Rolling Stone um Of Monsters and Men: Salurinn í Hörpu glataður 5. nóvember 2012 22:08 Krakkarnir í Of Monsters and Men á tónleikum. Mynd/Ernir
David Fricke tónlistargagnrýnandi Rolling Stone, eins virtasta tónlistartímarits í heiminum, fer fögrum orðum um Iceland Airwaves-hátíðina sem lauk í gær. Fricke þessi hefur komið hingað til lands síðustu ár og heillast mjög af íslenskum tónlistarmönnum og umstangi hátíðarinnar. Hann missti af fyrsti degi hátíðarinnar vegna fellibyljarins Sandy sem reið yfir austurströnd Bandaríkjanna í síðustu viku en segist vera heppinn að hafa komist hingað þrátt fyrir allt. Hann skrifar um marga tónlistarmenn sem komu fram á hátíðinni í ár, þar á meðal íslensku krakkana í Of Monsters and Men. Hann segir að hljómsveitin hafi selt yfir 250 þúsund eintök af plötu sinni, My Head Is an Animal, í Bandaríkjunum. Fricke segir að orkan og gleðin sem hafi einkennt tónleikana þeirra á hátíðinni í fyrra hafi enn verið til staðar. En salurinn í Hörpu hafi alls ekki hentað þeim - svo virðist sem einhverskonar hljóðdeyfir hafi skemmt hljóminn þeirra. Hann segir að hljómsveitin hafi spilað fyrir 18 þúsund manns fyrir nokkrum mánuðum en hljómsveitin hafi aldrei náð til áhorfenda í tónlistarhúsinu, sem hafi verið um 1500 talsins. Hann segir að þrátt fyrir allt sé íslenska hljómsveitin „fyrirbæri", og að tónleikarnir hafi verið á góðum tíma á röngum stað. „Það eru margar ástæður fyrir því að ég kem alltaf aftur og aftur til Íslands og á Airwaves-tónlistarhátíðina - menningin og mikilfengleikinn í náttúrunni; gæðin og dýptin í tónlistinni; vinirnir sem ég hef eignast," skrifar Fricke og segir að hátíðin komi sér alltaf á óvart. „Ég býst við meira af því sama á næsta ári. Og ég veit að ég verð ekki fyrir vonbrigðum." Hann fjallar meðal annars um Steindór Andersen, Dr. Gunna, Ghostdigital, Purkurr Pillnik, Ólöfu Arnalds og íslenska tríóið Epic Rain í pistli sínum.Greinina má lesa hér.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira