Mátti ekki miðla upplýsingum um þá sem urðu fyrir heimilisofbeldi 30. janúar 2013 17:42
Persónuvernd hefur úrskurðað að Landspítalanum (LSH) hafi verið óheimilt að láta af hendi lista yfir sjúklinga vegna rannsóknar um ofbeldi í nánum samböndum vegna rannsóknar manneskju sem stóð að verkefninu „Rannsókn á heilbrigðisþjónustu varðandi ofbeldi í nánum samböndum". Þá hefur Persónuvernd lagt fyrir LSH að yfirfara vandlega allar öryggisráðstafanir sem viðhafðar eru þegar starfsfólk spítalans fer í gögn hans og sækir sér efnivið í eigin rannsóknir. Þetta kemur fram í áliti Persónuverndar sem birtist á vef stofnunarinnar í dag. Um málsatvik segir í kvörtuninni, sem barst Persónuvernd í mars á síðasta ári frá lögmanni kvartanda: „[U]mbjóðandi okkar leitað[i] á göngudeild geðdeildar Landspítalans vegna andlegrar vanlíðunar árið 2011. Við komu á göngudeildina var umbjóðanda okkar gert að fylla út eyðublað með helstu persónuupplýsingum, m.a. netfangi, en útfylling eyðublaðsins var skilyrði þess að umbjóðandi okkar fengi þjónustu á göngudeildinni. Nokkrum mánuðum síðar fékk umbjóðandi okkar meðfylgjandi fjöldatölvupóst sem innihélt beiðni um þátttöku í rannsókn varðandi ofbeldi í nánum samböndum, en í tölvupóstinum segir: Þú ert beðin(n) að taka þátt í þessari rannsókn vegna þess að þú hefur nýlega notið þjónustu bráðamótttöku eða göngudeild geðsviðs LSH. Með útsendingu tölvupóstsins með þessum hætti er ljóst að Landspítalinn og/eða Háskóli Íslands hafa brotið með alvarlegum hætti gegn friðhelgi einkalífs umbjóðanda okkar og er hér með kvartað yfir framangreindri háttsemi." Í niðurstöðu Persónuverndar segir meðal annars að miðlun Landspítala á nafnalista til rannsakenda er vinnsla persónuupplýsinga í skilningi laganna og fellur þar af leiðandi undir úrskurðarvald Persónuverndar, sem ekki var leitað í þessu tilfelli. Þá viðhafði Landspítali ekki nægar öryggisráðstafanir við miðlun persónuupplýsinga úr sjúkraskrárkerfi spítalans til þess sem stóð að verkefninu að mati Persónuverndar.Úrskurðinn má nálgast hér.
Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Innlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Erlent Fleiri fréttir Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Sjá meira