Innlent

Dýrara að baka jólakökurnar en í fyrra

Mynd úr safni
Mynd úr safni
Þær bökunarvörur sem verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð á þann 13. nóvember síðastliðinn hafa hækkað í verði frá sambærilegri könnun sem gerð var í nóvember í fyrra hjá Bónus, Krónunni, Nettó, Fjarðarkaupum, Hagkaupum og Nóatúni.

Áberandi eru miklar verðhækkanir í öllum vöruflokkum hjá öllum verslunum. Vinsæl bökunarvara eins og Ljóma smjörlíki hefur hækkað um 12-18%, Pillsbury hveiti hefur hækkað um 8-20% og Dr. Oetker rauð kokteilber hafa hækkað um 7-22%.

Nánar á vefsíðu ASÍ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×