Aðkoma Ólafs "óljós“ og "óþarflega flókin“ í ákæru Þorbjörn Þórðarson skrifar 20. nóvember 2012 13:16 Ólafur Ólafsson.
Hluta ákæru á hendur Ólafi Ólafssyni, sem var annar stærsti hluthafi Kaupþings, í Al-Thani-málinu er einnig vísað frá, en um er að ræða ákærulið vegna hlutdeildar í meintri markaðsmisnotkun Hreiðars Más Sigurðssonar og Sigurðar Einarssonar. Ákæru vegna hlutdeildar í meintum umboðssvikum er ekki vísað frá og því er enginn úrskurður um málskostnað Ólafs. Málið snýst um lánveitingu Kaupþings til sjeiks Al-Thani vegna kaupa á hlutabréfum hans í Kaupþingi hinn 22. september 2008. Eins og fréttastofa greindi frá í morgun var öllum ákæruliðum á hendur Magnúsi Guðmundssyni vísað frá. Þá þarf íslenska ríkið að greiða Magnúsi rúmlega níu milljónir króna í málskostnað. Úrskurðurinn hefur verið kærður til Hæstaréttar. Í b-lið III. kafla ákærunnar voru þeir Magnús og Ólafur ákærðir fyrir hlutdeild í markaðsmisnotkun. Í úrskurði héraðsdóms segir: "Ákæruliður þessi getur ekki talist vera skýr um verknað ákærða Magnúsar og er hlutur (hans) þar skilgreindur með mjög almennum hætti. (...) Hið sama er að segja um skilgreiningu á verknaði ákærða Ólafs, sem telja verður afar óljósa en jafnframt óþarflega flókna: "að gera hlutabréfaviðskiptin að veruleika með aðkomu að fjármögnun þeirra," en þar er vísað almennt til II. kafla ákærunar. (...) sérstaklega er orðið "aðkoma" svo óljósrar merkingar að það verður að telja ótækt í ákæru." Var ákæruliðnum því vísað frá dómi. Ragnar H. Hall, verjandi Ólafs Ólafssonar, vildi lítið tjá sig um niðurstöðuna þar sem úrskurðurinn hefur verið kærður til Hæstaréttar. „Það er búið að kæra þetta til Hæstaréttar og þar fær þetta sína venjulegu meðhöndlun," segir Ragnar.
Tengdar fréttir Ákæru á hendur Magnúsi vísað frá dómi í Al-Thani máli Ákæru sérstaks saksóknara á hendur Magnúsi Guðmundssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg, hefur verið vísað frá dómi. Úrskurður um frávísun var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur kl. 9 í morgun og hefur þegar verið kærður til Hæstaréttar. Dóms er að vænta fljótlega yfir öðrum sakborningum. 20. nóvember 2012 10:40 Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Biður Jón afsökunar Innlent Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Erlent Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Erlent Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira
Ákæru á hendur Magnúsi vísað frá dómi í Al-Thani máli Ákæru sérstaks saksóknara á hendur Magnúsi Guðmundssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg, hefur verið vísað frá dómi. Úrskurður um frávísun var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur kl. 9 í morgun og hefur þegar verið kærður til Hæstaréttar. Dóms er að vænta fljótlega yfir öðrum sakborningum. 20. nóvember 2012 10:40