Innlent

Fólk fýkur í óveðrinu - fimmtán leitað á slysadeild

Yfir fimmtján sjúklingar höfðu leitað á slysadeild fyrir klukkan ellefu í morgun, samkvæmt upplýsingum frá slysadeild Landspítalans. Deildarstjóri á deildinni vill biðla til fólks að fara varlega í óveðrinu sem gengur nú yfir. „Þetta er fullorðið fólk sem fýkur bara og dettur. Við erum að rannsaka sjúklingana en það er grunur um beinbrot og hnjask. Við viljum vara fólk við að vera úti í þessu veðri, og ef það gerir það að fara mjög varlega," segir Ragna Gústafsdóttir, deildarstjóri á slysadeildinni. „Það eru ekkert endilega hálkublettir, það er bara svo rosalega hvasst."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×