Innlent

Óvissustig enn í gildi á Austfjörðum

Óvissustig vegna snjóflóða er enn í gildi á Austfjörðum. Töluvert nýsnævi hefur bæst ofan á gamla snjóinn sem var fyrir um helgina og hafa flóð fallið til fjalla.

Krapi er í byggð en ofan við 300 metra er snjór þurr. Í snjóflóðamati Veðurstofunnar á vefnum segir að mikil hætta sé á snjóflóðum á þremur stöðum á landinu það er á norðanverðum Vestfjörðum, utanverðum Tröllaskaga og á Austfjörðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×