Fatahönnuðir fengu styrki Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 27. nóvember 2012 23:46
Hálfíslenska hönnunarteymið Ostwald Helgason var á meðal þeirra sem fengu úhlutað styrk úr Hönnunarsjóði Auroru í dag. Föt þeirra hafa vakið töluverða athygli í Bandaríkjunum þar sem þau hafa ratað á síður tískublaðanna. Þau verða brátt fáanleg í yfir tuttugu löndum. Alls fengu sex hönnuðir og hönnunarteymi í dag úthlutað samtals sex og hálfri milljón í styrki úr Hönnunarsjóði Auroru. Sjóðurinn hefur síðan árið 2009 styrkt íslenska hönnuði og arkitekta til að koma sér á framfæri bæði hér á landi og erlendis. Peningarnir koma úr Auroru velgerðarsjóði sem Ólafur Ólafsson hjá Samskipum stofnaði. Sá sem fékk hæstan styrk úr Hönnunarsjóði Auroru í dag eða eina og hálfa milljón er fatahönnunarteymið Ostwald Helgason. Það saman stendur af Ingvari Helgasyni og Susanne Ostwald. Hönnun þeirra hefur vakið töluverða athygli erlendis en þau hafa haldið tvær sýningar í New York í ár. Þá hefur verið fjallað um fötin þeirra í helstu tískublöðum um allan heim. „Þetta hefur gengið alveg vonum framar. Við sýndum í fyrsta skipti í febrúar og þetta er bara svona hlutir sem maður heldur alltaf að gerist fyrir annað fólk en ekki mann sjálfan en einhvern veginn hefur þetta komið saman og þetta gengur alveg rosalega vel," sagði Ingvar Helgason. Föt þeirra eru nú fáanleg víða um heim svo sem í Bandaríkjunum, Japan, Bretlandi, Rússlandi, Dubai og Indónesíu. „Frá og með í febrúar þá er þetta komið í held ég tuttugu, tuttugu og tvö lönd þannig að við erum mjög ánægð," sagði Ingvar.
Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Sjá meira