Fleiri fréttir

Mannasiðir á göngubrú

Ökumenn sem keyra Hringbrautina þessa stundina reka eflaust upp stór augu, en á göngubrúnni yfir í Vatnsmýrina má sjá að búið er að festa risastóra stafi sem mynda orðið Mannasiðir.

Kærleikskúlan 2012 opinberuð og afhent

Kærleikskúlan 2012 var afhjúpuð við hátíðlega athöfn í Listasafni Reykjavíkur í dag. Það er Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra sem stendur að verkefninu en handhafi Kærleikskúlunnar í ár er Jón Margeir Sverrisson, sundkappi og ólympíumethafi.

Enn ein kannabisræktunin stöðvuð

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði enn eina kannabisræktunina í fyrradag. Nú var hún í iðnaðarhúsnæði í Kópavogi.

Ber sjálfur ábyrgð á hlutabréfakaupunum

Íslenska ríkið, Fjármálaeftirlitið og Kauphöllin voru í morgun sýknuð af kröfu manns sem sagðist hafa verið rændur þegar hann keypti bréf í Glitni í vikunni eftir að ríkið tók yfir 75% hlut í bankanum haustið 2008.

Bjarni Ben: Ætla að halda ótrauður áfram

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ætlar að halda ótrauður áfram sem formaður Sjálfstæðisflokksins og segist stefna að því að leiða flokkinn í kosningunum næsta vor.

Kókaínsmyglari í fimm mánaða fangelsi

Karlmaður á fimmtugsaldri var dæmdur í fimm mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að flytja inn tæp 120 grömm af kókaíni frá Danmörku þann 14. nóvember í fyrra. Styrkleiki efnisins var 75-77% og hefði verið unnt að drýgja efnið upp í 414 grömm af kókaíni miðað við 22% styrkleika. Maðurinn játaði brot sín fyrir dómnum en sagðist ekki hafa vitað hvers eðlis efnin voru sem hann var með.

Glæpastríð í Eymundsson

Arnaldur Indriðason á mest seldu bókina á heildarlista Eymundsson vikuna 21.11.12 til 27.11.12. Í öðru sætinu er glæpadrottningin sjálf, Yrsa Sigurðardóttir, og má búast við hörðum toppslag þar, en Yrsa hefur ógnað stöðu Arnalds sem konung glæpasagnanna síðustu ár.

Útgefnum vegabréfum fjölgar áfram milli ára

Útgáfa vegabréfa heldur áfram að aukast á milli ára. Í október s.l. voru gefin út 3.365 íslensk vegabréf. Til samanburðar voru gefin út 2.653 vegabréf í október í fyrra. Fjölgar því útgefnum vegabréfum um 26,8 % milli ára.

Ætla að kvikmynda þríleik Jóns Kalmans

Sænska kvikmyndafyrirtækið Cap Horn Film AB og Kvikmyndafélagið Hughrif ehf. tryggðu sér fyrir stuttu kvikmyndaréttinn á þríleik Jóns Kalmans Stefánssonar sem samanstendur af Himnaríki og helvíti, Harmi englanna og Hjarta mannsins gefnum út af Bjarti.

Hobbitaæði grípur um sig á Nýja Sjálandi

Algert Hobbitaæði hefur gripið um sig á Nýja Sjálandi en þar er búið að frumsýna nýjustu mynd Peters Jackson, sem fjallar um Hobbitann. Myndirnar, sem eru undanfari Hringadróttinssögu, verða alls þrjár talsins. Sú fyrsta þeirra var sýnd í Wellington bíóinu í morgun. Allar stjörnurnar sem leika í myndinni voru viðstaddar sýninguna og tugþúsundir áhorfenda söfnuðust saman fyrir framan kvikmyndahúsið. Mestu aðdáendurnir tjölduðu jafnvel fyrir utan húsið til þess að vera sem næst rauðadreglinum þegar stjörnurnar gengu á honum.

Algengt að kynferðisbrotamenn gefi drengjum gjafir

Meirihluti dæmdra kynferðisbrotamanna sem brjóta gegn drengjum reynir að kaupa þögn þeirra með gjöfum. Peningar eru algengustu múturnar, samkvæmt nýrri rannsókn á öllum dómum Hæstaréttar frá 1920 til 2012.

Segir íslensku geitina geta unnið fyrir sér

Boðað er hefur verið til málþings á degi geitarinnar. Stofninn hefur eflst mikið síðustu ár, en er enn á válista. Málefni geitarinnar hafa ekki fengið hljómgrunn hjá stjórnvöldum, sem ber þó skylda til að vernda stofninn.

Helmingurinn látinn sæta geðrannsókn

Helmingur gerenda sem dæmdir hafa verið í Hæstarétti fyrir kynferðisbrot gegn dreng þurfti að sæta geðrannsókn. 16 gerendur hafa verið dæmdir sekir í slíkum málum í Hæstarétti frá stofnun hans til loka apríl 2012. Allir gerendur eru karlar.

Afsagnar Morsi krafist í Kaíró

Fjölmenn mótmæli gegn Mohammed Morsi Egyptalandsforseta snerust upp í mótmæli gegn Bræðralagi múslíma, hreyfingunni sem Morsi er sprottinn úr.

Lyfjaverð hér orðið hið lægsta

Lyfjaverð til sjúkrahúsa hér á landi er orðið hið lægsta á Norðurlöndunum, segir Hreggviður Jónsson, formaður Viðskiptaráðs, í viðtali í tímaritinu Straumum sem er gefið út af Capacent.

Rýmum fækkað um helming

Dvalarrýmum fyrir aldraða hefur fækkað um helming á síðustu sex árum, eða um 402 rými frá 2006 til 2011.

Kalla eftir fleiri umsögnum

Fastanefndir Alþingis hafa nú tvær vikur til að fjalla um og veita umsögn um valda hluta stjórnskipunarlaganna, sem lögð voru fram á þingi í haust í kjölfar ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um drög að nýrri stjórnarskrá. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd deildi fyrir helgi tilteknum köflum niður á þingnefndir, en þeim er ætlað að skila af sér fyrir 10. desember.

Gagnrýna niðurskurð á framlögum til skóla í Kópavogi

Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna í minnihluta bæjarstjórnar Kópavogs gagnrýna harðlega fyrirhugaðan niðurskurð til leik-grunn og tónlistarskóla bæjarins, sem fram kemur í fjárhagsáætlun meirihluta Sjálfstæðisflokks, Lista Kópavogsbúa og Framsóknarflokks.

Stálu átta stórum klaklöxum úr fiskeldi

Átta stórum klaklöxum, sem nota átti til undaneldis vegna fiskeldis í Hestá í Önundarfirði hefur verið stolið úr kerjum á Suðureyri og rannsakar lögreglan á Vestfjörðum nú málið.

Fatahönnuðir fengu styrki

Hálfíslenska hönnunarteymið Ostwald Helgason fékk veglegan styrk úr Hönnunarsjóði Auroru í dag.

Færeyingar gætu orðið fimmfalt ríkari en Norðmenn

Statoil-menn segjast ætla að halda áfram olíuborun við Færeyjar næsta vor. Þetta kemur fram í fréttaskýringu á norska olíuvefmiðlinum Offshore.no þar sem bent er á að olíufundur myndi umbylta færeysku samfélagi. Jafnframt kemur fram hversvegna leitin í Færeyjum geti haft áhrif á olíuleit við Ísland. Statoil og samstarfsaðilar þess, Exxon Mobil og Atlantic Petroleum, greindu frá því í morgun að hlé hafi verið gert á borunum.

Sjá næstu 50 fréttir