Fleiri fréttir

Sá stærsti var 5,6 stig

Stærstu skjálftarnir í nótt voru 5,6 að stærð og 4,8 að stærð. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Engar tilkynningar borist um tjón

Enn hafa engar tilkynningar borist um tjón vegna jarðskjálftanna á Norðurlandi. Eigendur vátryggðra verðmæta sem kunna að hafa orðið fyrir tjóni vegna jarðskjálftanna eru hvattir til að tilkynna um tjón sitt sem allra fyrst.

Amerískur frumbyggi gerður að dýrlingi

Benedikt páfi XVI gerði sjö manneskjur að kaþólskum dýrlingum í dag. Þeirra á meðal er frumbyggi frá Ameríku sem vakti athygli trúboða á sínum tíma.

Annar mannanna var reyndur flugmaður

Annar flugmannanna sem lést við brotlendingu fisflugvélar á Njarðvíkurheiði í gær var reyndur flugmaður. Rannsóknarnefnd flugslysa og rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurnesjum voru á vettvangi í sex klukkustundir í gær en eru engu nær um orsakir slyssins.

Lögregluna grunar hverjir ollu eldsvoðanum

Lögreglan á Suðurnesjum hefur ákveðnar grunsemdir um hverjir voru að verki í nótt þegar kviknaði í átta bílum við iðnaðarhúsnæði í Reykjanesbæ. Málið er enn til rannsóknar.

Raunhæft að fullvinna stjórnarskrárfrumvarp í vetur

Formaður Stjórnskipurnar- og eftirlitsnefndar Alþingis telur að hægt verði að klára fyrstu umræðu um frumvarp að nýrri stjórnarskrá fyrir jól. Formaðurinn er bjartsýn á að hægt verði að ljúka málinu fyrir Alþingiskosningarnar í vor.

Rúmið titraði stanslaust

Margir Siglfirðingar voru óttaslegnir í nótt þegar jarðskjálftarnir gengu yfir. Þar á meðal Birna Kristín Eiríksdóttir.

Jóhanna er stolt af þjóðinni

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, telur að þingmenn verði mjög bundnir af niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um tillögur stjórnlagaráðs sökum þess hve afgerandi niðurstaðan var.

Meirihluti sagði já við öllu

Meirihluti kjósenda virðist hafa sagt já við öllum spurningum á kjörseðlinum í þjóðaratkvæðagreiðslunni um tillögur stjórnlagaráðs í gær.

Öflugasta skjálftahrina í tvo áratugi

Jarðskjálftahrinan sem hefur gengið yfir Norðurland síðasta hálfa sólarhringinn er sú öflugasta sem hefur orðið á svæðinu í um tvo áratugi. Jarðskjálftafræðingur segir mikilvægt að fylgjast með framvindu mála þar sem jarðhræringarnar geti haft áhrif á skjálftavirkni annarra svæða.

Geir leitar til Mannréttindadómstólsins

Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra hefur kært málsmeðferð í Landsdómsmálinu til Mannréttindómstóls Evrópu. Hann telur að íslenska ríkið hafi í málinu brotið gegn ákvæðum í Mannréttindasáttmála Evrópu er lúta að réttlátri málsmeðferð fyrir dómi.

Salvör: Nú er mikilvægt að ná sátt um breytingar

Formaður stjórnlagaráðs, Salvör Nordal, er sátt við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um tillögur ráðsins að nýrri stjórnarskrá. Hún telur mikilvægt að menn reyni nú að ná víðtækri samstöðu um þær breytingar sem óhjákvæmilega verða á nýrri stjórnarskrá.

Engu nær um orsakir flugslyssins

Rannsóknardeild flugslysa og rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurnesjum eru engu nær um hvað orsakaði flugslys þegar fisflugvél brotlenti á Njarðvíkurheiði skammt frá Seltjörn á Reykjanesi í gær.

Kertalukt kom Landhelgisgæslunni í viðbragðsstöðu

Landhelgisgæslan fékk í gærkvöldi boð um gulleit ljós á himni yfir Seltjarnarnesi. Ljósin líktust mjög neyðarboðum sjómanna og því voru björgunarsveitir settar í viðbragðsstöðu. Brátt kom hins vegar á daginn að engin hætta var á ferðum, ljósin stöfuðu af svífandi kertaluktum sem eru gjarna settar á loft í partíum.

Talning langt komin - 66% sögðu já

Ríflegur meirihluti þeirra sem mættu á kjörstað í gær til að taka þátt í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að breytingum á stjórnarskránni lýstu sig samþykk því að leggja tilllögur ráðsins til grundvallar að nýrri stjórnarskrá.

Bensínþjófar ollu eldsvoða

Átta bílar urðu eldi að bráð við Iðavelli í Keflavík um miðnætti þegar skammhlaup varð í dælubúnaði bensínþjófa sem þar voru á kreiki.

Hundruð jarðskjálfta mældust á Norðurlandi

Nokkur hundruð jarðskjálftar hafa mælst á Norðurlandi frá því í gærkvöldi. Sá stærsti, að stærðinni 5,2, varð um hálftvöleytið í nótt en sá fannst um allt Norðurland og víðar.

Allt nötrar og skelfur á Norðurlandi

Töluverði skjálftavirkni hefur verið á Norðurlandi í kvöld. Hafa skjálftarnir verið allt að fjögur stig. Þeir hafa meðal annars fundist á Akureyri og á Siglufirði hafa bækur munir hrunið úr hillum.

Afgerandi stuðningur við frumvarp Stjórnlagaráðs

Afgerandi stuðningur er við frumvarp Stjórnlagaráðs, samkvæmt fyrstu tölum sem berast. Talin hafa verið 17300 atkvæði í Suðvesturkjördæmi. Þar er niðurstaðan sú að 68% vilja að frumvarp Stjórnlagaráðs verði lagt til grundvallar að nýrri stjórnarskrá, en um 32% vilja það ekki. Þetta kom fram í aukafréttatíma RÚV.

Síðustu kjörstöðum lokað

Síðustu kjörstöðum var lokað núna klukkan tíu, en kosið var í dag um tillögur Stjórnlagaráðs. Eins og fram hefur komið hefur kjörsókn verið nokkuð dræm í dag. Hún fór hægt af stað en jókst svo þegar leið á daginn. Alls voru sex spurningar lagðar fyrir kjósendur og því ljóst að talning getur tekið nokkuð langan tíma. Engu að síður er búist við því að fyrstu tölur birtist um klukkan ellefu.

Keypti peysu af Dorrit til styrktar fötluðum börnum

Kona sem keypti peysu af Dorrit Moussaeiff forsetafrú á uppboði til styrktar sumarbúðum fatlaðra barna, segir að gott sé að geta styrkt gott málefni á þennan hátt. Ekki skemmir heldur fyrir hversu glæsileg forsetafrúin er.

Mikilvægt að ráðast í virkjanaframkvæmdir á Suðurlandi

Nauðsynlegt er að fara í virkjanaframkvæmdir á Suðurlandi eins og Hagavatnsvirkjun í Bláskógabyggð og Hólmsárvirkjun í Skaftárhreppi, svo og Hvammsvirkjun og Holtavirkjun í neðri hluta Þjórsár segir Björgvin G. Sigurðsson, fyrsti þingmaður Suðurkjördæmis. Hann segist vera virkjanasinni.

Alþjóðlegi skvassdagurinn var haldinn í dag

Hinn alþjóðlegi skvass dagur fór fram í dag. Viðburðurinn er hugsaður til að vekja athygli á skvassíþróttinni, en hún er stunduð af um 15 milljónum manna í 180 löndum.

Kjörsókn jókst þegar leið á daginn

Landsmenn gengu að kjörborðinu í dag í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Þáttakan hefur verið í dræmara lagi en þó virðist hún verða ívið meiri en í kosningum til stjórnlagaþings.

Gítarleikari McCartney á landinu

Hann hefur spilað fyrir fimmhundruð þúsund manns í Róm og hann tróð upp á opnunarathöfn Ólympíuleikanna í sumar. Nú gefst Íslendingum kostur á að hlusta á gítarleikarann Rusty Anderson.

Sumarhúsaeigendur velta fyrir sér að höfða mál

Kærunefnd húsamála hefur vísað frá máli sumarhúsaeigenda við Elliðavatn. Þeir þurfa því að kröfu Orkuveitu Reykjavíkur að yfirgefa húsin fyrir áramót. Lögmaður húseigenda reiknar með að málið fari fyrir dómstóla.

Tveir létust í flugslysi á Suðurnesjum

Lítil fisflugvél brotlenti skammt frá fisflugvellinum Sléttu sunnan við Seltjörn á Njarðvíkurheiði. Tveir menn voru í vélinni og voru þeir báðir úrskurðaðir látnir á vettvangi.

Vilja konur í framboð

Landssamband sjálfstæðiskvenna hvetur konur í öllum flokkum til að bjóða sig fram til áhrifa í stjórnmálum.

Þátttakan betri en í stjórnlagaþingskosningunum

Klukkan fjögur höfðu ríflega 20% þeirra sem eru á kjörskrá greitt atkvæði um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Í Reykjavíkurkjördæmi suður höfðu 21,98% greitt atkvæði en í Reykjavík norður 22,97%. Á sama tíma höfðu 17,2% greitt atkvæði í kosningunum um stjórnlagaþing á sínum tíma.

Alvarlegt flugslys á Suðurnesjum

Lítil fisvél brotlenti rétt sunnan við Seltjörn á Njarðvíkurheiði. Tveir menn voru um borð. Lögreglumenn eru á vettvangi en tilkynnt var um slysið klukkan rúmlega þrjú í dag.

Gistinóttum Íslendinga í Skandinavíu fjölgaði

Gistinóttum Íslendinga í Skandinavíu fjölgaði mikið milli ára. Íslendingar keyptu rúmlega þriðjungi fleiri gistinætur í Osló og Stokkhólmi í sumar heldur en árið á undan. Þetta kemur fram á vef Túrista.

Freyja þarf ekki að brjóta kosningalög

Freyja Haraldsdóttir ætlar sér að kjósa í atkvæðagreiðslunni um tillögur stjórnlagaráðs í dag og þarf í þetta sinn ekki að brjóta kosningalög.

Vann hundrað milljónir á fyrsta miðann sinn

Kona á miðjum aldrei keypti sér sinn fyrsta víkingalottómiða í vikunni. Það skipti engum togum að hún fékk allar tölur réttar og vann einar 103 milljónir króna.

Grandinn tekur stakkaskiptum

Undanfarin ár hefur Grandinn í Reykjavík tekið miklum stakkaskiptum. Margvísleg fyrirtæki og verslanir hafa sprottið upp á svæði sem eitt sinn var lagt undir starfsemi sem tengdist sjávarútvegi. Sigríður Björg Tómasdóttir blaðamaður og Stefán Karlson ljósmyndari tóku púlsinn úti á Granda í fallegu haustveðri og hittu fyrir fjölbreytilegan hóp athafnafólks.

Ósáttur við fullyrðingar Ástu

Björn Valur Gíslason, formaður fjárlaganefndar Alþingis, er óánægður með fullyrðingar og málflutning Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, forseta Alþingis í fréttum að undanförnu.

Jón Gnarr verður bingóstjóri fyrir fatlaða íþróttamenn

Maður veit aldrei hverju maður á von á þegar Jón Gnarr er annars vegar, segir íþróttagreinastjóri íþróttafélags fatlaðra. Í dag ætlar borgarstjórinn að aðstoða við bingó til styrktar keppendum á Special Olympics sem fer fram í Suður-Kóreu í byrjun næsta árs.

Skiptir ekki höfuðmáli hve margir kjósa

Eiríkur Bergmann Einarsson, meðlimur stjórnlagaráðs, er ánægður með kjörsóknina það sem af er degi. Í dag greiðir almenningur atkvæði um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá en um klukkan eitt höfðu tæp 10% greitt atkvæði.

Ísraelski sjóherinn stöðvar skip á leið til Gasa

Ísraelski sjóherinn stöðvaði í mörgun för skipsins Estelle í miðjarðarhafi en skipið hafði freistað þess að rjúfa hafnarbann Ísraelsmanna og var á leið til Gaza-strandarinnar en borð voru evrópskir og kanadískir aðgerðarsinnar sem sagðir eru hlynntir Palestínu.

Kynferðisafbrot Savile eiga sér tæpast hliðstæðu

Breska lögreglan telur mögulegt að fjölmiðlamaðurinn Jimmy Savile hafi verið miðpunktur kynferðisafbrotahrings sem misnotaði börn. Síðan fyrst spurðist af kynferðislegri misnotkun Savile og lögregla hóf rannsókn málsins hefur ábendingum hreinlega rignt inn til lögreglu.

Rifja upp æviferil Einars Ben

Í dag verður hin svokallaða Einarsvaka haldin hátíðlega í Bíó Paradís við Hverfisgötu en þar verður æviferill þjóðskáldsins Einars Benediktssonar og hinnar merku konu Hlínar Johnson reifaður og fjallað um árin þeirra í Herdísarvík.

Sjá næstu 50 fréttir