Bílar

Mercedes Benz auglýsing tekin á Íslandi

Eina ferðina enn er fögur náttúra landsins bakgrunnur fyrir glæsikerrur.

Nýleg auglýsing Mercedes Benz vegna CLA bíls Benz var tekin hér á landi í fyrra og er mjög forvitnileg áhorfs. Myndskeiðið sem hér má sjá er ríflega þriggja mínútna langt og í því er víða farið um landið.

Meðal annars er tekið upp í Mývatnssvæðið, á Nesjavallaleið, við Bláa lónið, við lónið undir Eyjafjöllum og endar myndskeiðið við glæsilegt einbýlishús gegnt Akureyri, hinu megin Eyjafjarðarins. Í auglýsingunni kemur mikið við sögu Husky hundur sem er í hlutverki úlfs eftir ágæta litameðhöndlun. Það örlar aðeins á þjóðarstolti að horfa á glæsikerruna renna um vegina í fagurri íslenskri náttúru.

Þegar upptökurnar stóðu yfir á Íslandi höfðu engar myndir sést af þessum nýja bíl Benz. Naskur ljósmyndari náði hinsvegar fyrstu ljósmyndunum af bílnum við Bláa lónið og fóru þær eins og eldur í sinu um netheima.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×