt og í því er víða farið um landið. Meðal annars er tekið upp í Mývatnssvæðið, á Nesjavallaleið, við Bláa lónið, við lónið undir Eyjafjöllum og endar myndskeiðið við glæsilegt einbýlishús gegnt Akureyri, hinu megin Eyjafjarðarins. Í auglýsingunni kemur mikið við sögu Husky hundur sem er í hlutverki úlfs eftir ágæta litameðhöndlun. Það örlar aðeins á þjóðarstolti að horfa á glæsikerruna renna um vegina í fagurri íslenskri náttúru. Þegar upptökurnar stóðu yfir á Íslandi höfðu engar myndir sést af þessum nýja bíl Benz. Naskur ljósmyndari náði hinsvegar fyrstu ljósmyndunum af bílnum við Bláa lónið og fóru þær eins og eldur í sinu um netheima.

Íbúafundurinn: „Þið eruð hyski!“

Myndatökumaður segir fundargesti hafa sýnt mikinn dónaskap á íbúafundinum í gær. Íbúi í Grafarvogi sem var viðstaddur fundinn tekur í sama streng.

Djúpið, Frost og Svartur á leik tilnefndar til Eddunnar

Kvikmyndirnar Djúpið, Frost og Svartur á leik eru allar tilnefndar til Edduverðlaunanna en tilnefningarnar eru kynntar í Bíó Paradís núna. Alls voru 102 verk sem keppa um Eddutilnefningar í ólíkum flokkum. Þar af eru 17 heimildarmyndir, 60 sjónvarpsefnisverk og 25 verk í leiknu efni. Edduverðlaunin fara fram í Hörpunni þann 16. febrúar og verða þau í opinni dagskrá á Stöð 2.

Sjálfstæðismenn funda um mögulega vantrauststillögu

Sjálfstæðismenn funda um möguleika á að leggja fram vantrauststillögu á hendur Steingrími J Sigfússyni atvinnuvegaráðherra í dag. Stjórnmálafræðingur segir umræðu um vantraust geta veikt ríkisstjórnina enn frekar jafnvel þótt tillagan verði ekki samþykkt.

Sebastían tekinn til starfa

Fyrsti leiðsöguhundur Þjónustu og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga var formlega afhentur við hátíðlega athöfn á Patreksfirði í dag. Hundurinn, sem er af Golden Retriver kyni og heitir Sebastían, fer til hins nýja félaga síns á Patreksfirði, en Sebastían var úthlutað til Fríðu Eyrúnar Sæmundsdóttur.

Renault kynnir jeppling

Franski bílasmiðurinn Renault hefur ekki tekið neinn þátt í samkeppninni á sívaxandi markaði fyrir jepplinga en nú skal gera bragabót á því. Renault ætlar að kynna til leiks þennan jeppling á bílasýningunni í Genf í mars og hefur hann fengið nafnið Captur. Hann verður smíðaður á sama undirvagni og Renault Clio fólksbíllinn. Vélarkostirnir í Captur verða líklega þeir sömu og eru í boði í Clio, eða 0,9 lítra og 1,2 lítra bensínvélar með túrbínu og 1,5 lítra dísilvél. Sex gíra sjálfskipting með tvöfaldri kúplingu tengir síðan vélina við drifrásina. Bíllinn verður smíðaður í Valladolid á Spáni. Það er vonandi að þessi knái jepplingur hjálpi Renault að bæta afkomuna, sem hefur ekki verið góð undanfarin misseri.

Google kortleggur Norður-Kóreu

Almenningi hefur til þessa ekki staðið miklar upplýsingar til boða um einræðisríkið Norður-Kóreu. Með kortavef Google geta fróðleiksþyrstir að einhverju leyti svalað forvitni sinni um Asíuríkið.

Ekki hægt að una við ástandið á Vestfjörðum

Ástand raforkumála á Vestfjörðum er með þeim hætti að ekki verður lengur við unað. Þetta segir Úlfar Lúðvíksson, sýslumaður á Ísafirði og á Patreksfirði, í yfirlýsingu til fjölmiðla.

Rukkað fyrir áhorf á Youtube?

Google, eigandi myndbandavefsins Youtube, veltir fyrir sér að leyfa framleiðendum myndbanda að rukka fyrir áhorf á vefnum. Hugmyndin gæti orðið að veruleika síðar á þessu ári samkvæmt heimildarmönnum Wall Street Journal.

Páll mætti ekki í þingfestinguna

Páll Heimisson, sem hefur verið ákærður fyrir stórfelld umboðssvik, mætti ekki við þingfestingu málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Hann er grunaður um að hafa notað kreditkort íhaldshóps Norðurlandaráðs meðal annars í dýrum fataverslunum , skartgripabúðum og á veitingastöðum um allan heim.

Enginn matarskortur í mestu matarkistu landsins

Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri í Fjarðabyggð, segir að opnað verði fyrir umferð um Oddskarð í dag. Íbúar á Neskaupstað hafa verið innlyksa vegna snjókomu og hvassviðris síðan á sunnudag.

Rafmagnsbílar á útsölu

Þeir bílaframleiðendur sem selja rafmagnsbíla eiga flestir í vanda að finna kaupendur. Ford er einn þeirra en fyrirtækið hefur boðið Ford Focus rafmagnsbíl í nokkurn tíma. Ekki hefur betur tekist til við sölu hans en svo að heildarsalan í fyrra var einungis 685 bílar. Ford hefur nú brugðist við því með því að lækka bílinn um 4.000 dollara. Þó virðist enn hagstæðara að taka hann á rekstrarleigu til þriggja ára því leigan hefur lækkað sem nemur 10.750 dollurum. Þannig má leigja hann fyrir 285 dollara á mánuði, eða 36.700 kr. og aka honum allt að 17.000 kílómetra á ári. Nissan hefur átt í sama vanda með Leaf rafmagnsbíl sinn og hefur boðað 18% lækkun á 2013 árgerð hans. Hann mun kosta 28.800 dollara, eða 3,7 milljónir króna. Það er ekki hátt verð fyrir rafmagnsbíl og einsýnt að Nissan græðir ekki mikið á sölu hvers bíls heldur tapar líklega á hverju seldu eintaki.

Hvorki einelti né ofbeldi

Sigurður Egill Sigurðsson flugnemi, var staddur á umdeildum íbúafundi í Grafarvogi í gær, og segir borgarstjóra fara með rangt mál.

Lagt til að lögleiða alsælu

Dómsmálaráðherra Kólumbíu segir að nýtt lagafrumvarp myndi lögleiða einkaneyslu verksmiðjuframleiddra lyfja svo sem e-töflunnar.

Frakkar ná bænum Kidal í Malí á sitt vald

Frakkar segja að herlið þeirra í Mali sé komið til bæjarins Kidal en bærinn er síðasta vígi íslamista í norðurhluta landsins. Herliðið hefur náð flugvellinum í Kidal en ekki er ljóst hvort búið sé að tryggja yfirráðin yfir öllum bænum.

Þú færð nostalgíu

Ef þú fæddist á milli áranna 1984 og 1988, ættir þú að hækka í botn og njóta nostalgíunar sem fylgir þessu myndbandi.

Sigurkokkur krýndur í dag

Seinni dagur Bocuse d'Or-matreiðslukeppninnar er hafinn, en það er Sigurður Kristinn Laufdal Haraldsson, matreiðslumaður á Vox, sem keppir fyrir Íslands hönd.

Aflaverðmætið hækkaði um 10 milljarða

Aflaverðmæti íslenskra skipa var 10 milljörðum hærra á fyrstu tíu mánuðum liðins árs en á sama tímabili árið áður. Verðmætið nam 137,9 milljörðum króna á fyrstu tíu mánuðum síðasta árs, samanborið við 127,6 milljarða á sama tímabili árið áður.

Magni ríður á vaðið

Röð laganna í úrslitum Söngvakeppninnar sem fram fer á laugardagskvöldið liggur fyrir. Sjö lög berjast um að verða framlag Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Malmö í maí.

Styttist í eins líters bíl Volkswagen

Í mörg ár hefur Volkswagen unnið að þróun bíls sem ekki á að eyða meira en einum lítra af eldsneyti á hverja hundrað kílómetra. Svo langt er smíði hans komin að verið er að prófa bílinn í miklum kulda og snjó. Prófanirnar eiga að sjálfsögðu að vera leynilegar en eins og ávallt tekst einhverjum ljósmyndurum að ná myndum af gripnum. Þar sést í fyrsta skipti ljósabúnaður hans að framan. Heiti bílsins er Volkswagen XL1. Hann er tveggja dyra bíll með tveggja strokka 0,8 l. dísilvél, 48 hestafla og rafmótora sem skila aukalega 27 hestöflum. Skiptingin er 7 gíra DSG sjálfskipting með tveimur kúplingum. Loftmótsstaða bílsins er sú lægsta sem um getur í bíl eða 0.186 Cd. Til að minnka viðnám er bíllinn á afar mjóum dekkjum og hluti af lágri loftmótsstöðu bílsins skýrist af því að bæði aftur- og framhjólin eru inndregin frá brettunum, eins og sést á myndinni. Bíllinn lítur út fyrir að vera nokkuð stór en raunveruleikinn er annar, hann er svipað langur og breiður og Volkswagen Polo. Hann er einstaklega léttur enda allt verið gert til að hafa hann eins léttan og kostur er svo hann nái takmarkinu um eins lítra eyðslu. Hann er 796 kíló og erfitt að finna léttari bíl. Mjög misvísandi fréttir eru af getu bílsins og herma sumar að hann sé heilar 32 sekúndur að ná 100 km hraða meðan aðrar sögur segja 11,9 sékúndur. Fréttir frá Volkswagen herma að XL1 bíllinn muni koma til valdra söluaðila í takmörkuðu magni á þessu ári. Því er ekki langt að bíða þessa tímamótabíls, sem ekki myndi kosta meira að aka til Akureyrar en 1.000 krónur.

Óvissustig enn í gildi á Austfjörðum

Óvissustig vegna snjóflóða er enn í gildi á Austfjörðum. Töluvert nýsnævi hefur bæst ofan á gamla snjóinn sem var fyrir um helgina og hafa flóð fallið til fjalla.

Karlaflensan virðist til eftir allt saman

Ólík virkni heila kynjanna leiðir til þess að karlar verða veikari en konur af umgangspestum ýmiss konar. Þetta er niðurstaða Amöndu Ellison, prófessors í lífeðlisfræði við Durham-háskóla í Bretlandi.

Sjá næstu 50 fréttir