Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vissi ekki að peningarnir kæmu frá Eir Jóhannes Rúnar Jóhannsson hæstaréttarlögmaður, tengdasonur Sigurðar Helga Guðmundssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Eirar, stóð í þeirri trú að gjafabréf á flugmiða sem Sigurður afhenti honum væri persónuleg gjöf frá tengdaföður hans. 20.11.2012 06:00
Umstang án fordæma hjá Annþóri og Berki Fáheyrður viðbúnaður var í Héraðsdómi Reykjaness í gærmorgun þegar aðalmeðferð hófst í líkamsárásarmáli á hendur Annþóri Kristjáni Karlssyni, Berki Birgissyni og sjö öðrum mönnum. 20.11.2012 06:00
Afskipti af tóbakssölu barna þyrnir í augum Samtök verslunar og þjónustu saka Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar og Kópavogsvæðis um íþyngjandi og ólögmæt afskipti af afgreiðslustörfum þeirra sem eru yngri en átján ára í verslunum þar sem tóbak er selt. 20.11.2012 06:00
Hitabylgjur, þurrkar og mikil flóð víða Breyti jarðarbúar ekki snarlega um stefnu varðandi losun gróðurhúsalofttegunda má búast við að andrúmsloft jarðar verði að meðaltali fjórum gráðum heitara í lok aldarinnar, eða jafnvel strax eftir hálfa öld eða svo. 20.11.2012 00:30
Hamas setur skilyrði Seint í kvöld höfðu loftárásir Ísraela á Gasasvæðið síðan á miðvikudag kostað nærri hundrað manns lífið. Um 50 þeirra voru almennir borgarar, þar á meðal tugir barna. 20.11.2012 00:00
Lögreglan í úreldum skotvestum Grunnbúnaður lögreglunnar hér á landi til þess að takast á verið sérstakar lögregluaðgerðir er mjög takmarkaður. Meðal annars er nokkur hluti af varnarbúnaði lögreglu kominn til ára sinn og úreldur, sem dæmi má nefna að skotvesti lögreglunnar eru beinlínis útrunninn, en notkunartími þeirra var frá 1995 til 2005. 19.11.2012 23:28
Vinna að því að fylla Ártúnsbrekkuna af snjó Það hafa eflaust einhverjir skíðamenn horft með öfundaraugum til snjóþyngslanna á Norðurlandi undanfarna daga, en veður á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki boðið upp á miklar snjóiðkanir. 19.11.2012 22:21
Ók á tengikassa og slökkti ljósin Ökumaður bifreiðar í Keflavík missti stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hún hafnaði á tengikassa. Atvikið varð með þeim hætti að bifreiðin rann til að aftan samkvæmt tilkynningu frá lögreglu. 19.11.2012 22:14
Tólf íslenskum glæpamönnum vísað frá Noregi Íslendingar eru sú þjóð sem er helst rekin frá Noregi sé miðað við höfðatölu. Þetta kom fram í spjalli félaganna í Reykjavík síðdegis við kennarann Guðna Ölversson sem er búsettur í Noregi. 19.11.2012 21:30
Íslensk kona lemur hest ítrekað með svipu Hrollvekjandi myndband sem Nicole Muller setti inn á Youtube sýnir konu berja hest ítrekað með svipu. Það er augljóst að fólkið á myndbandinu er íslenskt, en þar má meðal annars heyra karlmann tala íslensku við konuna. Hann segir meðal annars meira eftir að hún lemur hestinn ítrekað með svipu. 19.11.2012 21:10
Bubbi þakkar Jóni Ólafs umhyggju í sinn garð Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens segir á veggnum sínum á samskiptavefnum Facebook að ástæðan fyrir því að jólaplatan hans hafi verið frestað hafi verið vegna fyrirspurnar frá STEF, en sá sem spurði krafðist nafnleyndar, en Bubbi nafngreinir hann engu að síður á samskiptavefnum. 19.11.2012 21:00
Segir árásirnar á Palestínu hægfara þjóðarmorð - eldræða Ögmundar í heild sinni Ögmundur Jónasson hélt kröftuga ræðu á mótmælum fyrir utan bandaríska sendiráðið í kvöld, en þar gerði hann meðal annars orð innanríkisráðherra Ísraels, um að hann vildi sprengja Palestínu aftur til miðalda, að umtalsefni. 19.11.2012 20:13
Þrír vilja keppa um Norðfjarðargöng Útboðsferli Norðfjarðarganga er hafið og segir bæjarstjóri Fjarðabyggðar það mikil gleðitíðindi. Þrír verktakahópar óska eftir að bjóða í verkið. Göngin verða milli Eskifjarðar og Neskaupstaðar, 7,5 kílómetrar að lengd, en markmiðið samkvæmt matsáætlun er að styrkja byggðarlög á Austurlandi með því að tryggja greiðar samgöngur og auka umferðaröryggi. 19.11.2012 19:54
Sjálfhverfa kynslóðin: Gæti orðið rof í keðjunni Það kemur til með að hafa miklar afleiðingar að eignir heillar kynslóðar þurrkist út og gott betur. Þetta segir verkfræðingur sem reiknað hefur út að á meðan hrein eign Íslendinga á aldrinum 30 til 45 ára hafi horfið, hafi eignastaða þeirra sem eru 60 - 75 ára aukist mjög. 19.11.2012 19:01
Ögmundur hvetur Obama til þess að stöðva blóðbaðið Ögmundur Jónsson innanríkisráðherra tók þátt fjölmennum mótmælum við bandaríska sendiráðið síðdegis í dag sem félagið Ísland-Palestína skipulagði. Hann krefst þess að Bandaríkjamenn stöðvi blóðbaðið á Gaza. 19.11.2012 18:45
Almannavarnir: Hættu- og óvissustigi aflétt Búið er að aflétta hættu- og óvissustigi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum og á Mið-Norðurlandi samkvæmt tilkynningu frá almannavörnum. 19.11.2012 17:42
Engin heimild var til staðar fyrir ríkisábyrgð handa Farice Ríkisendurskoðun átelur innanríkisráðuneytið fyrir óljós fjárframlög til Farice ehf., en alls hefur ríkissjóður veitt félaginu 4,2 milljarða króna í framlög frá árinu 2002 til 2011 og það er ljóst að félagið mun þurfa meira fé áður en yfir lýkur. 19.11.2012 17:17
Varð fyrir vonbrigðum með dóminn "Dómurinn er mér mikil vonbrigði og satt best að segja átti ég ekki von á að sannleikanum yrði snúið á hvolf jafn rækilega og raun ber vitni,“ segir Aron Karlsson. Hann var í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi og til að greiða Íslandsbanka, Glitni og Arion banka um 160 milljónir króna i bætur vegna fjársvika tengdum fasteignaviðskiptum. "Niðurstaðan er byggð á röngum forsendum og mér finnst í þessu tilfelli að bankakerfið hafi fengið að njóta vafans í málinu en ég ekki,“ segir hann. 19.11.2012 17:01
Varnargirðing fyrir utan bandaríska sendiráðið Lögreglan hefur sett upp varnargirðingu fyrir utan bandaríska sendiráðið en yfir fimmtán hundruð manns hafa skráð sig á mótmæli fyrir utan sendiráðið sem hefjast núna klukkan fimm. Það er félagið Ísland-Palestína sem stendur fyrir mótmælafundinum. 19.11.2012 16:47
Lífsleikni Gillz ekki frumsýnd á föstudag Stórveldið hefur ákveðið að fresta sýningu á bíómyndinni Lífsleikni Gillz um óákveðinn tíma en frumsýna átti myndina á föstudaginn. 19.11.2012 16:19
Anderson Cooper illa brugðið Honum var illa brugðið, Anderson Cooper, fréttamanni CNN sjónvarpsstöðvarinnar, þegar hann varð vitni að sprengingu í beinni útsendingu í gærkvöldi þegar hann var við fréttaflutning þar. Ástandið á Gaza verður alvarlegra með hverjum deginum sem líður en Cooper var að segja fréttir af tíu manns sem höfðu farist í sperngingu þegar hann heyrði hvellinn. Hann fullyrðir að þetta sé ein mesta sprenging sem hann hafi heyrt síðan hann kom þangað. 19.11.2012 16:17
Jólaplata Bubba kemur ekki út fyrir jólin - misskilningur varðandi leyfi á Bítlalagi "Þetta er að sjálfsögðu mjög leiðinlegt en við öxlum þá ábyrgð að það var ekki staðið rétt að málum,“ segir Eiður Arnarsson, útgáfustjóri hjá Senu. 19.11.2012 15:51
Öryggi lögreglumanna stefnt í hættu Öryggi lögreglumanna er stefnt í hættu, segir Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann spurði Ögmund Jónasson innanríkisráðherra um skýrslu sem unnin var í ráðuneytinu um stöðu lögreglunnar. Hann segir að í skýrslunni sé dregið fram hversu veik lögreglan í landinu sé orðin. "Við þessu verður að bregðast og ábyrgð Alþingis er gríðarlega mikil í þessu máli,“ segir Jón. Hann spurði á Alþingi í dag hvort Ögmundur myndi taka málið upp á Alþingi. 19.11.2012 15:49
Múhameðsteiknarinn alvarlega veikur Hinn heimsfrægi danski teiknari Kurt Wetergaard, sem vað frægur fyrir að teikna afar umdeildar myndir af Múhameð spámanni, er mjög veikur. Fréttavefur danska ríkisútvarpsins segir að hann sé svo veikur að hann hafi þurft að aflýsa ferðum til London og New York. Ferðirnar átti hann að fara í til að kynna ævisögu sína. Bókin ber einfaldlega titilinn "Bókin að baki Múhameðsteikningunum“. Westergaard er 77 ára gamall. Hann hefur ítrekað fengið hótanir frá heitttrúuðum múslimum síðan að bókin kom út. 19.11.2012 15:01
Dýrara að baka jólakökurnar en í fyrra Þær bökunarvörur sem verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á þann 13. nóvember síðastliðinn hafa hækkað í verði frá sambærilegri könnun sem gerð var í nóvember í fyrra hjá Bónus, Krónunni, Nettó, Fjarðarkaupum, Hagkaupum og Nóatúni. 19.11.2012 14:33
Frábærar aðstæður til að skauta á Reykjavíkurtjörn Í dag eru frábærar aðstæður til skautaiðkunar á Tjörninni í Reykjavík. Tjörnin er lögð spegilsléttum ísi eftir logn undanfarinna daga, segir á vefsíðu Reykjavíkurborgar. 19.11.2012 13:49
Sæðingamenn á leið í verkfall Sæðingamenn landsins eða frjótæknar eins og þeir eru oftast nefndir standa í kjaradeildu við búnaðarsambönd landsins. Þeir ætla sér að fara í verkfall um næstu áramót náist ekki samningar við þá, eftir því sem fram kemur á fréttavefnum dfs.is. Frjótæknar telja að þeir hafi dregist mikið aftur úr í launum sé miðað við aðrar stéttir. Þeir hafi verið með lausa samninga frá 1. janúar 2008 og hafi samningafundir sem farið hafa fram ekki skilað neinum árangri. Náist ekki samningar fyrir komandi áramót sé hið eina í stöðunni að þeir boði til verkfalls. 19.11.2012 13:37
Ágúst Torfi Hauksson hættur hjá Jarðborunum Ágúst Torfi Hauksson, forstjóri Jarðborana, mun láta af starfi. Samkomulag hefur náðst um þetta, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu. Þar kemur fram að stjórn félagsins og forstjóri hafi ekki verið sammála um leiðir að því markmiði að efla rekstur Jarðborana hf. Ráðningarferli þar sem leitað verður að nýjum forstjóra Jarðborana er þegar í undirbúningi. Á meðan það ferli stendur mun Baldvin Þorsteinsson, stjórnarformaður félagsins gegna starfi forstjóra. 19.11.2012 13:11
Útvarpsmanni dæmdar bætur frá ritstjóra Útgáfufélag Viðskiptablaðsins, Myllusetur, var í morgun sýknað af skaðabótakröfu Péturs Gunnlaugssonar, útvarpsmanns á Útvarpi Sögu, vegna ummæla í Viðskiptablaðinu og á VB.is. Þá hafnaði dómurinn einnig kröfu Péturs um að Björgvin Guðmundssyni, ritstjóra blaðsins, yrði gert að sæta refsingu vegna ummælanna. 19.11.2012 12:31
Óska eftir vitnum að líkamsárás við Hvíta húsið Lögreglan á Selfossi óskar eftir vitnum að líkamsárás við Hvíta húsið á Selfossi um klukkan fjögur aðfaranótt sunnudags. Talið er að ráðist hafi verið á manninn á skemmtistaðnum en hann var með áverka í andliti. Dyraverðir á skemmtistaðnum tóku mann sem var grunaður um árásina. Þeir sem vita eitthvað um líkamsárásina eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Selfossi í síma 480 - 1010. 19.11.2012 12:16
Aron Karlsson dæmdur í tveggja ára fangelsi Aron Karlsson var dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Dómur í máli sérstaks saksóknara gegn honum ar kveðinn upp í morgun. 19.11.2012 12:00
Fundu amfetamín og eðlu Amfetamín, eðla og svefnlyf var meðal þess sem blasti við lögreglunni á Suðurnesjum, þegar hún gerði húsleit í íbúðarhúsnæði í Reykjanesbæ síðastliðið föstudagskvöld, að fengnum dómsúrskurði. 19.11.2012 11:34
Forsetahjónin heimsækja bændur fyrir norðan Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff forsetafrú heimsækja í dag og á morgun sauðfjárbændur í Þingeyjarsýslu, Skagafirði og Húnaþingi sem glímt hafa við afleiðingar veðuráhlaupsins í vetrarbyrjun og háð harða baráttu við að ná fé úr fönn. Margir hafa misst verulegan hluta bústofns síns. Þá munu forsetahjónin heimsækja tvo grunnskóla til sveita sem og Framhaldsskólann á Laugum og Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki. 19.11.2012 11:09
Yfir þúsund ætla að mótmæla við bandaríska sendiráðið Yfir eitt þúsund manns hafa skráð sig á mótmæli fyrir utan sendiráð Bandaríkjanna á Laufásvegi klukkan fimm í dag. Það er félagið Ísland-Palestína sem stenur fyrir mótmælafundinum. 19.11.2012 10:48
"Hef ekki heyrt um þetta áður" Segir lagaprófessor um þá ákvörðun dómara að bannað sé að segja fréttir úr dómsal, fyrr en eftir skýrslutökur. 19.11.2012 10:26
Fá ekki að segja fréttir af réttarhöldunum í dag Saksóknari fór fram að fréttaflutningur af skýrslustökum aðalmeðferðar í máli ákæruvaldsins gegn Annþóri Kristjáni Karlssyni og Berki Birgissyni, yrði takmarkaður. 19.11.2012 09:51
Börkur bað um læknisaðstoð við komuna í réttarsal Mikill viðbúnaður var við Héraðsdóm Reykjaness þegar aðalmeðferð hófst í máli ákæruvaldsins gegn Annþóri Kristjáni Karlssyni og Berki Birgissyni og fleiri mönnum sem ákærðir hafa verið fyrir nokkrar sérstaklega hættulegar líkamsárásir. 19.11.2012 09:05
Vegur lokaður vegna snjóflóða frá Ketilás að Siglufirði Vegur er lokaður vegna snjóflóða og snjóflóðahættu frá Ketilás að Siglufirði. 19.11.2012 07:08
Bankastjórinn segir kröfuhafa sýna skilning Viðræður eru hafnar um að lengja í lánum Landsbankans gagnvart gamla bankanum. Bankastjóri Landsbankans segir erlenda kröfuhafa sýna greiðsluflæðisvanda Íslands skilning og vonast eftir því að hægt verði að lengja lánin verulega. 19.11.2012 07:00
Súkkulaði örvar heilastarfsemi Franz Messerli, sérfræðingur í hjartasjúkdómum og kennari við Columbia háskóla, ritaði grein í læknaritið New England Journal of Medicine þar sem hann heldur því fram að súkkulaðiát auki líkur manna á því að hreppa Nóbelsverðlaun. 19.11.2012 07:00
Vildu ekki færa Þorláksbúð til Kirkjuþing felldi tillögu séra Baldurs Kristjánssonar um tilfærslu Þorláksbúðar. Baldur vildi að húsið yrði tekið niður og geymt þar til hentugur framtíðarstaður fyndist. 19.11.2012 07:00
Afinn á leiðinni á hvíta tjaldið Kvikmynd byggð á einleiknum Afanum er í bígerð. Sigurður Sigurjónsson, sem lék Afann í tæplega hundrað leiksýningum, mun fara með aðalhlutverkið. ?Þetta er ekki einleikur heldur er verið að blása í stóra og mikla bíómynd sem, þó að ég segi frá, kemur fólki við,? segir Sigurður. Bjarni Haukur Þórsson, höfundur leikritsins, skrifaði kvikmyndahandritið í samstarfi við Ólaf Egilsson. 19.11.2012 07:00
Fæðingardagurinn getur skipt sköpum Þeir nemendur sem yngstir eru í hverjum bekk eru líklegri til þess að fá ávísað örvandi lyfjum við ofvirkni og athyglisbresti (ADHD) en þeir sem eldri eru. Námsárangur yngstu nemendanna er jafnframt líklegri til þess að vera lakari en þeirra eldri. 19.11.2012 07:00
Tollfrjálst í fríhöfn en rukkað við hliðið Verð á mörgum vörum í komuverslun Fríhafnarinnar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar er yfir leyfilegu hámarksvirði einstaks hlutar, 32.500 krónum. Því þurfa kaupendur að gefa hlutina upp við tollafgreiðslu eftir að hafa keypt þá tollfrjálst skömmu áður, undir sama þaki. 19.11.2012 07:00
Árás gerð á heimasíðu íslensks þjóðráðs Árás var gerð á heimasíðu íslensks þjóðráðs, eða Icewise.is á laugardaginn. Lá síðan niðri fram á kvöld. 19.11.2012 06:42
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent