Jóhanna er stolt af þjóðinni BBI skrifar 21. október 2012 13:26 Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra. Mynd/Vilhelm
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, telur að þingmenn verði mjög bundnir af niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um tillögur stjórnlagaráðs sökum þess hve afgerandi niðurstaðan var. „Ég er stolt af þjóðinni fyrir að skila Alþingi þessari niðurstöðu," sagði Jóhanna í viðtalsþættinum Silfri Egils í morgun, en þar komu saman fulltrúar allra stjórnmálaflokka á þingi til að ræða niðurstöðu kosninganna. Jóhanna er ánægðust með niðurstöðu þjóðarinnar um það álitaefni hvort náttúruauðlindir sem ekki eru í einkaeigu eigi að vera lýstar þjóðareign í nýrri stjórnarskrá. Hún telur að Alþingi geti í vetur komið sér saman um viðunandi breytingar á stjórnarskránni sem byggðar verði á tillögum stjórnlagaráðs. „Ef viljinn er fyrir hendi ættum við að geta náð viðunandi niðurstöðu fyrir vorið," segir hún.Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, var ekki jafnjákvæður. „Það er ekki hægt að gera lítið úr því þegar helmingur kosningabærra manna situr heima," sagði hann en kjörsókn í gær var rétt um 50%. Þá lýsti hann ítrekað þeirri skoðun að málið hefði átt að fara beint í efnislega umræðu á þingi.Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, taldi niðurstöðu kosninganna gott innlegg. Nú þyrfti hins vegar að fara yfir hvað í tillögum stjórnlagaráðs standist lagalega séð og hverju þurfi að breyta. „Ég held að flestir geri sér grein fyrir því að það þurfi að fara betur yfir margt og skýra ýmislegt," sagði hann.Þór Saari, þingmaður Hreyfingarinnar, benti á að það væri afgerandi stuðningur við tillögur stjórnlagaráðs allar nema hugsanlega hugmyndir ráðsins um þjóðkirkjuna, en meirihluti virðist fyrir því að ákvæði um þjóðkirkju séu í stjórnarskrá. „Það þarf alls ekki að taka langan tíma að fullvinna frumvarpið. Það er alveg á hreinu," sagði Þór og benti á að tillögur stjórnlagaráðs grundvölluðust á ævintýralegri vinnu hinna ýmsu nefnda og ráða. „Mér heyrist á Bjarna og Sigmundi að þeir ætli að tefja vinnuna í þinginu," sagði Þór og þótti það miður. Þessi fullyrðing kom hins vegar flatt upp á þá fyrrnefndu.
Tengdar fréttir Meirihluti sagði já við öllu Meirihluti kjósenda virðist hafa sagt já við öllum spurningum á kjörseðlinum í þjóðaratkvæðagreiðslunni um tillögur stjórnlagaráðs í gær. 21. október 2012 13:09 Talning langt komin - 66% sögðu já Ríflegur meirihluti þeirra sem mættu á kjörstað í gær til að taka þátt í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að breytingum á stjórnarskránni lýstu sig samþykk því að leggja tilllögur ráðsins til grundvallar að nýrri stjórnarskrá. 21. október 2012 10:23 Salvör: Nú er mikilvægt að ná sátt um breytingar Formaður stjórnlagaráðs, Salvör Nordal, er sátt við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um tillögur ráðsins að nýrri stjórnarskrá. Hún telur mikilvægt að menn reyni nú að ná víðtækri samstöðu um þær breytingar sem óhjákvæmilega verða á nýrri stjórnarskrá. 21. október 2012 11:41 Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Erlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Sjá meira
Meirihluti sagði já við öllu Meirihluti kjósenda virðist hafa sagt já við öllum spurningum á kjörseðlinum í þjóðaratkvæðagreiðslunni um tillögur stjórnlagaráðs í gær. 21. október 2012 13:09
Talning langt komin - 66% sögðu já Ríflegur meirihluti þeirra sem mættu á kjörstað í gær til að taka þátt í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að breytingum á stjórnarskránni lýstu sig samþykk því að leggja tilllögur ráðsins til grundvallar að nýrri stjórnarskrá. 21. október 2012 10:23
Salvör: Nú er mikilvægt að ná sátt um breytingar Formaður stjórnlagaráðs, Salvör Nordal, er sátt við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar um tillögur ráðsins að nýrri stjórnarskrá. Hún telur mikilvægt að menn reyni nú að ná víðtækri samstöðu um þær breytingar sem óhjákvæmilega verða á nýrri stjórnarskrá. 21. október 2012 11:41