Fleiri fréttir

Fjallið opnað á laugardaginn

Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar verður opnað formlega á laugardag klukkan tíu um morguninn. Talsvert hefur snjóað á svæðinu síðustu daga og töluvert magn af snjó náð að festast í brekkunum. Þá hefur verið nægilega kalt fyrir snjóframleiðslu.

Þjóðskrá verði áfram á Selfossi

"Bæjarráð lýsir yfir vonbrigðum með það að hagræðingaraðgerðir ríkisins séu alltaf á sama veg, að starfsemi sé lögð niður á landsbyggðinni og flutt til Reykjavíkur," segir bæjarráð Árborgar í yfirlýsingu vegna ákvörðunar um að loka skrifstofu Þjóðskrárinnar á Selfossi.

Forseti Alþingis í Indlandsför

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, er í opinberri heimsókn á Indlandi. Með henni eru þingkonurnar Unnur Brá Konráðsdóttir og Oddný G. Harðardóttir, auk alþjóðaritara þingsins, Jörundar Kristjánssonar.

Reynt að semja um vopnahlé

Fulltrúar Egypta hafa síðustu daga lagt mikla vinnu í að fá Ísraela og Palestínumenn til að semja um vopnahlé og gerðu sér vonir um að af því yrði í gær, nærri viku eftir að Ísraelar hófu loftárásir á Gasa. Ekkert samkomulag hafði náðst þegar Fréttablaðið fór í prentun í gærkvöldi.

Konur mega ekki verða biskupar

Bretland Enska biskupakirkjan felldi í gær naumlega tillögu um að konur gætu orðið biskupar í kirkjunni. Tuttugu ár eru síðan kirkjan samþykkti að konur gætu orðið prestar.

Hafði kallað Makedóna slava

Aivo Orav, sendiherra Evrópusambandsins í Makedóníu, hefur beðist afsökunar á því að hafa sagt meirihluta landsmanna vera slava.

Aðkoma Ólafs "óljós“ og "óþarflega flókin“ í ákæru

Hluta ákæru á hendur Ólafi Ólafssyni, sem var annar stærsti hluthafi Kaupþings, í Al-Thani-málinu er einnig vísað frá, en um er að ræða ákærulið vegna hlutdeildar í meintri markaðsmisnotkun Hreiðars Más Sigurðssonar og Sigurðar Einarssonar.

Ákæru á hendur Magnúsi vísað frá dómi í Al-Thani máli

Ákæru sérstaks saksóknara á hendur Magnúsi Guðmundssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg, hefur verið vísað frá dómi. Úrskurður um frávísun var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur kl. 9 í morgun og hefur þegar verið kærður til Hæstaréttar. Dóms er að vænta fljótlega yfir öðrum sakborningum.

Engin þjóð myndi sætta sig við árásir eins og Ísrael hefur orðið fyrir

Ástæðan fyrir árásum Ísraelar gagnvart Palestínumönnum er helst sú að skotið hefur verið yfir þúsund flugskeytum frá Palestínu yfir til Ísraels á þessu ári. "Það er engin þjóð sem myndi sætta sig við slíkt,“ útskýrði Gísli Freyr Valdórsson, fréttamaður á Viðskiptablaðinu í viðtali í Harmageddon.

Sif Traustadóttir: Aðfarir tamningakonunnar klárlega dýraníð

„Ég er búin að ráðfæra mig við hestafólk, þetta eru ekki tamningar, það eru allir sammála um það," segir Sif Traustadóttir, formaður Dýraverndunarsambands Íslands um tamningakonuna sem myndband birtist á Youtube þar sem hún virtist beita óvanalega harkalegum aðferðum við tamningar á hesti.

Þarf að grafa sig niður til þess að tengja jólaljósin

Miklum snjó hefur kyngt niður víða um land síðustu vikur og hafa íbúar Dalvíkurbyggðar ekki farið varhluta af því. Á vef Dalvíkurbyggðar kemur fram að ekki hefur komið svo mikill snjór í sveitarfélaginu í nokkur ár, og er óhætt að segja að íbúar séu að verða þreyttir á þessum ófriði í veðrinu.

Lögreglan fagnar umræðu

Landssamband lögreglumanna (LL) fagnar umræðu sem orðið hefur um löggæslumál á Íslandi og stöðu lögreglunnar undanfarna daga á Alþingi Íslendinga. Þetta kemur fram í ályktun Landssambands lögreglumanna sem barst til fjölmiðla fyrir stundu.

Afríkumenn safna ofnum fyrir kalda Norðmenn

Afríkubúar hafa hafið söfnun á ofnum fyrir íbúa Noregs vegna landlægs kulda þar í landi. Í myndbandi sem fylgir fréttinni er lag, svona í anda hjálpum þeim, þar sem íbúar Afríku skora á íbúa heimsálfunnar að aðstoða þessa íssköldu Norðmenn.

Hætt við Holtsgöng

Borgarstjórn samþykkti í dag breytingu á svæðisskipulagi vegna Holtsgangna og byggingarsvæðis númer 5. Svæðisskipulagstillagan var samþykkt í skipulagsráði 7. nóvember síðastliðinn samkvæmt tilkynningu frá borginni.

Fullyrt að vopnahlé verði undirritað í kvöld

Vopnahlé virðist vera í burðarliðnum í átökum Ísraelsmanna og liðsmanna Hamas samtakanna á Gaza ströndinni. Þetta fullyrðir forseti Egyptalands sem leitt hefur friðarumleitanir. Fullyrt er að vopnahléið verði undirritað í kvöld en Ísraelsmenn hafa ekkert staðfest.

Tamningakonan rekin

Ung hestakona sem sést reyna að temja hest á umdeildu myndbandi, var leyst frá störfum sínum sem tamningakona í gær. Hún hefur ráðið sér lögmann, en konan hefur hingað til talin eiga framtíðina fyrir sér í faginu.

Dæmd fyrir ærumeiðingar á vefsíðu Mottumars

Fjörtíu og fimm ára gömul kona, fagstjóri líffræðagreina í menntaskóla á höfuðborgarsvæðinu, var dæmd í 30 daga skilorðsbundið fangelsi til tveggja ára í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir ærumeiðandi aðdróttanir gagnvart karlmanni á veraldarvefnum.

Varað við stormi í kvöld

Búist er við stormi, meira en 20 metrum á sekúndu, suðaustanlands í kvöld og sunnan og vestan til á landinu á morgun. Klukkan þrjú í dag var austan- og norðaustanátt, hvöss syðst á landinu og einnig sums staðar NV-til, annars talsvert hægari.

Segir jaðaráhrif skatta vera mest hjá barnafólki

Sigríður Ásthildur Andersen, lögmaður og frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins, hefur sett upp reiknivélina Vasareikninn. Þar geta menn séð hvað þeir bera í raun úr býtum þegar þeir bæta við sig vinnu, hvað þeir fá í vasann.

Fjölmiðlabanni í ofbeldismáli aflétt

"Slagsmálin stóðu yfir í tvær eða þrjár mínútur. Þetta var svakalegt. Algjör óreiða. Þú getur rétt ímyndað þér hvernig þetta var. Stofan var ekki meira en fimmtán fermetrar og það voru tíu eða tólf manns að slást."

265 manns myrtir eftir kynleiðréttingu

Að minnsta kosti 265 einstaklingar sem hafa farið í kynleiðréttingu hafa verið myrtir í ár. Þetta segir Ugla Stefanía Jónsdóttir, ritari félagsins Trans-Ísland.

ÓB bannað að auglýsa söfnun vildarpunkta

Neytendastofa komst að þeirri niðurstöðu í dag að ÓB hefði brotið lög með fullyrðingum sínum um söfnun vildarpunkta með notkun ÓB-lykils. Það var Skeljungur sem kvartaði til Neytendastofu en ÓB er í eigu Olís. ÓB var bönnuð birting umræddar auglýsingar en félagið var hinsvegar ekki sektað þar sem ekki er um að ræða ítrekunarbrot gegn fyrri ákvörðun Neytendastofu.

Börkur reifst við verjanda sinn

Ósætti kom upp á milli Barkar Birgissonar og Inga Freys Ágústssonar, verjanda hans, þegar hlé var gert á þinghaldi í stóru ofbeldismáli sem fram fer í Héraðsdómi Reykjaness í dag.

Nítján sagt upp hjá N1

Stjórn N1 hefur ákveðið að nokkrar sérverslanir félagsins með varafluti, aukahluti í bíla og rekstrar vörur verði færðar í dótturfélagið, Bílanaust. Samhliða breytingunum verður 19 manns sagt upp störfum.

Um 40% vilja ekki gefa líffæri úr látnum aðstandanda

Þótt rannsóknir bendi til þess að um 80-90% allra séu tilbúnir til þess að gefa úr sér líffæri við andlát, eru um 40% aðstandenda sem neita að gefa líffæri úr látnum aðstandanda. Þetta segir Guðmundur Löve, framkvæmdastjóri SÍBS. Sambandið hefur ýtt úr vör nýju kynningarátaki til þess að vekja athygli á mikilvægi líffæragjafar.

Lögreglan á 250 skammbyssur

Lögregluembættin víðsvegar um land hafa tvö hundrað fimmtíu og fjórar skammbyssur til umráða og þrjátíu og sjö riffla. Þetta kemur fram í skýrslu sem var unnin eftir samráðsfundi innanríkisráðuneytisins og ríkislögreglustjóra í byrjun október síðastliðnum, og fréttastofa hefur undir höndum.

Ólíklegt að skýrslutökum ljúki í dag

Ólíklegt er að skýrslutökum yfir þolendum og öðrum vitnum, í líkamsárásarmálum sem eru nú til aðalmeðferðar í Héraðsdómi Reykjaness, ljúki í dag eins og gert var ráð fyrir.

Augljóslega ósammála niðurstöðunni

"Það er búið að kæra þetta þannig að við erum augljóslega ósammála niðurstöðunni," segir Björn Þorvaldsson, saksóknari hjá sérstökum saksóknara. Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í dag frá ákæru á hendur Magnúsi Guðmundssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg, og að hluta ákæru gegn Ólafi Ólafssyni, einum aðaleiganda Kaupþings.

Meira af ungu fólki sem dvelur hér í stuttan tíma

Um 40 prósent meiri sala var til erlendra ferðamanna í nóvember og október miðað við sama tíma í fyrra og um 25 til 30 prósent yfir allt árið. Bandaríkjamenn og Norðmenn eyða mestu hér á landi.

Annþóri og Berki gert að víkja á meðan vitni gaf skýrslu

Annþóri Kristjáni Karlssyni og Berki Birgissyni var gert að víkja úr dómssal í morgun þegar eitt vitnanna gaf skýrslu í máli þeirra. Þetta var gert að kröfu saksóknara í málinu. Verjendur þeirra mótmæltu kröfunni. Eftir að skýrslutöku lauk var hlé gert á þinghaldi og verjendur fengu að ráðfæra sig við sakborninga og ákveða hvaða spurningum verður beint að vitninu. Verjendur munu síðan spyrja vitnið.

Myndir Halldórs Baldurssonar úr héraðsdómi

Teiknarinn Halldór Baldursson fangaði með blýanti sínum þegar Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson gáfu skýrslu fyrir dómi í gær. Áður hafði dómari bannað fréttaflutning af réttarhöldum í líkamsárásarmáli Annþórs, Barkar og sjö annarra.

Enn mikill viðbúnaður í héraðsdómi

Sami viðbúnaður er í Héraðsdómi Reykjaness í dag, á öðrum degi réttarhaldanna yfir Annþóri Karlssyni, Berki Birgissyni og félögum, og var í gær. Annþór og Börkur verða viðstaddir þegar fyrsta vitni í líkamsárásarmáli gefur skýrslu. Þetta er aðalvitni ákæruvaldsins. Þessi árás átti sér stað í Mosfellsbæ. Annþór og Börkur eru ásamt sjö öðrum sakaðir um að hafa ráðist á fjóra menn með golfkylfum, trékylfum og sleggju.

Hillary Clinton á leið til Ísraels

Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna er nú á leið til Ísraels. Þar mun hún ræða við Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels og leiðtoga palentínsku heimastjórnarinnar í Ramallah um ástandið á Gaza svæðinu.

Fjölveiðiskipið Þórsnes II strandaði í Breiðafirði

Fjölveiðiskipið Þórsnes II tók niðri á grynningu í Norðurflóa innarlega í Breiðafirði um 7 sjómílum suð-vestur af Reykhólum upp úr kl. 6 í morgun. Skipverjar höfðu samband við Landhelgisgæsluna og upplýstu um aðstæður.

Kærir vegna atviks í Heiðarholti

Kolfinna S. Magnúsdóttir bæjarfulltrúi í meirihlutanum í Garði, ætlar að leggja fram kæru vegna atviks á skammtímavistuninni Heiðarholti, sem heyrir undir Félagsþjónustu Sandgerðisbæjar, Garðs og Voga.

Spáir stormi suðaustanlands í kvöld

Veðurstofan spáir stormi suðaustanlands í kvöld. Annars verður vaxandi noðraustanátt og allt að 18 metrum um hádegi og éljagangur nema á Vestur- og Suðvesturlandi.

Tóku réttindalausan ökumann undir áhrifum fíkniefna

Lögreglumenn í Keflavík óku í nótt fram á kyrrstæðan bíl, sem var í gangi. Ungur maður sat þar undir stýri og við nánari athugun kom í ljós að hann var bæði undir áhrifum fikniefna og áfengis.

Skriður kominn á samninga um vopnahlé á Gaza

Skriður virðist kominn á samninga milli Ísraelsmanna og Hamassamtakanna á Gaza um vopnahlé í þeim átökum sem staðið hafa linnulaust frá því í miðri síðustu viku.

Slúðurblað segir Kate Middleton vera ólétta

Bandaríska slúðurblaðið New York Post greinir frá því að Kate Middleton hertogaynjan af Cambridge, eiginkona Williams Bretaprins sé ólétt af fyrsta barni þeirra hjóna.

Sjá næstu 50 fréttir