Fleiri
Rukkanir bárust enn eftir andlátið Sjúklingur lenti í vítahring smálána. 1.11.2012 20:39 Afleitar aðstæður á vegum Ferðaveður á landinu er afleitt, hálendið ófært eins og það leggur sig og umferðartafir víða. 1.11.2012 20:02 Vilja leyfa áfengisauglýsingar Félag atvinnurekenda vill að áfengisauglýsingar séu að meginreglu heimilar en þó með ströngum takmörkunum. 1.11.2012 19:28 Herinn mættur á Manhattan Herinn tók sér bólstað í þeim hluta Manhattan sem er enn án rafmagns. 1.11.2012 19:26 Leitin skapar fjölda starfa þótt engin olía finnist Olíuleit við Ísland mun skila verulegum fjölda starfa, jafnvel þótt engin olía finnist. Endurgreiðslur norska ríkisins vegna olíuleitar gætu hins vegar freistað olíufélaga til að bora fremur Noregsmegin á Jan Mayen-svæðinu. Þetta kom fram á ráðstefnu í Reykjavík í dag. Ert þú klár í olíufund? 1.11.2012 19:15 Alvarlegir fjárhagserfiðleikar hjá Eir Hjúkrunarheimilið Eir er í miklum rekstrarvanda. Stjórn þess hefur fengið utanaðkomandi sérfræðinga til þess að fara yfir reksturinn og leggja fram tillögur til að koma í veg fyrir að félagið fari í þrot. 1.11.2012 18:31 Sjá næstu 50 fréttir
Festa þakið á Laugavegi Verið er að reyna að festa þakið á Laugavegi 15 sem var við það að fjúka af fyrr í morgun. Björgunarsveitamenn vinna að verkinu. Lögreglumenn lokuðu neðsta hlutanum á Laugavegi til að varna því að þakplöturnar myndu hreinlega fjúka á fólk. Slysavarnarfélagið Landsbjörg greindi frá því fyrir stundu að ný hjálparbeiðni berst á tveggja mínútna fresti. Tugir björgunarsveitamanna eru að störfum. 2.11.2012 11:59
Magnaðar myndir: Fólk í stórhættu í ofsaveðri Ljósmyndari Fréttablaðsin fór á stúfana í morgun og náði þessum myndum af óveðrinu. Vindurinn er gríðarlegur við Höfðatorg og má þarna finna myndir af fólki sem rúllar hreinlega eftir götunni. 2.11.2012 11:53
"Þetta er hryllilegt veður“ Ástandið í húsunum sem næst standa Sæbrautinni í einu orði sagt svakaleg. Björnsbakarí á Skúlagötunni er opið fyrir gesti en starfsfólk heldur rafmagshurð með handafli til að gestir komist inn um dyrnar. 2.11.2012 11:47
Bóndi á Berjanesi: "Ég vona að ég lifi þetta af“ "Þetta er það versta sem ég hef upplifað í mörg ár - við erum bara tvö hérna heima og þykjumst vera heppin að vera heil á húfi,“ segir Vigfús Andrésson, bóndi á Berjanesi í Landeyjum á Suðurlandi. Mikið óveður gengur nú yfir allt landið, eins og flestum ætti að vera kunnugt um. 2.11.2012 11:42
Þöggun, andlegt og kynferðislegt ofbeldi meginniðurstaðan Þöggun, andlegt ofbeldi og kynferðisofbeldi eru meginniðurstöður rannsóknarnefndar kaþólsku kirkjunnar sem rannsökuðu ásakanir gegn kirkjunnar mönnum á meðan þeir ráku Landakotsskóla, sem er vel að merkja ekki rekinn af kirkjunni lengur. 2.11.2012 11:40
Átt þú myndir af óveðrinu? Vísir leitar eftir myndum frá lesendum sem fanga veðurofsann sem gengur nú yfir landið. Lumar þú á myndum eða myndskeiðum af óveðrinu? 2.11.2012 11:30
Biskup bregst við skýrslu rannsóknarnefndarinnar Í nafni Kaþólsku kirkjunnar á Íslandi sem og persónulega leitar hugur minn til allra þeirra sem telja að á sér hafi verið brotið og einnig til fjölskyldna þeirra, segir Pétur Burcher biskup kirkjunnar, í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér. Rannsóknarnefnd um kynferðisbrot og annað ofbeldi innan kaþólsku kirkjunnar skilaði af sér skýrslu í dag. Pétur bendir á að veita verði kirkjunni, og ef til vill réttarkerfinu, nauðsynlegan tíma og ráð til að komast að niðurstöðu. Enginn hafi rétt til að kveða fyrirfram upp dóm um sekt eða sýknu manna. 2.11.2012 11:24
Ótrúlegt myndband af óveðrinu í Reykjavík Ótrúlegt myndband sem tekið er við Sæbrautina í Reykjavík í morgun sýnir hvernig öldurnar ná fleiri metra upp á land. Mikið óveður gengur nú yfir allt landið, og eru um 100 björgunarsveitarmenn að störfum á höfuðborgarsvæðinu og er verið að kalla út fleiri. Þakplötur hafa fokið víða og aðrir lauslegir munir. 2.11.2012 11:18
Fólk fýkur í óveðrinu - fimmtán leitað á slysadeild Yfir fimmtján sjúklingar höfðu leitað á slysadeild fyrir klukkan ellefu í morgun, samkvæmt upplýsingum frá slysadeild Landspítalans. Deildarstjóri á deildinni vill biðla til fólks að fara varlega í óveðrinu sem gengur nú yfir. "Þetta er fullorðið fólk sem fýkur bara og dettur. Við erum að rannsaka sjúklingana en það er grunur um beinbrot og hnjask. Við viljum vara fólk við að vera úti í þessu veðri, og ef það gerir það að fara mjög varlega,“ segir Ragna Gústafsdóttir, deildarstjóri á slysadeildinni. "Það eru ekkert endilega hálkublettir, það er bara svo rosalega hvasst.“ 2.11.2012 11:17
Rafmagn óstöðugt á Vík í Mýrdal og Kirkjubæjarklaustri "Við erum á leiðinni á staðinn og kveikja á vélum til að koma þessu í lag.“ 2.11.2012 10:38
Bárujárnsþök fuku á Bergþórugötunni Það er ekki hættulaust að vera á ferli í óveðri eins og því sem Íslendingar finna fyrir hvarvetna um land í dag. Á Bergþórugötunni fuku bárujárnsplötur af þökum og ljóst er að stórslys hefði orðið ef einhver hefði orðið fyrir þeim. Þegar Vísir bar að garði voru starfsmenn Reykjavíkurborgar í óðaönn að vinna við að koma böndum á þakplöturnar. 2.11.2012 10:28
Niðurstaða vegna Guðlaugs-gagnanna fæst í dag Dómari mun kveða upp úrskurð sinn í dag vegna kröfu verjanda Gunnars Þ. Andersen, fyrrverandi forstjóra Fjármálaeftirlitsins, um að saksóknari afli gagna um viðskipti Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins og notið við sakamálið sem snýr að Gunnari. 2.11.2012 09:55
Hóflegur hagvöxtur á næstunni Hagstofa Íslands gerir ráð fyrir að landsframleiðsla aukist um 2,7% á þessu ári og 2,5% á næsta ári. Þetta kemur fram í nýrri Þjóðhagsspá sem kemur út á morgun. Aukin einkaneysla og fjárfesting eru að baki hagvextinum. Samneysla stendur nær því í stað allt til ársins 2014. 2.11.2012 09:43
Allar björgunarsveitir kallaðar út vegna óveðurs Búið er að kalla út allar björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu vegna óveðurs, en sveitin í Mosfellsbæ við störf í nótt og í morgun. Flest verkefnanna eru í Mosfellsbæ og Grafarvogi. Fjöldi aðstoðarbeiðna hefur nú borist á höfuðborgarsvæðinu. 2.11.2012 08:59
Læknar þurfa tæki úr dýragörðum fyrir of feitt fólk Á sumum spítulum í Bretlandi þurfa læknar að nota tækjabúnað sem ætlaður eru stórvöxnum dýrum, á borð við ljón eða nautgripi, þegar þeir eru að meðhöndla offeita sjúklinga. 2.11.2012 08:25
Grískt samfélag að komast á ystu nöf Langvarandi niðurskurður hefur haft mikil áhrif á daglegt líf í Grikklandi. Á hverjum degi missa þúsundir manna vinnuna og þeir sem fá laun greidd á réttum tÁ sjúkrahúsi einu í Aþenu hefur verið sett upp skilti á vegg þar sem sjúklingar og ættingjar þeirra eru beðnir um að haga sér sómasamlega: „Læknar á vakt hafa ekki fengið greidd laun síðan í maí,“ stendur á skiltinu. „Vinsamlega sýnið störfum þeirra virðingu.“íma telja sig heppna. Mótmæli eru nánast daglegur viðburður. 2.11.2012 08:00
„Pinnið á minnið“ brýtur á réttindum Öryrkjabandalag Íslands segir fyrirkomulagið Pinnið á minnið brjóta á réttindum fatlaðra. Margir hafi ekki getu til að muna eða slá inn lykilnúmer. Undantekningar vegna þessa hafa verið gerðar erlendis segja stjórnendur verkefnisins. 2.11.2012 08:00
Nota gervitunglamerki til þorskrannsókna Rannsóknafyrirtækið Laxfiskar og samstarfsaðilar hafa tekið í notkun nýja tækni sem gerir kleift að fylgjast með ferðum þorska við Ísland. Tæknin byggir á fiskmerkjum sem senda upplýsingar um ferðir fiskanna um gervitungl. Þannig fást gögn um hegðun og umhverfi fiskanna án þess að endurveiða fiskana, sem er nýjung í þorskrannsóknum. Slík gögn gefa meðal annars nýjar hagnýtar upplýsingar um þorskinn þegar hann dvelur utan veiðislóðar. 2.11.2012 08:00
Lestarkerfið í New York mjakast í gang „Næstu fimmtíu eða hundrað árin verða mjög frábrugðin því sem við höfum kynnst undanfarin 50 ár,“ segir S. Jeffress Williams, vísindamaður við jarðvísindastofnun Bandaríkjanna í Massachusetts. 2.11.2012 08:00
Engin breyting á afstöðu til NATO Utanríkisráðherrar Finnlands og Svíþjóðar segja viljayfirlýsinguna um þátttöku í loftrýmisgæslu Íslands í samstarfi við Noreg ekki fela í sér breytingu á afstöðu til eða samstarfi við NATO. Ríkin eru ekki meðlimir í bandalaginu og hafa ekki tekið þátt í viðlíka verkefnum áður. 2.11.2012 08:00
Jólasagan birtist á aðfangadag Fréttablaðið efnir til verðlaunasamkeppni um bestu frumsömdu jólasöguna í ár. Verðlaunasagan birtist í Fréttablaðinu á aðfangadag, myndskreytt af Halldóri Baldurssyni teiknara. 2.11.2012 08:00
Brýr úr landi að odda Geirsnefs Borgarráð samþykkti í gær að ný hjóla- og gönguleið yfir Elliðaárósa yrði opnuð 3. maí á næsta ári. Með þessu styttist vegalengd hjólandi og gangandi milli Grafarvogs og miðborgar um 700 metra. 2.11.2012 08:00
Brask með hátíðarmiða vandamál Mikið magn Iceland Airwaves-tónleikamiða er í boði á svörtum markaði fyrir hátíðina í ár. Tugir miða eru í boði á vefsölutorginu Bland.is og kosta þeir frá 12 þúsund krónum upp í 30 þúsund. 2.11.2012 08:00
Dæmdur öðru sinni til dauða Dómstóll í Írak hefur kveðið upp dauðadóm yfir Tarik al Hashemi, varaforseta landsins, fyrir að hafa reynt að fá lífverði til að myrða háttsettan embættismann. 2.11.2012 08:00
Ríkir brjóta frekar lögin Ríkt fólk er líklegra til þess að brjóta umferðarlög en fátækir. Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem gerð var í Danmörku. 2.11.2012 08:00
Kaupmannahöfn vinsælust Kaupmannahöfn er langvinsælasti áfangastaður farþega á Keflavíkurflugvelli. London kemur þar á eftir. 2.11.2012 08:00
Finnst aðeins á tveimur bæjum Sýnatökur vegna smitandi barkabólgu benda til að sjúkdómurinn sé bundinn við tvö bú á Austurlandi. 2.11.2012 08:00
Vonbrigði fyrir aðdáendur Legoleikfanga Búist er við því að margir aðdáendur legokubba muni verða fyrir vonbrigðum um jólin. Sala á leikföngum frá lego eykst svo hratt að fyrirtækið annar ekki eftirspurn. Frá þessu segir á vef danska blaðsins Börsen í dag. Fyrirtækið hefur að undanförnu þróað mikið af nýjum vörum sem hafa rækilega slegið í gegn meðal barna. Mads Nipper, framkvæmdastjóri hjá Lego, segir að þær vörur sem hafi komið nýjar á markaðinn í ár séu svo vinsælar að þær nemi um helmingi sölunnar. 2.11.2012 07:08
Borgarstjórinn í New York styður Obama Michael Bloomberg, borgarstjóri í New York, lýsti í gær yfir stuðningi við Barack Obama, forseta Bandaríkjanna í forsetakosningunum sem haldnar verða í næstu viku. 2.11.2012 07:03
Vond færð í aftakaveðri Töluvert snjóaði allt frá Vestfjörðum og til Austurlands í nótt og var mikill skafrenningur og kóf í bálhvössum vindinum. Hann mældist yfir 60 metrar á sekúndu í hviðu í Hamarsfirði við Djúpavog í gærkvöldi og víða mældist hann yfir 50 í hviðum. 2.11.2012 06:57
Sex manns teknir úr umferð vegna drykkjuláta Einhver norðangarri virðist hafa hlaupið í nátthrafna næturlífsins í borginni í nótt, því lögreglan þurfti að taka sex manns úr umferð vegna drykkjuláta og sofa þeir nú úr sér í fangageymslum. Þrír ökumenn voru líka teknir úr umferð vegna ölvunarakstus og þrír vegna fíkniefnaaksturs, auk þess sem tveir dyraverðir ölknæpa voru leystir frá störfum þar sem þeir höfðu ekki tilskilin réttindi til starfans.- 2.11.2012 06:30
Stálu úlpum fyrir fleiri hunduð þúsundir Þjófar brutust inn á lager Cintamani við Austurhraun í Garðabæ í nótt og stálu þaðan 25 til 30 nýjum vetrarúlpum. Andvirði þýfisins er að líkindum öðru hvoru megin við milljónina og telur lögregla að tveir til þrír þjófar hafi verið að verki og komust þeir undan. Miðað við veðrið í nótt flokkast þetta ótvírætt undir svonefndan nytjastuld.- 2.11.2012 06:24
Strætófarþegar eiga að spenna beltin Farþegum Strætó eiga að spenna beltin þegar ekið er utan þéttbýlis. 1.11.2012 23:48
Umhverfisstofnun gerir erfitt að flokka ekki Starfsmenn Umhverfisstofnunar flokka nánast allan úrgang sem fellur til hjá þeim. 1.11.2012 22:42
Segir frábær bókajól í vændum Bóksali fullyrðir að bókabúðir séu staðir bjartsýninnar á Íslandi. 1.11.2012 22:30
Leystu aldagamla ráðgátu Tröllauknir steinar Angkor Wat hafa lengi valdið mönnum heilabrotum. 1.11.2012 21:44
Troðfullt í Kringlunni Kringlan auglýsti sérstaka miðnæturopnun í kvöld af þeim sökum að óðum styttist í jólin. Fjöldi fólks rauk til og augljóst að kominn er verslunarhugur í borgarbúa. 1.11.2012 21:22
Enn verið að gera upp Suðurlandsskjálftann Íbúar á Suðurlandi hafa fengið 10,6 milljarða króna í bætur. 1.11.2012 20:56
Jóhann Berg skoraði tvö í bikarleik Jóhann Berg Guðmundsson var á skotskónum með liði sínu, AZ Alkmaar, sem vann 4-1 sigur á D-deildarliðinu Boso Sneek í hollensku bikarkeppninni. 1.11.2012 20:51
Afleitar aðstæður á vegum Ferðaveður á landinu er afleitt, hálendið ófært eins og það leggur sig og umferðartafir víða. 1.11.2012 20:02
Vilja leyfa áfengisauglýsingar Félag atvinnurekenda vill að áfengisauglýsingar séu að meginreglu heimilar en þó með ströngum takmörkunum. 1.11.2012 19:28
Herinn mættur á Manhattan Herinn tók sér bólstað í þeim hluta Manhattan sem er enn án rafmagns. 1.11.2012 19:26
Leitin skapar fjölda starfa þótt engin olía finnist Olíuleit við Ísland mun skila verulegum fjölda starfa, jafnvel þótt engin olía finnist. Endurgreiðslur norska ríkisins vegna olíuleitar gætu hins vegar freistað olíufélaga til að bora fremur Noregsmegin á Jan Mayen-svæðinu. Þetta kom fram á ráðstefnu í Reykjavík í dag. Ert þú klár í olíufund? 1.11.2012 19:15
Alvarlegir fjárhagserfiðleikar hjá Eir Hjúkrunarheimilið Eir er í miklum rekstrarvanda. Stjórn þess hefur fengið utanaðkomandi sérfræðinga til þess að fara yfir reksturinn og leggja fram tillögur til að koma í veg fyrir að félagið fari í þrot. 1.11.2012 18:31