Kjörsókn jókst þegar leið á daginn Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 20. október 2012 19:58
Landsmenn gengu að kjörborðinu í dag í ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Þáttakan hefur verið í dræmara lagi en þó virðist hún verða ívið meiri en í kosningum til stjórnlagaþings. Kjörsókn fór afar rólega af stað í flestum kjördæmum landsins í morgun en jókst þó aðeins er líða tók á daginn. Kjörstaðir eru opnir til 10 í kvöld. Nú rétt fyrir fréttir höfðu 32,14% tekið þátt í Reykjavík Suður, 30,99% í Reykjavík Norður, 32% í Suðvesturkjördæmi, 24,9% í Suðurkjördæmi klukkan fimm. Ekki höfðu verið teknar saman tölur fyrir Norðvesturkjördæmi í heild sinni og sömu sögu er að segja úr Norðausturkjördæmi. Sveinn Sveinsson formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavík suður sagði að atkvæðagreiðslan hefði gengið fyrir sig þegar við hittum hann um fjögurleytið í dag. „Það hefur gengið vel, þetta er rólegt en heldur meira heldur en var í stjórnlagaráðskosningunum. Ekki mikil kjörsókn þannig séð," segir hann. Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðingur og meðlimur í stjórnlagaráði segir kjörsóknina vera í takt við væntingar. „Eina viðmiðið sem við höfum er stjórnlagaþingkosningarnar, þessar byrjuðu heldur dræmt en það virðist vera stígandi í þessu," segir hann. Að mati Eiríks er lítið hægt að horfa í það hve margir sátu heima. "Það eina sem felst í heimasetunni er það að maður felur öðrum að ráða," segir hann. Nokkuð flóknara er að telja atkvæðin í þessum kosningum þar sem um sex spurningar er að ræða. En hvenær má þá búast við fyrstu tölum að mati Sveins? „Það verður aldrei fyrr en uppúr ellefu, ellefu hálft tólf, og þá bara við fyrstu spurningunni," segir hann. Í Reykjavíkurkjördæmunum báðum verður farin sú leið að telja eina spurningu í einu en sumstaðar annarsstaðar verða allar spurningar á hverjum seðli taldar í einu. Kjósendur sem við ræddum við í dag voru sammála um að mikilvægt sé að mæta á kjörstað.
Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Sjá meira