Innlent

Alþjóðlegi skvassdagurinn var haldinn í dag

BBI skrifar
Vígalegir garpar í Veggsport í dag.
Vígalegir garpar í Veggsport í dag.
Hinn alþjóðlegi skvass dagur fór fram í dag. Viðburðurinn er hugsaður til að vekja athygli á skvassíþróttinni, en hún er stunduð af um 15 milljónum manna í 180 löndum.

Skvassklúbbar um heim allan sameinuðust um að halda keppni í dag milli tveggja liða. Því voru mynduð tvö 20 manna lið í hverjum klúbbi sem svo kepptu sín á milli. Hver leikmaður spilaði eina lotu upp að 20 stigum. Heildarstig liðanna verða svo lögð saman til að finna sigurliðið á heimsvísu.

Hundruð skvassklúbba skráðu sig til leiks og því létu vel yfir 30 þúsund spilarar ljós sitt skína í dag. Þar á meðal voru 40 íslenskir garpar sem kepptu í líkamsræktarstöðinni Veggsporti á Stórhöfðanum í dag.

Skvasssambandið hefur um árabil unnið hörðum höndum að því að koma skvassíþróttinni á Ólympíuleikana og er skvassdagurinn þeirra stærsta tilraun til að fanga athygli Ólympíunefndarinnar. Kosið verður um nýjar ólympíugreinar i Argentínu í september á næsta ári."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×