Innlent

Yfir þúsund ætla að mótmæla við bandaríska sendiráðið

Yfir eitt þúsund manns hafa skráð sig á mótmæli fyrir utan sendiráð Bandaríkjanna á Laufásvegi klukkan fimm í dag. Það er félagið Ísland-Palestína sem stenur fyrir mótmælafundinum.

Á Facebooksíðu félagsins segir að tilefnið séu grimmilegar árásir Ísraelshers og fjöldamorð þeirra á palestínskum borgurum á Gaza-ströndinni. Félagið krefst þess að Barack Obama, bandaríkjaforseti, stöðvi fjöldamorðin í Palestínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×